Alþýðublaðið - 03.09.1966, Side 8
Deild fata og leðuriðnaöur
Næstu sýningarstúku hefur
Prjónastofan Iðunn. Þar eru sýnd-
ar dömu- og herrapeysur, einnig
barnapeysur úr odelon og ull og
ber þar mest á ýmsum gulum
litum.
Og enn sjáum við prjónles. Nú
er: það Prjónastofa Önnu Þórðar-
dóttur, sem sýnir, peysur í ýmsum
stasrðum og gerðum, einnig
prjónakjóla.
Hjá Verksmiðjunni Dúk rekum
við augun í tvö stór skilti, þar
sem stendur SLIMMA og KANT-
ERS. Og við spyrjum sölumanninn,
Birgi Brynjólfsson, eilítið um
þessi nöfn. — Verksmiðjan Dúk-
ur hefur framleiðsluréttindi hér
á landi fyrir fyrirtækið Slimma
í Englandi, þ. e. á fötum eftir
þeirra sniðum, einnig fáum við
efnin frá Englandi, og þegar þeir
kotna með það nýjasta, t. d. í
s hausttízkunni, veljum við það úr,
sem okkur hentar. Helztu fram-
leiðsluvörurnar nú í Slimma eru
buxnadragtir, sem einnig má fá
pils með, skólapils, stakar síðbux-
ur og vestissett. Slimma tízkan
er mest fyrir ungu stúlkurnar, en
Dúkur framleiðir einnig föt í
frúastærðum, bæði pils og síð-
buxur, svo dæmi sé nefnt.
Við höfum einnig framleiðslu-
rétt á Kanters lífstykkjavörum, en
Kanters er danskt fyrirtæki. Af
Kanters lífstykkjavörum fram-
leiðum við meira en 50 tegundir.
Og þegar við höfum skoðað
Slimma og Kantersvörurnar kom-
um við að þar, sem sýndur er
karlmannafatnaður frá Verksmiðj-
unni Föt. Þar eru bæði einlit föt
og teinótt úr flanneli og ullar-
efni.
Og hjá Vinnufatagerð íslands
kennir margra grasa, þar eru
gæruskinn, ýmsar tegundir sport-
og vinnufatnaðar, t. d. herra-
skyrtur, kjörbúðarsloppar
og vinnuvettlingar. Nýjung er
rúskinnsvesti fyrir herra loðfóðr-
uð. Fyrir litlu börnin eru svo
loðfóðraðir kerrupokar.
Nú höfum við skoðað þær sýn-
ingarstúkur, sem eru hægra megin
í salnum og nú þarf að ganga til
baka að sýningarstúku nr. 208, en
bar sýnir Leðuriðjan, sem um
bessar mundir hefur starfað í 30
ár. Fyrirtækið sýnir ýmsa hluti
úr leðri. töskur, seðlaveski, leður-
iakka og bókamerki með merki
Iðnsýningarinnar. Á veggjum hef-
ur verið komið fyrir tveimur
skinnum all óvenjulegum, annað
er strútsskinn, en hitt er af krók-
ódíl.
í skólanum, í skólanum, er
skemmtilegt að vera, hugsa börn-
in sjálfsagt. þegar þau koma að
næstu stúku, þar sem Leður-
verkstæðið Víðimel 35 sýnir
skólatöskur í öllum stærðum og
gerðum. einnig skjalatöskur,
belti o. fl.
Og svo eru það Kólibrí-sokk-
arnir, sem við komum næst að,
Æ
• 1
.
mwmm
■ ,
i,''
í,1
•; ;
' •• ' ' •
|p|pS:íS
j .
í
>■* %cj
Smm
► ^ ' ' -V
flWWWÍ
LEÐDRyERKSTÆe^
35. SiK! S65:
mmmm
RfYKJAYlK
$ÍMI 2SSYC-
ci
Zttttt
Trm
8 3. sepember 1966 - ALÞYÐUBLAÐIÐ