Alþýðublaðið - 26.05.1966, Qupperneq 8
■X.
■ * ■
■
Það er ekki amalegt að fá fallega mynd af sér.
VOR. Fyrstu fíflarnir eru núna fyra t að koma í ljós á túmmum, þó að júní
sé næstum kominn, og þegar þessi gulu, fallegu blóm opna krónur sínar, vitum
við að sumarið er að koma. Og það er svo margt annað, sem boðar sumarið.
Lítil, nýfædd lömb hoppa og skoppa um túnin. Sum eru hvít, sum svört, sem eru
bæði hvít og svört, kápótt, flekkótt. Lömbin virðast ímynd sakleysisins eins og
allt ungviði. í augum þeirra speglast traust, sakleysi og forvitni, þegar þau
horfa til félaga sinna, mannanna, sem hafa svo mikil afskipti af þeim.
Við Breiðholtsveg í Reykjavík
rétt fyrir ofan Blesugrófina er lít-
il ,,borg“, sem heitir Fjárborg
Gata liggur þar í gegn og til beggja
hliða eru lítil hús, fjárhús. Afgirt
svæði er í kringum húsin.
íbúarnir í Fjárborg eru fé borg-
arbúa. í góða veðrinu á mánudag-
inn fórum við í heimsókn í Fjár-
borg. Strax og komið var að neðstu
fjárhúsunum við götuna, sáum við
einmitt það, sem við fórum sér-
staklega til að sjá, litlu, nýfæddu
lömbin. Þau voru mörg og voru
að hoppa um túnið fyrir utan
fjárhúsin. Sum lágu í grasinu hjá
mæðrum sínum og nutu góða veð-
ursins. Alltaf öðru hvoru þurftu
þau að fá sér að drekka og sugu
mæður sínar í ákafa, en þær gættu
vel hver að sínum barnahóp.
Þegar við gengum upp götuna,
komu alltaf nokkrar forvitnar
kindur út að girðingunni til þess
að fylgjast með, hverjir væru á
ferð. En ef við.komum nær, voru
margar snöggar í burtu frá girð-
Þetta litla, hvíta lamb lá í makindum undir liúsvegg og kærði
sig koilótt um gestina í Fjárborg.
ingunum aftur.
í einu innsta húsinu við götuna,
hittum við Hjalta Benediktsson,
brunavörð, en hann á um 20 ær
í Fjórborg, og var nú kominn til
að huga að fénu.
Við fengum að líta inn í fjárhús-
ið og komum einmitt í þann
mund, er ein ærin var að bera.
Hún var tvílembd og var fyrra
lambið þegar komið í heiminn.
Bæði voru lömbin hvít með svört-
um flekkjum og hvort tveggja
hrútar.
I öðru horni í fjárhúsinu var
Lambið í burðarliðnum.
Ærin hugar að afkvæmi sínu eftir burðinn.
'■!6. maí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ