Alþýðublaðið - 17.08.1966, Blaðsíða 11
1
fcs RitstjórTÖrn Eidssonj
íslandsmeistarar HF í úti ajidknattleik karla 1966.
FH varð fslands-
meistari í II. sinn
Akranes sigraði
Akranesi, 14. ág. Hdan.
Akurnesingar léku við Breiða
blik úr Kópavogi í Litlu bikar
keppninni á sunnudag og fór leik
urinn fram á Aki-anesi. Leiknum
láuk með sigri Skagamanna sem
skoruðu 5 mörk gegn 0 og gat
sigur þeirra orðið mun stærri eft
ir gangi leiksins. Guðjón Guð-
mundsson skoraði fyrsta markið
í leiknum. Fékk hann knöttinn
úr útsparki frá Helga Daníelssyni
sem lék með Skagamönnum þenn
an leik, og hljóp af sér varnar
menn Breiðabliks og sendi knött
Bikarkeppni FRI
í grein um Bikarkeppni FRÍ í
gær gerði prentvillupúkinn okkur
nokkrar skráveifur Niður féllu
nöfn og afrek þriggja aðila. Fríð
ur Guðmundsdóttir, ÍR varð 3.
í kúluvarpi með 8,60 m. Sveit HSH
varð fimmta í 1000 m. boðhlaupi
á 2:07,8 mín., sem er héraðsmet.
Loks varð Edda Hjörleifsdóttir,
HSH sjötta i spjótkasti með 19,23
m.. í iangstökki er Sigurður Frið
riksson sagður í HSK, en hann
er í HSÞ. Loks er Rakel Ingvars
dóttir, HSH sögð Infarsdóttir í
80 m. grindahlaupi. Að lokum féll
niður umsögn um hástökk Sigrún
ar Sæmundsdóttur, HSÞ í hástökki
en hún vann ágætt afrek, stökk
1,47 metra.
inn örugglega í netið. Síðan hætti
hann öðru marki við eftir góða
sendingu frá Matthíasi. Var stað
an 2:0 í hálfleik.
Snemma í síðari hálfleik skorar
Matthías og um miðjan hálfleik-
inn er dæmd vítaspyrna á Breiða
blik, sem Helgi Dan. tók og skor
aði örugglega. Guðjón skoraði svo
síðasta mark leiksins og lauk hon
um því með sigri Skagamanna
5:0.
Leikinn dæmdi Tómas Run-
ólfsson.
Þá fóru fram leikir í 4. og 5.
flokki milii sömu aðila og unnu
Skagamenn þá báða með yfirburð
Framhald á 10. síðu
tWMWWMWWWWMWWWM
Næstkomandi sunnudag
hefst Evrópumeistaramót í
sundi í Utrecht í Hollandi.
ísland sendir tvo þátttakend
ur til mótsins, þá Guðmund
Gíslason, ÍR og Davíð Val-
garðsson, ÍBK. Guðmundur
keppir í 200 m flugsundi og
400 m. fjórsundi, en Davíð
í 400 og 1500 m. skriðsundi.
Farastjóri og þjálfari vérð
ur Torfi Tómasson, en Sig-
geir Siggeirsson og Torfi
munu einnig sitja þing al-
þjóðasambandsins, sém verð
ur háð um leið og mótið.
Þeir félagar fóru utan í
morgun.
WMWWWMWW*WMWMWWWI
VaJur varð íslands-
meistari í kvennafl.
Enn einu sinni sýndu FH-ingar
og sönnuðu að þeir.eiga á að skipa
lang sterkasta handknattleiksliði
landsins. Þetta kom bezt í ljós á
útimótinu, en þar sigraði FH í
11. skipti í röð. Lið FH í þessu
móti var að miklu leyti skipað
nýliðum, sem stóðu sig með mestu
prýði, en auðvitað voru gömlu
kempurnar stoðir liðsins. í mót-
inu léku FH-ingar án Ragnars, Arn
ar og Páls og Guðlaugs. Svo að
einhverjir séu nefndir og sýnir
þetta hve mikilli breidd FH ræður
yfir.
Úrslitaleikurinn FH — Fram
á sunnudaginn, yar mjög skemmti
legur og vel leikinn.
FH-ingar tóku forystu í upphafi
2:0 en Fram jafnar 2:2, FH nær
tveggja marka forskoti en enn
jafnar Fram, FH kemst í 6:4, en
síðasta mark hálfleiksins skora
Framarar og staðan var 6:5 fyrir
FH. í seinni hálfleik ná FH-ingar
mjög góðum leik og komast í
11:6, en þú taka Framarar að elta
fyrirliða FH Birgi Björnsson og
reyna að taka hann úr umferð og
jafnast þá leikurinn, en er ca. 3
mín. eru til leiksloka reyna Fram
arar „maður gegn manni” aðferð-
ina, en hún brást og sigur FH
var fyllilega verðskuldaður 14:10.
Lið FH lék mjög létt og
skennntilega og var vörn liðsins
sérlega sterk, eins og sjá má af
því að af 10 mörkum Fram skor
uðu þeir 5 úr vítaköstum .Beztu
menn FH voru Kristófer í mark ,
inu, og ættu margir yngri mark
verðir að taka staðsetningu hans
sér til fyrirmyndar. Af útispilur
unum bar mest á Birgi Björnssyni,
sem hefur verið bezti maður liðs
ins í þessu móti, en Birgir varð
nú útimeistari í 11. skipti í röð.
Þá sýndi Jón Gestur afbragsleik,
Geir og Gils voru líka góðir.
Hjá Fram voru beztir þeir Guð
jón og Ingólfur og enda Þorgeir
í markinu, annars er liðið alltof
þungt og leikur ekki nógu hratt.
Flest mörk skoruðu fyrir FH
Birgir 6, fyrir Fram Gunnlaugur
7 (5 víti).
í kvennaflokki léku Valur og
Fram til úrslita. Valsstúlkurnar
unnu verðskuldaðan sigur skor-
uðu 9 mörk gegn 5. Staðan í hléi
var 5:3 fyrir Val. Lið Vals lék án
Sigríðar Sigurðardóttur, en það
virtist breyta litlu. Framliðið er
í framför og á áreiðanlega eftir
að ógna Valsliðinu í vetur.
í 2 flokki kvenna sigraði Valur
Ármann í úrslitaieik með 6 mörk
um gegn 2.
FÉLAGSLÍF:
I nnanfé lagsmót.
í 100 m. hlaupi 800 m. hlaupi,
langstökki og kúluvarpi sveina og
drengja kl. 8 annaðkvöld á Mela
vellinum. — FÍRR.
Seljum næstu daga
ýmsar geröir af
Kvenskóm
frá Frakklandi og England fyrir krS 298.-
Ennfremur ýmsar gerðir kvensandala og
töfflur fyrir mjög Iágt verð.
Skóval
Austurstræti 18 Eymundssonarkjallara.
\
ALÞÝOUBLAÐIÐ - 17. ágúst W66 JJ>