Alþýðublaðið - 10.09.1966, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 10.09.1966, Blaðsíða 4
Rltatjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedlkt Grl'ndal. — PJtstjómarfull- trfil: EiBur GuBnason. — Símar: 14900-14803 — Auglýalngaslml: 14806. ABsetur AlþýBuhúslO vlB Hverftsgötu, Reykjavík. — Pr*ntsml8ja AlþýSu blaBslna. — Askriftargjald kr. 85.00 — 1 lausásölu Itr. 7.°0 etntakt®, XJtgefandl AlþýBunokkurlnH. Mál málanna SJONVARP ei mál málanna um þessar mundir. Yf- irmaður varnarliðsins hefur tilkynnt, að hann telji sig knúinn til að takmarka sendrngu Keflavíkurstöðv- arinnar við flugvöllinn og næsta nágrenni, og innan skamms hefjast sendingar íslenzka sjónvarpsins. Nokkrar deilur eru nú manna á meðal um ákvörð- un Weymouth aðmíráls. En hann átti engra kosta völ, eins og hann sjálfur benti á í bréfi sínu til utanríkis- málaráðherra. Dagskrá Keflavíkurstöðvarinnar er fengin ókeypis eða fyrir lítið verð hjá bandarískum framleiðendum sjónvarpsefnis. Þeir láta efnið í þeim tilgangi að það skuli skemmta bandarískum hermönn um, sem gegn3 skyldustörfum á afviknum stöðum. Hins vegar er skýrt tekið fram í fyrirskipunum varnarmálaráðuneytisins í Washington, að sjónvarps- stöðvar hersins megi ekki starfa fyrir annað fólk en hermennina. Þess vegna er ekki hægt að reka til lengdar sjónvarpsstöð með ókeypis efni fyrir 5.000 iAmeríkumenn og 100.000 íslendinga. ( Sjónvarpsefni er dýrt. íslendingar hafa um árabil jhoifð ókeypis sjónvarpsþjónustu, en það gat aldrei istaSið lengi. Nú verður þjóðin að leysa þetta vanda- mál á eiein spvtur eins og svo mörg önnur, og von- andi tekst það blessunarlega. Kpmmúnistar, sextíumenningar og fylgifiskar iþeirra eru að því er virðist líka reiðir út af þessum málalokum. Þeir vildu fvrir alla muni, 'að málið kæmi af stað deilu milli íslenzkra stiórnanvalda og Banda- ríkianna, og þeir ráðast á utanríkisráðherra, Emil Jónsson, fyrir svarbréf hans til aðmírálsins. Þessi við- brögð eru hin furðulegustu og sýna gruggugan mál- stað, að ekki sé meira sagt. Viðbrögð Emils og ríkis- stiórnarinnar voru fullkomlega eðlileg og sýna raun- hæft mat á staðreyndum. Nú hefst næsti kafli.þessa máls, íslenzka sjónvarp- ið. Þar erum við að ráðast í stórfyrirtæki — miklu stærra en flestir gera sér grein fyrir. Má að sjálf- sögðu búast við margvíslegum byrjunarerfiðleikum og mikið átak mun þurfa til að koma sjónvarpinu sem fyrst um land ailt. Hins vegar er rétt að minnast þess, að iingt og ágætt fólk hefur verið þjálfað til starfa við^jányarpið og það hefur hug á að skapa það í anda sinnar samtíðar. Auk heimafengis efnis verður án efa kevpt mikið af ágætu eriendu efni, þannig að imnándur Keflavíkursiónvarnsins verða ekki allslaus- ir. Mun raunar koma á daginn að góð fréttaþiónusta og íslenzk andlit verða til gagns og ánægiu auk þess be^fa úr erlendu sjónvarpi, sem á að fást með íslenzk- um textum. 4 10. september 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Frá hví hefur veriS sagt hér í blaSinu aff undan rnu, er norska ferjan Skagerak fórst. Á forsíff- unni í dag- er sagt frá björgunarafreki dönsku skól ípiitanna. Hér birtum við tvær myndir af þessu slysi. Á þeirri efri sjáum viff Skagerak og skip viff björgunarstarf. Á þeirri neffri sést einn farþegi sem tókst aff bjarga í björgunarbelti. ★ MIKIÐ RÆTT UM SJÓNVARPIÐ. Það hefur verið mikið rætt um sjónvarpsmálin, síðan yfirmaður varnarliðsins til- kynnti ákvörðun sína um að takmarka sendingar Keflavíkurstöðvarinnar við ílugvöllinn. Við höfum heyrt margar raddir hér í blaðinu, eins og venju- lega, þegar hitamál eru á ferðinni. Virðist svo í fyrstu, söm allir væru óánægðir — kanasjónvarps- vinir af því að þeir missa dagskrána og andstæð- ingar af því að ríkisstjórnin ekki bannaði stöðina. Okkar spá er þó sú, að þetta óveður hjaðni og eftir 6—8 vikur verði háarifrildi um dagskrá íslenzka sjónvarpsins, livort hún eigi að vera svona eða á hinn veginn. í mótmælum fólks gegn takmörk- un Keflavíkurstöðvarinnar bólar enn á þeirri gömlu skoðun, að það sé verið að banna fólki að horfa á sjónvarpið og þarmeð að skerða frelsi þess. Þetta er þó ekki kjarni málsins, heldur hitt, hverjir eigi að hafa íeyfi til að reka sjónvarpsstarfsemi í land- inu. Það er ailt annar handleggur og mun vanda- meiri en móttaka einstaklinga á sendingum. Danir horfa á þýzkt og sænskt sjönvarp og kemur engum til hugar að banna það. En það mundi þykja með öllu fráleit hugmynd, ef Danir ættu að leyfa Þjóð- verjum eða Svíum að setja upp sjónvarpsstöðvar á dönsku landi. Eins leyfa Danir ameríska hernum aff sjónvarpa norffur á Grænlandi, þar sem ekkert danskt sjónvarp er til. En kemur mönnum til hug- ar, að Danir mundu nokkru sinni leyfa Ameríku- mönnum að setja upp sjónvarpsstöð hjá Kalund- borg, sem næði yfir allt Kaupmannahafnarsvæðið? ★ MIKLAR ENDUR- TEKNINGAR. Það er von að um þetta mál sé deilt hér á landi, eins og það er til komið. Þó er eitt áberandi. Þeir sem sízt vilja missa Kefla- víkursjónvarpið eru yfirleitt nýlega búnir að kaupa sér sjónvarpstæki. Hinir, sem hafa haft sjónvarp í 2 ár eða lengur, eru miklu rólegri. Þetta stafar af því, að Keflavíkurstöðin endurtekur í sífellu svo til sama efnið. Það er skipt um hermenn í Keflavík á eins árs fresti, svo að þeim er sama. En viku eftir viku eru sýndar kvikmyndir og leikþættir, sem íslenzku áhorfendurnir hafa séð áður. Vonandi kemur íslenzka sjón- varpið með eitthvað nýtt.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.