Alþýðublaðið - 30.09.1966, Síða 4
»
JUtsyírar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedlkt Gröndal. — BiUtjómarfull.
trúl: ElBur GuSnasun. — Símar: 14900-14903 — Auglýslngasíml: 14906.
ABsetur AlþýðuhúsiO við Hverfisgötu, Keykjavik. — Prwatsmiðja AlþýOu
blaðsins. — Askriftargjald kr. 95.00 — 1 lausásölu kr. 7.00 eintakið.
tltgefandl Alþýðuflokkurinii.
Sjónvarp
ÞÁTTASKIL markast í íslenzku þjóðlífi með til-
komu sjónvarpsins’ sem hefja mun útsendingar í dag.
Sjónvarpið nær að vísu ekki nema til hluta þjóðar-
innar til að byrja með, en ærin ástæða er til að hraða
öllum framkvæmdum, er stuðla að því, að landsmenn
allir geti sem fyrst setið við sama borð í þessum
efnum.
Þótt allmörg ár séu liðin síðan fyrst voru gerðar
tillögur um sjónvarp hér á landi, hefur þó mest af
undirbúningsvinnu og framkvæmdum verið innt af
hendi á mjög skömmum tíma, eða 2-3 árum. Hafa
þar margir lagt hönd á plóginn.
Eins og útvarpið olli hér byltingu á sínum tíma mun
sjónvarpið gera það líka. Það mun vafalaust hafa í
för með sér margháttaðar breytingar á ýmsum svið-
um og það færir okkur nær umheiminum, þar sem
daglega mun gefast kostur á að siá heimsviðburðina
í myndum og máli. Sjónvarp er mikill menningarauki
þar sem því er réttilega og skynsamlega beitt, og eng-
in ástæða er til annars en að ætla að sjónvarp Ríkisút
varpsins muni hafa margvísleg heillavænleg áhrif á
menningu þióðarinnar. Eftir að siónvarpsmál komust
á döfina hérlendis mátti heyra einstaka hjáróma radd-
ir, sem andmæltu. sjó’nvarpi og töldu a£ því lítinn hag.
|>ær raddir eru nú hljóðnaðar.
#Menn hafa beðið með nokkurri óþreyju eftir að
sjónvarpið byrjaði starfsemi sína. Vonandi verða
flestir ánægðir með það sem þeir munu sjá, en erf-
itt verður þó að gera öllum til hæfis, og slíkt raunar
aldrei hægt í þessum efnum. Fyrst um sinn verður
um tilraunasjónvarp að ræða, en vonandi munu ekki
líða nema 2-3 mánuðir þangað til hægt verður að sjón
varpa sex daga vikunnar, eins og ætlunin er.
Það mun áreiðanlega ekki standa á gagnrýni á sjón-
varpið og dagskrá þess, en menn gerðu þó vel að
hafa í huga, að einhveriir byrjunarörðugleikar eru
óhjákvæmilegir> þótt starfsmenn sjónvarpsins leggi
§ig alla fram til að gera dagskrá þess sem bezt úr
garði.
Sjónvarpsdeild Ríkisútvarpsins er ung stofnun, sem
á vafalaust eftir að mótast og breytast á komandi ár-
um. Starfsliðið er að meginhluta ungt og áhugasamt
fólk, sem hlotið hefur góða þjálfun og er fullt af á-
huga og eldmóði. Það er því fyllsta ástæða til að
ætla að sjónvarpið e'inkennist af bví unga fólki, sem
þar starfar, og þar verði innleiddar nýjungar, farnar
ótroðnar slóðir og möguleikar þess sem fræðslu- .og
menningarmiðils nýttir til hins ítrasta.
Sjónvarpsstarfsemi er í eðli sínu dýr og úmfangs-
mikil. Vafalaust þarf að fjölga starfsfólki sjónvarps-
ins á næstunni, en slíkt þýðir ekki að setja fyrir sig.
Fyrst við höfum ákveðið að starfrækja sjónvprp
skulum við gera það af myndarskap og láta einskis ó-
freistað að gera það sem bezt úr garði.
Það er ónœgjuleg stað-
reynd, að framleiðslan
á Secure einangrunar-
gleri hefur vaxið hröð-
um skrefum fró því að
Fjöliðjan d ísafirði hóf
að framleiða tvöfalt
einangrunargler.
Kaupendum hefur fjölg-
að að sama skapi um
land allt.
FJOLIÐJAN • ISAFIRÐi
Eftirspurnin hefur
jafnon verið meiri en
framboðið og ber pað
vott um, að húsbyggj-
endur treysto pessari
framleiðslu.
Þar sem eftirspurnin er
svo mikil, sem raun
ber vitni, er nauðsyn-
legt að viðskiptavinir
okkar panti gler með
minnst 4ra tii 6 vikno
fyrirvdra.
Við sendum gler eflir pöntun hvert ó
iand sem er - á okkar eigin óbyrgð.
Glerið er enn á okkar óbyrgð meðan
smiðurinn er að festa það í gluggann.
5 óra ábyrgð er á gierinu gugnvart
hugsanlegam verksmiðjugalla.
Auk pess að framleiða
fyrsta flokks
einangrunargler,par sem
tekið er tillit til íslenzkra
aðstæðna, höfum við
œtíð lagt áherzlu á
góða pjónustu.
Útsölustaðir:
Reykjavik: Sandsalan v.Elliðavog (á mótum
Snekkjuvogs og Dugguvogs) Simi 30120.
Akureyri: Kaupfélag Eyfirðinga.
Vestmannaeyjar: Guðlaugur Stefánssan,
heildverzlun, Básaskersbryggju.
Akranes: Haraldur Böðvarsson & CO.
isafjörður: Fjöliðjan, Silfurgötu 6.
EHNFREMUR FLEST KAUPFÉLÖG UM
LAND ALLT.
á krossgotiim
★ KARTOFLUKV ORTUN.
ÞaS var sannarlega bálreið hús-
móðir, sem hringdi til okkar á ritstjórnina í fyrra-
lcvöld til að kvarta yfir kartöflunum, sem Græn-
metisverzlunin hefur nú til sölu í verzlunum.
Þessi liúsmóðir, sem býr í Aust-
urbænum, sagði, að kartöflurnar sjálfar væru góð-
ar og væri þa’ð nokkur nýlunda af hendi Græn-
metisverzlunarinnar, en hins vegar hélt hún því
fram, að þær væru greinilegar látnar hálfblautar
í plastpokana, sem þær eru seldar í til neytenda,
og þegar þær svo hefðu verið geymdar 1—2 daga
í verzlunum væri komin af þeim megnasta myglu-
lykt og þær jafnvel byrjaðar að mygla. Bauð hún
okkur að koma heim til sín og þefa upp úr ný-
keyptum plastpoka með kartöflum frá þessu fyrir-
tæki. Við höfðíim nú reyndar ekki ástæður til að
þiggja þetta ágæta boð, en höfum ekki minnstu
ástæðu tii að draga kvörtun þessarar húsmóður
í efa. Það virðist seint ætla að 'verða svo, að
Grænmetisverzluninni takist að gera neytendum
tíl hæfis og er þó áreiðanlegt, að íslenzkir neyt-
endur eru ekki kröfuharðir, og kippa sér ekki
upp við smámuni.
★ MARGIR EIGA HRÓS
SKILIÐ.
Flest af þeim bréfum, sem okku#
berast, eru þess efnis að í þeim er annað hvort
verið að kvarta yfir slælegri þjónustu eða ein-
hverju slíku. Sjálfsagt og eðlilegt er að birta slík,
einkum þó ef verða mætti til þess að einhverju af
því sem aflaga fer í okkar ágæta þjóðfélagi væri
kippt í lag.
Hins vegar er ekki síður ástæða
til að minnast á það sem vel er gert og#á hrós
skilið, en bréf slíks efnis fáum við því miður
heldur sjaldan. Viljum við nú hvetja lesendur
þessa dálks til að láta einnig frá sér heyra um það
sem þeir telja til fyrirmyndar, annað hvort með
því að skrifa okkur, hringja eða koma á ritstjórn-
ina. Það er engin ástæða til að láta það liggja í
láginni, sem vel er gert. — Karl.
4 30. september 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ,