Alþýðublaðið - 03.09.1966, Síða 3

Alþýðublaðið - 03.09.1966, Síða 3
Bárður Daníelsson, Agnar Kofoed Hansen og tékkneski listflugmaðurinn Hulka. (Mynd: JV.) Félag íslenzkra einkaflug- manna fær nýja listflugu Bvík, - ÓTJ. / Ein stórkostlegasta flugsýn- ing sem sést hefur hér á landi fór fram yfir Reykjavíkurflug velli í gærdag, þegar tékkneski listflugmaðurinn Hulka sýndi hina nýju listfluigu Félags ísl. einkaflugmanna. Á fundi með fréttamönnum sagði Bárður Daníelsson, verkfræðingur, for maður félagsins að fyrst hafi vaknað 'áhugi fyrir kaupunum á þessari vél, þegar Agnar Ko foed Hansen, flugmálastjóri kom til landsins fyrir nokkr um árum eftir að hafa verið í heimsókn í Ungverjalandi. Einn færasti listflugmaður Ungverja — og þótt viðar væri leitað — sýndi honum listir sínar í Trener Master vél, og Agnar varð svo hrifinn að hann fór strax á fuind ein^aflug manna þegar hann kom aftur. Tékkar eru orðnir þeir einu í heiminum sem eitthvað kveður að í smíði listflugvéla, og Tren er Master er talin ein sú hezta í heiminum. Með aðstoð Agn MWMHHMHHMIHMHMHW ars og tékkneska sendifulltrú ans fékk Félag ísl. einkaflug manna loforð hjá verksmiðjun um fyrir vél, en eftirspurn er geysimikil. Það fór þó ekki betur en svo að Frakkar hrifs uðu hana úr höndum íslend inganna svo að þeir fengu vél ina ekki fyrr en nú. Þess má geta að bæði Rússar, Frakkar og Bretar og Bandaríkjamenn nota Trener Master á öllum flugsýningum, sem þeir myndu áreiðanlega ekki gera ef þeir gætu fengið jafmgóðar vélar heima fyrir. Hingað komin kost ar vélin um 550 þúsund kr. og er þá frá dreginn 20% af sláttur. Þar sem félagið hefur Framhald á 15. síðu. Listflugan sýnir listir sýnar. (Mynd: JV.) Pnohn Penh 2. 9.' (NTB-reuter). Frakkland og Kambódía hvöttu til þess í dag, að undirritaður yrði alþjóðlegur samningur er ábyrgð ist hlutleysi Vietnam. Stjórnir land anna skora á alla deiluaðila að hætta styrjaldaraðgerðum i Viet nam og skuldbinda sig til að flytja burtu herlið sitt og virða sjálf stæði og fullveldi Vietnams. Charles de Gaulle forseti og þjóðhöfðingi Kambódíu, Norodom Sihanouk fursti löigðu þetta til í sameiginlegri yfirlýsingu sem géf in var út er þriggja daga opinberri heimsókn Frakklandsforseta ti] Kambódíu lauk í dag. De Gaulle hélt í dag til frönsku nýlendunn ar Nýju Kaledóníu á Kyrrahafi. í tilkynningunni segii-, að þrátt fyrir allan ágreining, sem aðskijji hin tvö riki Vietnam sé það fyrst og fremst íhlutun annarra landa. ✓ Alyktun frá kðup- félagsstjórum á Austurlandi FUNDUR kaupfélagsstjóra á Austurlandi haldinn að Hallorms stað 28. ágúst 1966 átelur harð- lega þá ákvörðun stjórnarvaldanna að ætla sér að selja eða leggja 2 skipum Skipaútgerðar ríkisins án þess að tryggð séu skip í staðinn. Álítur fundurinn að í stað þess að draga úr strandferðaþjónust- unni verði að bæta hana með myndarlegu átaki og bendir í því sambandi á eftirfarandi: 1. A0 byggja myndarlega vöru- skemmu í Reykjavík og styðja að bættum húsakosti afgreiðsl unnar úti á landi. 2. Byggja ný hentug skip til far- þega- og vöruflutninga. 3. Nota nýjustu tækni við út og uppskipanir og minnir í því sambandi á fyi'irmynd stór- bættrar þjónustu við sements- flutningana. Fundurinn telur að kaup strand ferðaskipanna hafi verið stórkost lega myndarlegt átak á síuum tíma, og ekki sæmandi nú við vax- andi þörf á flutningum að sporið sé stigið til baka. sem gert hafi það að verkum, að borgarastyrjöldin hafi þróazt í al þjóðadeilu og að bardagamir hafi komizt á núverandi stig. í Saigon sagði þróðhöfðingi Suð ur-Vietnam, Nguyen Van Thieu, í dag að hann vseri fylgjandi því að innrás yrði gerð í Norður Viet nam ef loftjirásir Bandarikja- manna byndu ekki enda á liðs- og vopnaflutningra kommúnista suður á bóginn. Hann sagði, að innrás mundi binda skjótan endi á styrj öldina. Svokalíað ráð þjóðarinnar og heraflans í Suður Vjet nam hvátti ejnnig til innrásar fyr ir nokkrum dögum. Bandrískar þotur gerðu árásir í gær á járnbrautina milli Hanoi og Kína og eyðilögðu hana á tíu stöðum. Alls hafa Bandaríkjamenn nú misst 350 flugvélar síðan loft árásirnar hófust. Skammt frá Sai gon biðu 12 manns bana og 10 særðust þegar sprengja sem Viet cong menn höfðu komið fyrir sprakk á skrifstofu einni þar sem fólk mætti til að rita nöfn sín á kjörskrá. Kosningar fara fram 11. september. Rússa vísað ur landi í USA WASHINGTON. 2. september. (NTB-Reuter). Bandaríska stjórnin hefur á- kveðið að vísa Valentin Revin, þriðja ritara sovézka sendiráðsins í Washington úr landi fyrir njósna tilraun. Að sögn formæianda ut- anríkisráðuneytisins reyndi Revin að komast yfir leynilegar upplýs- ingar hjá bandarískum ríkisborg- ara gegn greiðslu, en alríkislög- reglan (FBI) skarst í Ieikinn og kom í veg fyrir viðskiptin. Revin er 20. sovezki diplómat- inn, sem vísað hefur verið úr landi í Bandaríkjunum síðan í marz 1946. □ SINGAPORE: Utanríkisráð- herra Indónesíu, Adam Malik sagði í gær, að hann gerði ráð fyr- ir að Indónesía mundi sækja um upptöku í SÞ að nýju fyrir lok þessa mánaðar. Hve vænir verða dilkarnir í ár Reykjavík.i—GbG. NÚ ER margur farinn að renna auga til kjötbúðanna og gæla við þá hugmynd að fá nýtt lambakjöt í súpu. En á meðan við biíðum eftir að sauðir renni af fjalli er ekki úr vegi að rifja upp, hve miklu var slátrað í fyrra og hvernig búskapurinn stendur hjá okkur yfirleitt. í Búnaðarritinu, sem nýlega er komið út er frá því skýrt, að dilk ar hafi víðast hvar verið vænir í fyrra. Á landinu í heild reyndust þeir hafa 14,27 kg. meðalfall, eða 0,14 kg. léttara en haustið 1964, en á flestum sláturstöðum var fallþungi lamba mjög svipaður bæði árin. Mestu munaði á Blönduósi. Þar reyndust dilkar hafa 0,61 kg. léttara meðalfall, en árið 1964. Hustið 1965 var slátrað í slát- urhúsum 772.505 kindum, 718.228 lömbum og 54.227 fullorðnum kindum. Er það 85.741 kind fleira en árið áður. Heildarmagn kinda kjöts, sem barst til sláturhúsanna í fyrra var um 11 milljón kíló, eða nákvæmlega 11.361.922 kg. sem er 1.209.562 kílóum meira en árið áður. Nemur þessi aukn ing um 11,5%. í ársbyrjun 1965 var tala bú- fjár í landinu sem hér segir: Nautgripir: 59.751, þar af 41.464 kýr og 6.210 kvígur, VA árs og eldri, sauðfé var 761,927, þar af 631.452 ær, og hross voru 30. 727 talsins. Nautgripum fjölgaði á árinu um 4,4%, og sauðfé um 3,5% og hrossum um 4%. Mjólkurframleiðslan, þ. e. rnn vegin mjólk til mjólkursamlag-' anna, var 106.515.226 kg. eða um 6% meiri en árið áður. Aftur á móti nam aukning mjólkursöíu á sama tíma tæpum 2%. Jókstj því mjólkurframleiðslan nokkuð meú'a en æskilegt má teljast. < 3. sepember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐhÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.