Alþýðublaðið - 12.08.1966, Side 1

Alþýðublaðið - 12.08.1966, Side 1
 WS^Ú^' Brann og sökk Rvík. - OTJ. VÉLBÁTURÍNN Fram AK-58 brann og sökk vestur af Eldey f sær, en áhöfnin bjargaðist öll. Ekki er vitaS um upptök eldsins, en þau bar svo brátt aö og- hann magnaðist svo fljótt aö skipstjór- 'inn fékk eltki ei iu sinni ráðrúm til að drepa á vélinni áður en hann varð að yfirgefa stýrishúsið. Jón Jónsson, skipherr* á Þór, sagði blaðinu að varðskipið hefði verið statt við Selvog kl. 6.57, þegar því barst neyðarkaiiið í gegnum Vestmannaeyjaradíó. Var þegar sett á fulla ferð og jafn- framt haft samband við m b. Sig urbjörgu sem var í nánd við Fram og var lögð af stað til hjálpar. Meðan Þór nálgaðist hinn brenn andi bát voru kallaðar út frívakt ir og allir lausir menn, og slökkvi starfið undirbúið þannig að þegar varðskipið kom ó staðinn var þeg ar lagst að Fram og tekið að dæla á eldinn úr fjórum sjódæl- um auk þess sem kolsýrlingstækj um var beitt. Mikill eldur var þá í Fram og stýrishúsið fallið niður öðru megin. Skipverjar höfðu þá þegar bjargast á eigin björgunar bát yfir í Sigurbjörgu. Um tíma leit út fyrir að varð- skipsmönnum myndi takast að ráða niðurlögum eldsins, en þá allt í einu blossaði hann upp að nýju og var svo magnaður at Framhald á 14. síðo VILJA AUK-A OG EFLA TENGSL LANDANNA Utanríkisráðherra ísraels, hr. Abha Eban kom ásamt eigin- konu sinni í opinbera heimsókn til íslands dagana 9.—12. ágúst 1966 í boði ríkisstjórnar íslands. Utanríkisráðherrann átti við töl viS forseta íslands, forsæt- isrrðherra og utanríkisráðherra. í samræðum þessum kom fram ánægja með náin sam- skipti íslands og ísraels enda byggjast þau á góðri vináttu og gagnkvæmum skilningi. Utanríkisráðherrarnir athug- uðu á ný tengsl lanianna. á sviði efnahags- og me.uningarmála- og ræddu um möguleika á þvl að auka þau og efla. í umræðum sinum um alþjóSa mál létu báðir utanríkisráðherr arnir í Ijós, að þeir vildu halda áfram því samstarfi, sem lönd in hafa haft með sér innan Sam einuðu þjóðanna um eflingu friöar í heiminum. Vilja þeir áfram stuðla að hverskyns ráð stöfunum í þá átt aö slaka á spennu í veröldinni. Telja báðir sem fyrr, að öll deilumál þjóða í milli beri að jafna með samn ingum i samræmi við stofnskrá Sameinuðu þjóðanna og á grund velli gankvæmrar virðingar fyr ir sjálfstæði þjóðanna og frið h.etgi landa þeirra. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 11. ág. 1966. ISRAEL VEITIR 29 AFR / \ Rvík. - GbG. Á FUNDI með blaðamönnum síðdegis í gær fór Abba Eban, utanríkisráðherra ísraels, nokkr- um orðum um heimsókn sína til íslands og mótttökur hér. Hann kvaðst hafa haft mjög ánægju legar viðræður við forseta ís- lands, forsætisráðherra og utan- ríkisráðherra. í þessum samræð um, svo og öðrum kynnum við íslendinga, hafi komið fram mjög svo sameiginlegur - skilningur þessara tveggja smáþjóða á heims vandamálunum og mjög svo greinilega hafi verið undirstrik- aður sá andi, sem ísland hefði ævinlega sýnt ísrael, allt frá 1947, er ísrael var á dagskrá Sameinuðu þjóðanna og notið þar og ævinlega síðan eindreg- ins stuðnings íslands. Um sam- stöðu þessara tveggja þjóðlanda hefur verið gefin út sérstpk yf- irlýsing og birtist hún á öðrum stað í blaðinu. Abba Eban sagði, aö smáþjóðir eins og ísland og ísrael hefðu ævinlega efst í huga von mann- kyns um frið. Þessum þjóðlönd- um réðu lýðræðissinnr.ðar ríkis- stjórnir, og á löndum-m báðum hvíldi sú skylda, að túlka lýðræð ið, útfæra það og vernda af q11- um mætti. ísrael er ungt ríki í sinni nú- verandi mynd, eins og öllum sr kunnugt. Þó má lesa í handb ik Sameinuðu þjóðanna, að hvað snerti efnahagslega velmegun 1971, verði ísrael þar efst á lista þjóðanna. Dugnaður og bar- áttuþrek þessara sérstæðu þjóð- ar er öllum kunn. Utanríkisráð- herrann sagði, að ofsóknir á hend ur Gyðingum hefðu dáið út með Hitler, en þrátt fyrir það væru til aðilar, sem vildu reyna að koma í veg fyrir viðskipti við tsrael og enn væru vandamál Framhald á 15. síðu. Frá blaliamannafundi í Ráð- he.rrabústaðnum í gær: Abbe. Eban utanríkisráðherra ísra els er 3. frá hægri; 5. frá hægri er fyrrverandi ambassa dor ísraels hjá Sameinuðv. þjóðunum, næstur honum er stjórnmálafulltrúi utanríkis ráðherrans og vinstra megin við miðju er ræðismaður ísraels á íslandi. I V

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.