Alþýðublaðið - 10.09.1966, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 10.09.1966, Blaðsíða 2
 "•• " ■ ■ &í*-” •■. 'Xx' '■< 'y "■' ■' % -ww.fr ■■••' :•:<■: jjw Við Snorralaug lýsti prófasturinn í Reykhoiti staðnum og forsæt isráðherra var aíhent eintak af Heimskringlu. Rvk.—GbG. PER BORTEN, forsætisráð- tíerra Noregs, fór í gær um Hvalfjörð og sveitir Borgar- fjarðar í sólskini og blíðskap- arveðri. Forsætisráðherrahjón- in voru mjög hrifin af íslenzkrl náttúru og glæsilegum sveita- býlum Borgarfjarðar. Hval- skurður var sérstaklega settur á svið fyrir þau í Hvalfirði. Klukkan 9 árdegis lét varð- skipið Óðinn úr höfn í Reykja vík með forsætisráðherra Nor- egs og íslands, sendiherra og frúr þeirra og aðra fyrirmenn, auk fréttamanna og lögreglu-^ manna, úr höfn í Reykjavík og hélt áleiðis til Hvalfjarðar. Nokkuð var kalt í morgunsárið og strekkingur á Hvalfirðinum, enda þótt flaggskip strandgæzl unnar haggaðist hvergi. í Hvalfirði tók Loftur Bjai-na son, framkvæmdastjóri á móti gestunum með því að láta skera hval einn mikinn sem geymdur hafði verið í st"“ inni í tvo sólahringa til þ arna. Enda þótt forsætisr herra Noregs kvæðist hafa hvalskurð áður, hafði hann þessu mikið gaman og var spar á spólur í kvikmyndf ina sína. þar sem hann gra skoðaði ferlíkið. sjjji • • ' ■' /. ■' Frá Hvalfirði var ekið í 1 lést yfir Dragháls og ni Skorradal að Varmalai Hvasst var á Skorradalsva en snjór í Skessuhorni 01 Skarðsheiðinni. Ásgeir Péti son, sýslumaður, tók á n hinum tignu gestum, ás; Einari prófasti Guðnasvn Reykholti. í Húsmæðraskól um að Varmalandi var fr; rejddur miðdegisverður af i ílii rausn og smekkvdsi, en i Sfetisráðherra afhenti skól ;ni v ,/ • 1 ’ „Þetta eru beztu vínber, : ég hef smakkað“, sagði frú I étí að Varmalandi. Til ha er sendiherrafrú Anderopii . ijj'; um að gjöf fallega bók um Nor eg með handskrifaðri kveðju frá þeim hjónum. Á staðnum var litast um í gróðurbúsum, en sérstaklega athygli vakti svepparækt sú, er þar fer fram. í Reykholti flutti prófastur- inn ávarp við Snorralaug, en sýslumaður, Ásgeir Pétursson, afhenti herra Borten eintak af Heimskringlu Snorra. Forsætis ráðherra þakkaði í fáum orð- um, en síðan lýstu þeir staðn um og sögu hans, forsætisráð herra, Bjarni Benediktsson og prófastur af staðgóðri þekkingu Skólastjóri Reykholtsskóla sýndi gestum skólahús og önn ur mannvirki. í dag flýgur forsætisráðherra og fylgdarlið hans til Akureyr ar, en þaðan verður ekið til Mývatnssveitar. Á morgun verð ur ekið um Eyjafjörð og undir Við Snorralaug. kvöld flogið til Reykjavíkur. Á mánudag verður litazt um á Suðurlandi og farið að Srgi og til Þingvalla, en á þriðjudag halda forsætisráðherrahjcnin til Noregs heim á leið. Forsætisráðherra Noregs er hlýr maður í viðkynningu og svo er einnig um konu hans. Þau hafa lifandi áhuga á bú- skap og gjörþekkja kjör bónd ans og hins vinnandi manns. í viðtölum við þau kom gjörla fram, að þau voru ekki eins ó- kunnug á íslandi og búast hefði mátt við. En það bar mönnum saman um, að hóg- værð þessara tignu gesta, ein lægni þeirra og fágun, æíti sér fáa líka. Það er okkur-heiður, að mega sýna slíkum gestum land vort á haustdegi og fólk- ið, sem hér býr. Verwoerd jarð- settur í dag Pretoria 9. 9. (NTB-Reuter. Forsætisráðherra Suður-Afríku, dr. Hendrik Verwoerd, verður jarð settur í dag á kostnað ríkisins að viðstöddum fulltrúum hvítra íbúa landsins, tblökkumannn og kyn* blendinga. Einn fulltrúi blökku- manna verður Matanzima ættar höfðingi frá Transkei, fyrsta Nan turíkinu sem stofnað var samkv. apartheid lögum stjórnarinnar. Ekki er vitað hvort hvítir menn. og blökkumenn verða aðskildir við | útförina. Gripið var til strangra öryggis ráðstafana þegar morðingi Ver- | woerds, Dimitrio Tsafendas, mætti fyrir rétti í dag og var úrskurðað ur í fangelsi. Formælandi réttar ins sagði: „Við viljum ekki að sama hendi hann og Lee Oswald Lögreglan segir að Tsafendas hafi verið leiguþý erlendra afla. Aðrar óstagfestar fréttir herma að hann hafi verið kommúnisti. í fæðingunni Damaskus 9. 9. (NTB- Reuter.) Stjórnin í Sýrlandi tilkynnti í dag að hún hefði bælt niður enn eina byltingartilraun. Jafnframt var útgöngubanni' því sem fyrir skipað var um allt landið í gær aflétt. Her og lögregla voru í dag á verði á götum Damaskus og landamærin voru lokuð. í yfirlýsingu, sem lesin var í morgun í Damaskus útvarpinu og undirrituð var af Yousef Zeayen forsætisráðherra, sagði að samsær ið hefði verið brotið á bak aftur fyrir fullt og allt. Samsærismönn unum hefur verið útrýmt, sagði í yfirlýsingunni. Á þriðjudaginn bárust fyrst fréttir um byltingar tilraunina gegn stjórninni og þá var sagt að fyrrverandi leiðtog ar Baath-flokksins stæðu á bak vi'ð hana. Hryðjuverk í Brennerskarði Bolzano 9. 9. (NTB-Reuteer.) Tveir ítalslkir tollþjónar biðu bana og fjórir særðust þegai sprengja sprakk í skýli þeirra é landamærum Austurríkis í Brem erskarði í dag. Talið er að aust urrískir hryðjuverkamenn, seu berjast fyrir innlimun Suður-Tyi ól í Austurríki, liafi verið héi að verki. Tveir þriðju hinna 350,000 í- búa Suður-Tyról eru þýzkumæl- andi, en ítalir fengu Suður-Tyi ól eftir heimsstyrjöldipa fyrr: Leyniviðræður fara nú fram milli stjórna Ítalíu og Austurríkis un: aukna si'álfstiórn héraðsms. íta' ir halda bvf fram að sífelld hryðjr verk í Suður Týról séu skipi lögð í Austurríki. 2 10. september 1966 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.