Alþýðublaðið - 05.07.1966, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 05.07.1966, Blaðsíða 5
Danir sigruðu auð- veldlega 3 gegn engu Danir voru ekki sérstakir og íslendingarnir lélegir Fyrsti landsleikur íslands fyrir leikmenn yngri en 24 ára var leikinn á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Veður var ljómandi gott og áhorfendur fjölmargir. Flest ir bjuggust við skemmtilegri við ureign, þar sem álitið var að ís lenzka liðið væri nokkuð sterkt. En það fór á annan veg, leikurinn í heild var lélegur af íslands hálfu, þó fyrri hálfleikur væri all góður. Danir voru ofjarlar okk ar og áttu sannarlega skilið að sigra, þó þeir sýndu alls ekki neinn sérstakan leik. Fyrri hálfleikur 0—0. ísland byrjar með knöttinn og hefur sókn sem endar með horn spyrnu, en ekkert varð úr henni- Leikurinn var nokkuð þófkenndur fyrstu 10 mín. en úr því lifnaði heldur yfir honum. Á 11. mín. eiga Danir gott skot að marki en Guttormur ver vel Skömmu síð ar fær Hermann langa sendingu upp kant, leikur á h. bakvörð Dana og inn að marki, en eng inn hafði fylgt eftir og Danir hreinsuðu í horn. Um miðjan ^álfleik er hætta við íslenzka markið, hinn snjalli h. útherji Dananna Kildemos er með knött inn og gefur fallega fyrir og skall að er að marki en Guttormur er vel á verði og kastar sér eftir knett inum og grípur hann. Næstu mín. sækir íslenzka lið ið fast en tekst ekki að skapa sér umtalsverð tækifæri. Á 35. mín. er mikil pressa á íslenzka markið og bjarga varnar menn hættulegum skotum þrívegis Skömmu síðan kemur föst spyrna utan af h kanti, sem Guttormur ver naumlega með því að slá knöttinn í þverslá og þaðan lirekk ur hann út á völl. Fleira mark vert skeðþ ekki í þessum hálfleik. ■Jc Síðari hálfleikur 0 — 3 ísland byrjar vel Hermann gef ur langan stungubolta á Hörð Markan, sem nær að skjóta en markvörður bjargar í horn, sem svo ekkert varð úr, Á 6. mín. er áukaspyrna á ísland á miðjum vallarhelmingi, gefinn er hár bolti fyrir, skallað er að marki, en enn einu sinni bjargar Guttormur í horn Á 15. mín kemur svo fyrsta markið, knötturinn barst af v kanti fyrir markið þar serp Marc ussen lagði hatin fyrir Jörgensen sem skoraði óverjandi fyrir Gutt orm. Skömmu síðar er Guðm. Har aldssón með knöttinn á miðjum velli og spyrnir góðum bolta að marki, en knötturinn smaug fram hjá Upp úr miðjum hálfleik er dæmd aukaspyrna á ísland og úr henni skora Danir 2—0 og var þar Jörgensen að verki aftur, en hann skallaði yfir Guttorm, sem sýni lega var blindaður af sólinni. Und ir lokin skora svo Danir 3—0 og var það Marcussen sem það gerði eftir að Anton hafði kiksað illí- lega. Liðin. íslenzka liðið var lélegt í þess um leik og brást algjörlega tiltrú áhorfenda. Stjörnur liðsins brugð ust algjörlega, en beztu menn liðs ins voru Guttormur í markinu sem oft varði mjög vel og verður hann ekki sakaður um mörkin. Lá átti Anton góðan leik sérstak lega í fyrri hálfleik. Aðrir eru varla umtalsverðir nema þá helzt Hörður Markan og Magnús Jóna tans'on. Danska liðið sýndi þokkalegan leik og var sérstaklega áberandi hversu þeir voru miklu fljótari á knöttinn, en þeir íslenzku. Beztu menn liðsins voru Niels Andersen framvörður og Kildemos h. útherji . Einnig var Bent Jen^en góður. Dómari var skoskur W. Mullen og dæmdi hann allvel. Línuverðir voru Hannes þ. Sigurðsson og Guð mundur Guðmundsson. Hætta við islcnzka markið, en Guttormur bjargai’. Kyleifur og Dani berjast um boltann. DAVIÐ SETTITVÖ ÍSLANDSMET Davíð Vaigarðsson, ÍBK, setti tvö íslandsmet í sundi á innan- félagsmóti í Sundlaug Vesturbæj- | ar á föstudaginn. Hann synti 400 m. skriðsund á 4:37.4 mín. — og i millitími lians í 300 m. var 3:26,4 j mín., sem einnig er betra en gamla 1 mctið. Gömlu metin átti Guðm. Gislason, ÍR, frá 1959, 4:38,5 mín. og 3:26,4 mín. Þetta voru elztu ís- landsmetin í sundi, þ.e.a.s. í ein- staklingsgreinum. DRÆTTI j Happdrætti Fram hefur verið frestað um 10 daga, 1 eða til 15. júní, þar sem full skil hafa ekki enn borizt. Vinnings- númerin munu birtast í dagbiöð- unum þann 16. júlí. Á sunnudagin nvoru háðir fyrstu tveir leikirnir í 3. deild íslands- mótsins í knattspyrnu. Þetta er í fyrsta sinn, sem keppt er í 3. deild hér á landi. Á Sauðárkróki sigraði Umf. Ölf- usinga Ungmennasamband Skaga- fjarðar með 1 marki gegn engu. Á Selfossi sigraði Umf. Selfoss Umf. Skallagrím með 8 mörkum gegn 2. Úrvaisliö frá Fjóni væntanlegt ínótt í nótt var væntanlegt til Re.vkjavíkur úrvalslið knatt spyrnumanna frá Fjóni (FBU) á vegum KRR. Liff- ift leikur hér þrjá leiki, þann fyrsta annaft kvöld vift úrvals 170’ KRR. Nánar um heim- sóknina á morgun. Breiöablik vann Þrír leikir fóru fram í 2. deild um helgina. Breiftablik vann ísfirðinga meft 3:1, KS, FH meft 2:1 og Vestmannaeyj ingar íþróttabandalag Suftur- nesja meff 3:1. UHMHHWMWMWMUtMW Sigurgeir Sigurjénssðn Málaflutningsskrifstofa Óffinsgötu 4 - Síml U04S. Eyjólfur K. Sigurjópssom Inggiltur endurskoffandl. ' Flnkagötu 65. — Sími 1790»,! : Áskriftasíminn er Í4900 1 ’ \*i* i ALÞYÐUBLAÐTE) - 5- júlí 1966 5.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.