Alþýðublaðið - 11.09.1966, Blaðsíða 1
Sunnudagur 11. september -- 47. árg- 204. tbl. - VERÐ 7 KR.
ríkisstyrkur
gatnagerðar
RÍKISFRAMLAG til þjóðvega
í kaupstöðum og kauptúnum hef-
ur á árunum 1964—’65 numið sam
tals 97,2 milljónum króna, að því
er Sigfús Ö. Sigfússon upplýsti
í erindi. á ráðstefnu um varan-
lega gatnagerð sem Samband ísl.
sveitarfélaga hélt fyrir nokkru. Er
þetta mikla framlag árangur af
nýju vegalögunum, sem ríkis-
stjórnin beitti sér fyrir í árslok
1963. Þetta framlag tæplega 100
Ný humargarn-
hreinsunarvél
tekin í notkun
Fréttamönnum var í gær boð }
) ið að sjá humarg-arnahreins i
1 unarvél, sem Siground Jóhanns .
son teiknari hefur fundið upp. <
Véi þessi muix spara mjög;
vinnukraft, með affstoð hennar 1
gcta nú fjórar stúlkur annað'
því, sem sextán stúlkur gerðu
áður. í
Vinnsla vélarinnar er að J
1 mesíu hljóðlaus, og er hún
1 driíin af einum gírmótor.,
Grind samstæðunnar er úr,
galvaniseruðum ,,prófílum“
milljóna á aðeins þrem árum er
ein af megin ástæðum fyrir hin
um miklu gatnaframkvæmdum,
sem bæirnir hafa ráðizt í.
Sigfús flutti ítarlegt og fróðlegt
erindi um þessi mól. Rakti hann
fyrst ákvæði hinna nýju vegalaga,
en þar var í fyrsta sinn hér ó
landi gert ráð fyrir beinum stuðn
ingi við gatnagerð kauptúna og
kaupstaða. Rennur ákveðinn hluti
af vegatekjum ríkisins til þessara
þarfa.
Af 97,2 milljónum runnu 10%
samkvæmt lögum í sérstakan sjóð,
sem á að, leysa algerlega sérstæð
vandamál á þessu sviði. Hefur
það fé, 9,7 milljónir, skipzt milli
Selfoss (3,2 milljónir) og Kópa-
vogs (6,5 milljónir), en á báð-
um þessum stöðum er mjög mikil
umferð í gegnum byggðina. Munu
34 þessa sjóðs renna til Kópavogs
fram til 1970 og allur sjóðurinn
nokkur ár eftir það til að greiða
niður hina dýru laghingu Hafn-
arfjarðarvegar um Kópavog.
Annars staðar nema framlög-
in 200 kr. á íbúa og verða bað upp
hæðir frá 60.000 krónum til 15,6
milljóna á hvert bæjarfélag.
Vietcong reynir að
spilla kosningum
SAIGON, 10. september (NTB —
Reuter) — Eins eg undanfarna dag
stóðu hryðjuverkamenn Vietcong
fyrir nokkrum árásum í ýmsum
stærri bæjum SuðurVietnam í
dag, en þó hefur tekizt að hefta
starfsemi Vietcongmanna nokk-
uð með ströngum öryggisráðstöf
unum. Aðeins einn maður hefur
beðið bana í síðustu hryðjuverk
unum.
Vietcongmenn hafa hótað að
spilla fyrir kosnimgum þeim, sem
haldnar verða á morgun til stjórn
lagaþings í landinu. Vietcong gaf
Framhald á 10. síðu.
25 þúsundasti gestur Iðnsýningarinnar kom síðastlh inn föstudag.
Hann heitir Óiafur Jónsson, Bræðraborgarstíg 13,t, og bHut hæg-
ind^stól frá Víði að vcrðmæti 12 þúsund krónur.
Rætt um VínlancS
á vísindaþi
Á vísindaráðstefnu, sem haldin
er í Notthingham í Englandi um
þessar myndir, hafa þátttakendur
í leiðangri þelm, sem stórblaðið
„Guardian“ gerði út í kjölfar Leifs
heppna, skýrt frá niðurstöðum sín
um. Einnig voru haldnir fyrirlestr
ar um landafundi víkiganna.
Prófessor Gwynn Jones frá Car
diff talaði um frásagnir íslendinga
sagna af Iandafundunum. G. Man-
ley, prófessor frá Lancaster, sagði
að ýmsilegt benti til þess að lofts
lag hefði verið hlýrra á Suðvest-
ur-Grænlandi fyrir þús. árum en
það er nú. Hann kvaðst eiga erfitt
með að fallast á að nýlendur vík-
inganna í Vesturheimi hefðu verið
í Nýfundnalandi og taldi ólíkl. að
þær hefðu veri-5 svo norðarlega.
Frú B. L. Wallace frá Carnegie-
safninu í Pittsburgh skýrði frá
fundi norrænna húsarústa.
R. L. Andersón, yfirmaður ,,Gu-
ardian“-leiðangursins, sagði að haf
ísinn sem hann og félaigar hans
mættu er þeir sigldu undan strönd
Grænlands, hefðu gert þeim kleift
að gera grein fyrir því hvaða leið
norrænu víkingarnir hefðu senni-
lega fylgt og styðja kenningu ]' 'ó
fessor Manleys um, að hafís heí )i
verið engu minni á þessum slóð-
um fyrir þúsund árum en nú. And
erson kvaðst telja ólíklegt, að Leif
ur heppni hefði numið land á Ný-
fundnalandi. Nýfundnaland væri
(Framhald á 7. Síðu).
Ný stjórn í
Egyptalandi
KAIRÓ, 10. september (NTB —
Reuter) — Mohamed Sidky Soli-
man, 47 ára, hefur verið skipaður
forsætisráðherra Arabíska sam-
bandslýðveldisins (Egyptalands) í
stað Zakaria Mohieddin, að sögn
Kairo-blaða í morgun. Blöðin
segja, að Nasser forseti hafi fall
izt á lausnarbeiðni Mahieddins
forsætisráðherra í gær og að ráð
herrar nýju stjórnarir,: r hxifi
unnið embættiseið í morjun
Hið áreiðanlega blað, „A1
Ahram“, hermir, að helzta verk-
Framh. á bls. 7,