Alþýðublaðið - 30.09.1966, Page 7
KASTLJÓS
if Rússa dvína
á Balkanskaga
FERÐALAG sovézka kommún-
istaleiðtogans Leonid Bresjnevs
til Búlgaríu, Júgóslavíu og Ung-
verjalands á dögunum sýnir ó-
tvírætt, að aðgerðir Rúmena á
sviði utanríkismála að undan-
förnu og aukin efnahagsleg álirif
Véstur-Þjóðverja eru alvarlegasta
hættan, sem steðjað hefur að á-
hrifum Rússa á Balkanskaga til
þessa.
Bresjnev kom í hina óvæntu
lieimsókn sína til Búlgaríu, sem
fram til þessa hefur veri'ð dygg-
asti stuðningsmaður Rússa í Au.-
Evrópu, um sama leyti og Rudolf
Lahr, ráðuneytisstjóri í vestur-
þýzka utanríkisráðuneytinu, kom
til landsins ásamt fjölmennri
sendinefnd í sex daga opinbera
heimsókn, sem leggja átti grund-
völlinn að auknum viðskiptum
landanna. Heimsókn Bresjnevs
fylgdi einnig í kjölfar mjög vel-
heppnaðra viðræðna, sem efna-
hagsmálaráðherra Vestur-Þýzka-
lands, Kurt Schmiicker, átti við
framámenn í Rúmeníu í síðasta
mánuði, en þær viðræður munu
fljótlega leiða til þess, að ríkin
taka upp eðlilegt stjórnmálasam-
band.
Opinber yfirlýsing Rúmena þess
efnis, að þeir hafi í hyggju að
taka upp stjórnmálasamband við
Vestur-Þjóðverja, hefur vakið
mikinn ugg í Moskvu, enda stofna
Rúmenar með þessu sjálfum grund
velli stefnu þeirrar, sem Rúss-
ar fylgja í Þýzkalandsmálinu, í
hættu. Austur-þýzki kommúnista-
leiðtoginn Walter Ulbricht flaug
i miklum flýti til' Moskvu, þrír
háttsettir, sovézkir embættismenn
heimsóttu Búkarest hver á fætur
öðrum og þessu næst dvaldist
pólski kommúnistaleiðtoginn
WJadyslaw Gomulka í „orlofi” í
Rúmeníu og skiptist á skoðunum
við rúmenska leiðtoga um „Þýzka-
landsmálið.”
- )
★ BIÐLAÐ TIL BÚLGARA.
Samtímis þessu hefur stjórnin
í Búkarest sýnt aukinn áhuga á
r.ánari samskiptum við stjórnina
í Sofia, enda gerir hún sér ljósa
grein fyrir því, að tilgangslaust
er að tala um árangúrsríka sam-
vinnu Balkanríkjanna án þess að
hafa Búlgara með í ráðum, en
þeir eru aðalmáttarstólpi stefnu
Rússa í Balkanmálum.
Sambúð Rúmena og Búlgara
hefur greinilega orðið vinsamlegri
og nánari síðan rúmenski komm-
únistaleiðtoginn Nicolae Ceuses-
cu beimsótti Búlgaríu fyrir ekki
löngu síðan og minntist þráfald-
lega á hina löngu baráttu Balkan-
þjóðanna gegn erlendum yfirráð-
um. Kunnugir veittu því nú eftir-
BRESJNEV
tekt, að Búlgarar tóku að gera
fyrstu fálmkenndu tilraunir sínar
til að taka upp sjálfstæðari
stefnu, láta af fylgisspekt sinni
við Moskvustjórnina og láta þjóð
arhagsmuni sitja í fyrirrúmi. Þeg-
ar búlgarskir leiðtogar fóru einn-
ig að sýna áhuga á auknum efna-
hagslegum tengslum við Vestur-
Þýzkaland flaug Bresjnev til So-
fia.
Tilraunir Rúmena til að fá
Búlgara til liðs við sig eru liður
í umfangsmiklum stjórnmálaað-
gerðum, sem mi'ða að því að koma
á árangursursríkri samvinnu milli
Balkanþjóðanna innbyrðis án til
litstil þess við hvaða þjóðfélags
kerfi þær búa,
Til að draga úr hinni sjúklegu
tortryggni, sem Rússar sýna á-
vallt þegar áhrif þeirra eru á
einhvern iiátt í hættu, vitna Rú-
nienar óspart í vígorð, sem Rúss-
ar hafa lagt blessun sína yfir,
hinni nýju Balkanstefnu sinni til
stuðnings, vígorð eins og friðsam-
leg sambúð þjó'ða, sem búa við
ólík þjóðfélagskerl'i, samvinna
grannríkja, sem mynda stærri
heild, og stofnun kjarnorkuvopna
lauss svæðis á Balkanskaga.
Á því leikur enginn vafi, að
Bresjnev hefur sagt Todor Zhiv-
kov, blúgarska kommúnistaleið-
toganum frá skoðun Kremlverja
á Beíkanfyrirætlunum Rúmena,
Schmiicker efnahagsmálaráðherra Vestur-Þjóðverja, og Manescu, utan
rikisráðherra Rúmena.
sem frá rússnesku sjónarmiði
munu veikja einingu hinna sósíal-
istís'ku herbúða og draga úr Sov-
ézkum áhrifum í -Austur-Evrópu.
★ ÓÞÆGILEGAR SPURN-
INGAR.
; Sovézki kommúnistaleiðtoginn
hefur vafalaust orðið að svara ó-
þægilegum spurningum þegar
hann hitti Tito forseta að máli
vegna uppljóstrananna um, að
Rankovic og klíka hans, sem nú
hefur verið bolað frá völdum,
létu sovézku leyniþjónustunni í
té nákvæmar upplýsingar um júgó
slavnesk innanríkismál.
Alexander Rankovic, sem var
varaforseti þar til hann var
hreinsaður og áður fyrr yfirmað-
ur júgóslavnesku öryggislögregl-
unnar, var í miklum metum í
Moskva og brottvikning hans, sem
kom í veg fyrir að hann yrði eft-
irmaður Titos forseta, hlýtur að
hafa valdið Rússum mjög miklum
vonbrigðum. En Bresjnev liefur
vafalaust fullvissað Tito um það,
að Rússar líti á breytingar þær,
sem gerðar hafa verið í forystu
júgóslavneska kommúnistaflokks-
ins, sem hrein innanríkismál.
Dómurinn í síðustu viku yfir
rithöfundinum Mihajlo Mihajlov,
hinum kunna andstæðingi komm-
linistastjórnarinnar, sem hafði í
hyggju að gefa ýt stjórnarand-
stöðutímarit að vestrænni fyrir-
mynd, hlýtur að hafa fullvissað
Bresjnev um, að Júgóslavía er enn
þá kommúnistaríki. Dómurinn
sýndi einnig, að hreinsun hins
harða kjarna kreddufastra aflq,
gerði Júgóslavíu ekki að vest-
rænu riki stjórnarfarslega séð í
einu vetfangi.
iifreiðaeigendur
sprautum og réttum
Fljót afgreiðsla.
Bifreiðaverkstæðið
VESTURÁS H.F.
Súðarvogr 30, sími 35140.
FRIMERKI
Þátturinn þakkar bréf frá
Sauðárkróki og annað frá ísa-
firði. — Viðvíkjandi síðara bréf-
inu vill þátturinn ráða þér til,
að flýta þér ekki um of með
sölu á kónga-merkjunum ís-
lenzku. — Þau hækka með hverju
árinu, sem líður. — Ennfremur
spyr bréfritari m. a.: „Hvaða ráð
eru bezt til þess að sjá vatns-
merkin í frímerkjunum? Ég veit
að það er hægt að nota svarta
skál og benzín, en pabbi hefur
bannað mér að vera með benzín,
því að það er svo eldfimt.”
j>að vill nú svo vel til, að ein-
mítt nú nýlega er komið á mark-
aðinn nýtt tæki til þess að leita
að vatnsmerkjum í frímerkjum.
Þetta er lítið og handhægt áhald
með smá-rafhlöðu. Frímerkinu er
stungið inn undir litaskífu og
síðan stutt á smá takka, sem
kveikir ljós inni í tækinu. Sjást
þá vatnsmerkin greinilega- Enn-
fremur má framkalla fleira í
þessu tæki. Eins og safnarar vita,
eru oft mikil verðmæti íólgin í
vissum póststimplum. — Með
þessu tæki — það heitir annars
„Philatector" — fylgja nokkrar
litaplötur, sem framkalla á næst-
um undraverðan hátt stimpla, sem
eru ólæsilegir með berum aug-
K
3*
um. Þetta tæki, „Pliilatector”
fæst í Frímerkjamiðstöðinni, Týs-
götu 1 í Reykjavík og kostar kr.
595,00.
Fleiri nýjar frímerkjavörur eru
komnar á markaðinn. „Redus”
geymslumöppurnar og „RedusV-
geymslublöðin eru athyglisverðar
frímerkjavörur og vafalaust ágæt-
ar til þess, sem þær eru ætlaðar.
Fyrst skulum við nefna geymslu-
blöð fyrir heilar arkir. Verð á
hverju blaði í þá möppu er kr.
17,50 og er blaðið 28x30 cm. a'ð
stærð. í þessum blöðum eru ark-
irnar algerlega verndaðar fyrir
ryki, svo og fyrir öðrum hugsan-
legum skemmdum. Hvert blað
getur rúmað nokkrar arkir. Möpp-
ur fyrir blöðin kosta kr. 344,00.
Þá má nefna innstungublöð með
10 línum á hvorri hlið. — Þessi
blö'ð getið þið notað hvort sem
þið óskið eftir að setja upp:
a. Stök frímerki, stór og smá, scm
þið getið raðað upp eftir eig-
in vali.
b. Stök frímerki og blokkir í
smekklegri samsetniiigu.
c. Arkarhluta með eða án rand^
ar, minningararkir o. fl.
d. Útgáfudaga ásamt samsvar-
andi ónotuðum frímerkjum.
i
e. Utgáfudaga og „automat”-
bækur (samanber sænsk frí-
merki). j
f. Skiptifrímerki.
g. Fjórblokkir, samstæður. arkir
eða arkarhluta. ;
Verð á hverju blaði í sérstökuip.
plasthlífum er kr. 39.00. GeymslHi
möppur undir þessi blöð kosta kr..
280,00. !:)
j Þessar „Redus”-möppur og blö®
fást einnig núna í Frímerkjamiö-
^stöðinni, Týsgötu 1. — Þá má geta
jþess, ' að ýmsir nýir írímerkjb-
verðlistar, erlendir, eru komnir óg
I von er á þeim íslenzka mjög fljót-
lcga. — Verður rætt um þá síðdr.
m
fu i nuKjarJjyjolii
S.MS.
30. september 1966 -- ALÞÝÐUBLAÐIÐ 'J