Alþýðublaðið - 03.05.1966, Side 11

Alþýðublaðið - 03.05.1966, Side 11
MINNINGARORÐ: Ingi Þór Stefánsson f. 16. september 1931 — d. 22. apríl 1966. Rís þú .friðland stjörnudjúps af stormi, ströndin þar sem sál vor allra bíður, tími er svipstund ein, sem aldrei líður, algeims rúm, ein sjón, einn dýrðarbjarmi. Hendingar þessar úr niðurlagi eins stórbrotnasta kvæðis skáld- jöfursins Einars Benediktssonar komu mér ósjálfrátt í hug, er ég frétti lát vinar míns og félaga Inga Þórs Stefánssonar, sem í dag er lagður til hinztu hvíldar. Ingi Þór átti við erfiða og þung bæra sjúkdómsraun að etja. En hann tók með stillingu og æðru- leysi hins hugprúða manns þvi sem að liöndum bar og ekki varð um- flúið. Ingi Þór var fæddur 16. sept. 1931 í Seyðisfirði austur, en aðeins fárra mánaða gamall flutti hann ,suður”. Foreldrar hans voru Stein unn Kristín Þórarinsdóttir, sem látin er fyrir allmörgum árum og Stefán Hannesson. Ingi Þór nam við Verzlunar- skóla íslands og útskrifaðist það- an árið 1950. Auk þess stundaði hann nám við íþróttakennaraskóla íslands og lauk þar prófi 1952. Ingi Þór var kvæntur Hrefnu Ingimarsdóttur, hinni glæsilegustu konu og áttu þau tvo syni, Stefán Þór 12 ára og Sigmar Þór 7 ára. Um nokkurra ára skeið var Ingi starfsmaður Loftleiða eða frá 15. febrúar 1960 og þar til hann lézt. Þetta er í stuttu máli sú ytri umgjörð sem snýr að lífi og starfi Inga Þórs. En auk starfa og strits í daglegri önn, svo sem allir verða að inna af höndum, átti Ingi Þór sín áhugamál, sem hann fórnaði frítíma sínum. Á því sviði áttu íþróttirnar hug hans allan. Honum var það öðrum fremur ljóst, að heilbrigt félags- líf er hornsteinn íþróttastarfsins. Þessvegna taldi hann ekki eftir stundirnar, er til þess fóru. Hann gerðist félagi í íþróttafélagi Reykjavíkur þegar á unga aldri og undir merki ÍR og íþróttanna stóð hann tryggur og öruggur meðan stætt var. Ingi Þór var mikill áhugamaður um íþróttir almennt, en knattleikirnir og þó fyrst og fremst körfuknattleikurinn áttu hug hans. Aðeins 16 ára gamall lék hann í meistaraflokki ÍR í handknattleik og kom fljótt í ljós mikil hæfni hans á því sviði. Hann lét þó meira að sér kveða í körfuknattleiknum og varð íslandsmeistari og lék með landsliði. Ingi Þór var einn af stofnendum Körfuknattleiksdeild- ar ÍR, í stjórn deildarinnar frá upphafi og formaður um árabil. Þá var hann einnig formaður Körfuknattleiksráðs Reykjavíkur og í stjórn Körfuknattleikssam- bands íslands. Þannig naut liann, vegna margþættra hæfileika sinna, áhuga og dugnaðar, mikils trúnað ar langt út fyrir raðir síns félags, en þar var hann og í aðalstjórn um árabil og nú síðast varafor- maður. Pérsónuleg kynnt mín og hinS Ingi Þór Stefánsson. horfna vinar hófust, er við vorum báðir starfandi í handknattleiks flokki ÍR. Og svo sem oft verður um kynni þeirra, sem mætast á íþróttai viðinu, þá vara þau æ síð- an. Þannig var það með okkar kynni. Þessi ljóshærði og gjörvu legi ungi maður vann ekki aðeins hug minn, heldur og allra ann- arra, þeirra sem honum kynntust og áttu með honum samvinnu í leik og starfi. Ingi Þór var og mörgum þeim kostum búinn, sem gerðu hann öðrum fremur hæfan til félags legra starfa, sáttfús og samvinnu lipur — hélt þó fast á máli sínu, þegar því var að skipta, en ávallt af fullri kurteisi og einurð. Slík ur var hann í starfi og þannig var hann í leik. Sannur íþrótta- maður í anda og sannleika. Góður vinur og félagi. Þannig lifir minn ingin um hann í hugum vorum, samherja hans og samstarfs- manna. Ég sendi f.ylhtu samúðarkveðj- ur til eiginkonu og barna svo og til föðurs og systkina hins látna. Örn Eiðsson LandsBiðið í handknatt leik á förum til USA EINS og skýrt hefur verið frá York og sá síðari í New Jersey. hér í blaðinu áður, fer íslenzka þá verður leikið við úrvals1ið New landsliðið til Bandaríkjanna í keppnisför nú í vor. Brottfarar- dagur er ákveðinn 13. maí næstk. og leiknir verða tveir landsleiku* við Bandaríkin, sá fyrri í New SL. sunnudag fór fram Innan- j félagsmót Ármanns í Jósefsdal. 1 Mót þetta er svigmót í karla- og 1 kvennaflokkum. Úrslit urðu sem hér segir: Karlaflokkur: Bjarni Einarsson 101.2 Sig. Guðmundsson 129.2 Piltar 17—19 ára: Örn Kjærnested 85,8 Bragi Jónsson 155.6 York-borgar og tekið verður þátt í hraðkeppni. Landslið íslands hefur verið valið og er þannig skipað: Hjalti Einarsson, FH. Kvennaflokkur: Hrafnh. Helgadóttir 80.5 Guðrún Björnsd. 89,1 Sesselja Guðm. 95,4 Drengjaflokkur: Tómas Jónsson 70,4 Guðjón Ingi Sverrisson 90,1 Þorv. Þorsteinsson 101.8 Telpnaf'okkur: Auður Harðardóttir 63,7 Jóna Bjarnadóttir, 67,0 Edda Sverrisdóttir 107;5 Þorsteinn Björnsson, Fram. Gunnl. HjálmarsSon, Fram Ingólfur Óskarsson, Fram Sigurður Einarsson, Fram Birgir Björnsson, FH Auðunn Óskarsson, FH . Páll Eiríksson, FH Stefán Jónsson, Haukum Viðar Símonarson, Haukum Stefán Sandholt, Val Hermann Gunnarsson, Val Karl Jóhannsson, KR Vinnuvélar til leigu. Leigjum út pússninga-steypn- hrærivélar og hjólbörur. Rafknúnir grjót- og múrhamrar með borum og fleygum. Steinborvélar — Vibratorar. Vatnsdælur o.m.fl. LEIGAN S.F. Sfmi 23480. Skíðamót Ármanns Fjölskyldu og æskulýös- feröir til útlanda Rvl — ÓTJ. FERÐASKRIFSTOFAN Sunna hef ur í samráði við þjóðkirkjuna und irbúið tvær ferðir fyrir æxkufólk í sumar til Danmerkúr og Noregs og fil) SkoWands og Englands. Einnig býður ferðaskrifstofan upp á fjölskylduferð til Skotlands. Far arstjóri í þessum ferðum verður séra Ólafur Skúlason fyrrverandi æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjnnar. Á fundi með fréttamönnum í gær skýrðu þeir Guðni Þórðarson frá Sunnu og séra Ólafur, frá tilhög un ferðanna. Upphaf þeirra var það að fyrir nokkrum árum, þegar séra Ólafur var æskulýðsfulltrúi þjóðkirkj- unnar efndi hann til nokkurra ódýrra æskulýðsferða til útlanda og mæltust þær vel fyrir. Fátt er hollara ungu fólki en að sjá sig um í heiminum undir góðri leiðsögn og Ieit mun að betri manni til þess starfs en Séra Ól- afi. Fyrstu ferðirnar voru alveg á vegum þjóðkirkjunnar og dvaldist unga fólkið í vinnubúð um þar sem það vann ýmiskonar gagnleg störf. Nú er þörfin fyr ir slikar vinnubúðir mun minni en áður, og var því ákveðið að efna til skemmtiferða sem ein göngu miðuðu að því að leyfa ungl ingunum að sjá sig um. Sú fyrsta var farin í fyrra og í henni tóku þátt um þrjátíu unglingar á aldr inum frá 15—18 ára, og það þrátt fyrir að ferðin væri ákveðin með mjög stuttum fyrirvara. Fyrsta ferðin í sumar verður frá 7. til 21 júlí og kostar 9800 fyrir manninn. Verður þá ferðast um Danmörku og Noreg. Frá Kastrupflugvelli verður ek ið til gisthtaðar á Sjálandi, næsta dag farið um Fjón og Jótland og gist á N—Jótlandi. Næsta dag verður farið yfir sundið til Nor egs, ekið með Osló firði að æsku lýðsheimili í skóglendi við fjörð Framhald á 6. síðu. ATHUGIÐ! Skrifstofur AlJ*ýðu- flokksins í Alþýðuhúsinu verða opnar fram yfir kosn ingar frá kl. 9—22 alla virka daga, sunnudaga frá kl. 14 —18. Símar: 15020-16724- 19570. Skrifstofan veitir upp- lýsingar um kjörskrá, aðstoð við utankjörfundaratkvæða greiðslu og annað varðandi bæjar- og sveitarstjórnar- kosningarnar 22. maí nk Þeir stuðningsmenn A1 þýðuflokksins, sem vUja starfa fyrir hann á kjördegi eða við undirbúning kosning anna fram að þeim tíma, eru beðnir urn að skrá sig hið fyrsta. Jafnframt er tek ið á móti framlögum í kosn ingasjóð á aðalskrifstofunni. Utankjörfundarkosning er hafin og er afar nauðsyn legt að allt Alþýðuflokksfólk hafi samband við skrifstof- una og gefi henni upplýsing ar um það fólk, er verður fjarverandi á kjördegi. ■Jr Utankjörfundarkosning fer fram hjá bæjarfógetum sýslumönnum og hreppstjór um. Þeir sem dvelja erlendis á kjördegi geta kosið í sendi ráðum fslands og hjá þeim ræðismönnum, er tala ís- lenzku. f Reykjavík fer ut ankjörfundaratkvæða greiðsla fram í Búnaðarfé- lagshúsinu við Lækjargötu. Þar er opið virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22. sunnudaga 14—18. WMWtWWtWMWMWMMWMMWM%MWMWMWMWMW%WtMV ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 3. maí 1966 JLÍ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.