Alþýðublaðið - 15.05.1966, Side 7

Alþýðublaðið - 15.05.1966, Side 7
Matthías Johannessen: FAGUR ER DALUR Reykjavík, Almenna bókafé- lagið 1966. 150 bls. „Sálmur” segir orðabókin að merki „trúarljóð, andlegt kvæði til söngs við guðsþjónustu.” Lík- lega er þessi skilgreining full- nægjandi, minnsta kosti íslenzku þjóðkirkjunni sem virðist telja hvers konar sönghæf andleg ljóð til sálma. Hvað um það? Sálmar Matthíasar Johannessens á atóm- öld, fyrsti þátturinn í nýrri ljóða- bók haus, eru áreiðanlega ekki ætlaðir til kirkjusöngs. En sem „sálmar” hljóta þcir að fela í sér einlivers konar guðfræðilega útleggingu, persónulega trúarjátn- ing skáldsins, eigin guðfræði hans ef ekki vill betur til. Þetta eru „andleg ljóð” á nútímavísu, skáld- ið á einmæli við drottin sinn í stað þess að tala til hans fyrir munn trúandi safnaðar. Sálmar á atómöld er flokkur 49 stuttra, órímaðra ljóða og hefjast með þessu: Líf mitt bátur gisinn af sól og löngu sumri. Og hafið bíður. Án þess að eiga annars kost sigli ég yfir hafið í þínu nafni. — en lýkur með þessu, einum 50 blaðsíðum síðar: Eins og bráðin lamast í kjafti villidýrsins og skelfist ekki lengur, þannig tekur þú frá okkur óttann og kvíðann þegar við liggjum varnarlausir í gini dauðans og bíðum — Þessir einföldu textar reyna til að gæða hversdagsmál og -athug- anir einhvers konar Ijóðvídd, leita sér að einstigi á mörkum ljóðs og prósa i líkingu við það sem Jóni úr Vör hefur tekizt í sínum Ijóðstil; hinn einfaldi, einræði stílsháttur Jóns hefur reynzt ýms- um yngri skáldum sérlega áhrifa- rikur. En ég fæ ekki séð að Matt- liíasi Johannessen takist þessi til- raun. Ég hlýt að játa að þessir textar orka yfirleitt ekki á mig sem skáldskapur né þykir mér guðfræði þeirra áhugaverð; mér virðist ljóðmál Matthíasar eirtatt leysast upp í lakán prósa þar sem hann íreistar „andlegra” átaka. Beztur er hann þar sem hann orðar nógu einfalda staöhæfingu einföldum orðum, eins og í fyrra dæminu sem hér var tilfært, en hinar langsóttari lfkingar hans verða oft furðu klúðraðar, svo sem hugmyndin um dauðann sém villidýrsgin drottins - hér að óf- an. Matthías hefur glöggt auga fyrir ýmsum aaglegum fyrirburð- um, en það sem hann hefur að segja berum orðum um guð sinn og drottin sinn, afstöðu manns og puðs innbyrðis, virðist sjaldan ómaksins vert: .... sii hugsun hefur hvarflað að mér að við séurn ekki vaxin upp úr því að umgangast þig eins og ungbörn pelann sinn. Erum við maðkarnir í mosa tilverunnar? Samt er jörðin fegursta tréð í garði þínum, en þó gamalt fólk segi að við séum gerð í þinni mynd hefur su hugsuit hvarflað að mér að við séum ormarnir í laufinu. Sálmatækni Matthíasar, fyrst brugðið upp hversdagslegri mynd eða athugun, en síðan lögð út and- leg líking hennar, reynist honum erfið í rrieðförunum; einatt væri til bóta ef útléggingin væri klippt aftan eða undin ofan af textan- um. Þetta er til að mynda ekki óskemmtileg hugmynd út af fyrir sig: Mér iíður illa ef ég mála ckki segir ungur listmálari í blaða- viðtali, en mér líður illa ef hann málar sagði' ég við sjálfan mig og virti fyrir mér málverkin hans. En enginn málspartur er nokkru nær þó þessu sé haldið áfram si- svona: Þannig er allt afstætt og af engu í tilverunni hægt að taka mið eins og karlarnir gerðu þegar þeir lögðu grásleppu- netin í stefnu á Jökulinn. Allt er afstætt. nema mið karlanna og kærleikur þinn. Og nóg er úm hliðstæð dæmi1 í flokknum — núnter 12, 22, 27, 28, til dæmis. Þetta eru, hvað með öðru, dæmi þess að hin and- lega viðleitnin sé ofaukin textan- um; athugun jarðneskra hlutá óg fyrirbæra lætur skáldinu betur en íhugun og útlegging þeirra eins og ýmsar hugmyndir, ath'ug- anir, hendingar hans bera vitni. Það má ætla að með hlífðarlauS- um niðurskurði, cinbeitingu efn- isins hefðu Sálmar á atómöld get- að orðið álitlegri skáldskapur. Matthías Johannessen er gefn- ari fyrir að yrkja langt en skamnit, Ijóðaflokka fremur en einstök kvæðl. í Fagur er dalur eru tveir samfleyttir flokkar aðrir en Sálm- ar á atómöld, Goðsaga og Frið- samleg sambúð nefnast þeir; og hinir þrír þættir bókarinnar, Ó, þetta vor, Myndir í hjarta mínu, MatthiaiS Jáhannessen Hér slær þitt hjarta, land, virð- ast nónast brot eða drög slíkra bálka. Af öllum þessum kveðskap virðist mér Goðsaga sýnu mest og markverðast kvæði og raunar bezta verk Matthíasar sem ég hef séð. Hér lánast honum til meiri hlitar en í Jörð úr ægi, því skóld verki sínu sem helzt nær móli hingað til, að gæða Ijóð sögulegri vídd, efla mál sitt fornri orðlist, skírskota nútíð til fortíðar. Við sem lifum við sem þreyjum þessa löngu ísöld við' sem vorum send í kaupstað og vitum ekki lengur hvað við . áttum að kaupa, kveður Mattliías við samtíð sína, og hér eitt þessi orð ekki aðkomu- glósa en lífræn ályktun kvæðis; hér auðnast honum allt annað hljómfall, máttugri og myndugri hreimur málsins en ellegar í bók- inni. Af einkunnarorðum Goðsögu mó ætla að dulúðug mælska kvæð isins, sem sker sig merkilega úr bókinni, sé innblásin á einhvern hátt af gríska nóbelsskáldinu Se- feris; en þau tengsl er ég ekki fa>r að meta. Hvað sem því líður, og þrátt f.vrir dálitið brigðula smekkvísi, tekst honum hér a?) efla sér eigin skáldsýn úr sund- urlausum efnivið ljóðmálsinS, kynjuðu úr sögu og þjóðsögu, handan "hg heiman, frá Hómey og Njálu. Eins og endranær yrkir Matthf- as Johannessen margt um landiði, íslenzkt landslag, land sitt og okkar hinna. Lýsing þess hefui* einatt hálfgildings túristablæ I ljóðum hans, eins og kann aÍ3 vera eðlilegt um borgarbúa á 20stu öld; að þessu leyti er fróð- legt að bera verk Matthíasaý saman við kvæði annars skálds, Þorgcirs Sveinbjarnarsonar será einnig yrkir um landslag, innblás inn af því. Tilfinning skáldsins ei* samgróin landslaginu sem hann lýsir, heimamaður þar, í ljóðum Þorgeirs; hjá Matthíasi verður landslagið einatt útleggingar- efni, vísað til þess að staðfestá meinta tilfinningu skáldsins. En i Fagur er dalur fer hann að vísu H*:. haglegar með landslagsstefið en oft áður, ti! að mynda í Friðsanx: legri sambúð, þriðja ljóðaflokkn- um í bókinni. Hann mun eiga atj fjalla um „tímann” á svipaðari hátt og fyrsti flokkurinn fjalli um „guð”: en ekki fæ ég séð að Matthías skyggni samtíð síná skáldlegri skilningi þar en guðj dóminn áður. Hins vegar eru i þessum þætti bókarinnar einstök kvæði betttr ort en hinum fyrr|| fastari í formi þó meiri öguri mundi ekki skaða skáldið frémuf en fyrri daginn. En liér er fallegí ur skáldskapur saman við: i' Landið vaknar, | hríslurnar opna græn augu, ■[ sólin speglar sig í syfjuðum firðinum | frameftir kvöldi, koílan lúrir íi k í notalegum sandinum og blikinn eins o'g hrúðraði| steinar j í meinlausu fjöruborðinu, \ landið vaknar, sjór gjálpar við strönd, sumS arlegur j þytur í mónum. Löng nótt að baki. Framhald á 10. síðu. j hvert sem þér faríð ferðatrygging ALMENNAR TRYGGINGAR W PÓSTHÚSS.TRÆT1 9 SÍMI 17700 •ÁLÞÝÐUBLAЮ - 15. maí 1966 7

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.