Alþýðublaðið - 13.10.1966, Side 9
TÓMT MAS, TÓMAS?
GuSbergur Bergsson:
TÓ3VÍAS JÓNSSON
Metsölubók
Helgafell, Reykjavík 1966.
355 bls.
Tómas Jónsson? Hver er
þessi Tómas Jónsson? Þeirri
spurningu má að sjálfsögðu svara
með ýmsum hætti; sjálfur svarar
hann fyrir sig á fyrstu síðu:
„Ævisaga: Ég er afkomandi
hraustra, bláeygðra víkinga. Ég á
ætt að telja til hirðskálda og sig-
ursælla konunga. Ég er íslend-
ingur. Nafn mitt er Tómas Jóns-
son. Ég er gamall.” Og Tómas er
augljóslega í _ ætt við ýmsar
seinni tíma sagnhetjur í evrópsk-
um bókmenntum, and-hetjur Sam-
uel Becketts, Gtinters Grass til
dæmis, íslenzkt afbrigði sömu
stílstefnu. Tómas er örvasa, kar-
lægur, hírist í kjallara ásamt
leiguliðum sem hann hefur tekið
inn í íbúð sína, áður vann hann
í banka, borðaði í matsölu, nú
annast leigjendurnir hann í kör-
inni. Hann er blindur a’ð kalla en
sér þó til að hripa upp minning-
ar sínar .hugleiðingar og frásagn
ir í gamlar stílakompur og hefur
útbúið sérstakt apparat til að
marka fyrir línunum sem hann
greinir ekki lengur; metsölubók
hans samanstendur af þessum
skrifbókum, 17 talsins:
„í dag fór ég á stjá «g rakst á
heilmikinn bunka af gömlum
Snotruskrifbókum frá þeim tíma,
þegar ég tók nemendur í einka-
tíma milli sex og sjö á kvöldin
áður en slysið henti mig hjá
þvottapottinum meðan foreldrar
treystu mér fyrir börnurn sínum
meðan ég var heilbrigður og með
því að þeir komu súrefniskútnum
fyrir við höfðalagið og hengdu
grímuna á lykkju við rúmstokk-
inn og mér er ljóst að innan tíðar
á ég að deyja, þá er ekkert betra
við tímann og skrifbækurnar að
gera en hripa í þær eitthvert ó-
merkilegt og tómt mas, þegar brá-
ir af mér fyrsta kastið eftir grím-
una.
Þetta er í stuttu máli ytra
ástand Tómasar, og ástæðan fyrir
skrifum hans um leið. Er þá Tóm-
as Jónsson ekkert nema átylla,
farvegur fyrir endalausan, mein-
ingarlausan málflaum, tómt mas
um hálft fjórða hundrað síður?
Eða er Tómas eitthvað annað,
meira — síðasta ímynd „hins ei-
lífa íslendings” kannski, skrif-
bækur lians með einhverju móti
nýjasti spegill íslenzkrar samtíð-
ar? Þeirri spurning mun hver
lesandi svara fyrir sig, e'ða láta
ósvarað. Hvað sem svörunum líð-
ur, er Ijóst að fátt er gert til
að létta lesendum lesturinn,
greiða þeim einhverja skilnings-
.ldið að efninu, engin formúla feng
in til að „Ieýsa“ bókina. Og þó. Þó
er hér' þrátt fyrir allt formúla fyr
ir henni, rituð I hátiðlegum -aug-
lý&ingastíl framsækinna forleggj-
ara, og ritdómenda, þeim til við-
vörunar sem kynni að fýsa að
leggja út af bókinni:
„Ég er orðinn nógu karlægur
og andlega lamaður til þess að
einhver fái áhuga á lífi mínu. Ég
ætla að skrifa bókina: Hvernig
ég varð að andlegum og líkam-
legum aumingja án þess að
leggja nokkuð af mörkum til þess
að verða það. Kaupið metsölubók
Tómasar Jónssonar, sem verið er
að þýða á sjö erlend tungumál.
Hann lýsir af hreinskilni og
teprulaust andlegum þjáningum
sínum, gamall, sjúkur og vinalaus
í íbúð, sem hánn hefur verið
rændur, karlægur. Nærfærnisleg
bók, rituð af hárfínum skilningi
og þekkingu, samúð með lítil-
magnanum. Bókin er viðvörun til
okkar allra, sem ekki erum kom-
in í kör. Þetta er bók handa allri
fjölskyldunni. Djörf bók. Fyrir
lesendunum vakna margar spurn-
ingar sem höfundur lætur ósvar-
að. Er hann í raun og veru kar-
lægur. Var hann með brögðum
sviptur íbúðinni. Er hann dada-
isti. Nauðgaði hann, tíu ára gam-
alli telpu inni í þvottapotti. Er
Guffbergur Bergsson.
hann kynvillingur. Er hann morð-
ingi. Hver er Tómas. Er hann
við öll. Er hann tákn íslenzku
þjóðárinnar eins og hún er í dag,
andlega og líkamlega karlæg. Um
þessar og fleiri spurningar fáið
þið að brjóta heilann með því að
lesa jólabók okkar í ár: Hvernig
ég varð að andlegum og líkam-
legum aumingja án þess að
leggja nokkuð af mörkum til að
verða það. Lesið bókina um mann-
inn sem skrifaði af sér kynfærin.
Hún er jólabók okkar í ár.”
Tómas Jónsson er sem sé ekki
allur þár scm hann er séður í
skrifbókum sínum, hvorki karl-
inn sjálfur í körinni né endur-
minningar hans hé margvislegar
hugleiðingar. Sök sér er það að
tíminn er úr leik í skrifbókunum,
rennur út í eitt, alíir hlutir .virð-
ast gerast í senn. En ekkert anh-
að er árciðanlegt, hvað rennur
saman við annað, blandast, týnist,
birtist í nýrri mynd. „Ég vík burt
frá mér hejmi . tákna og þoku-
mynda,” segir- að vísu Tómas á
einum stað, „Ég held mér fast í
hlutina, þeir eru tryggir. En .ég
finn ekkert út úr hlutunum, ég
nýt þess að horfa á þá, stól .sem
stól, hús sem hús, blóm sem.blóm.
Ég tortí.mi ekki einni merkingu
til að finna aðra.” En hlutirnir
eru ekki fulltryggir heldur, merk-
ing þeirra sízt af öllu föst og ó-
breytileg, ein og söm. Minningar .
Tómasar úr bernsku sinni, úr
sjávarþorpi og sveit, úr bankan-
um og matsölunni blandast saman
í ringulreið; sarhbýlisfólk hans
í kjallaranum, bankanum, mat-
sölunni tekur stöðugt hamskipt-
um. Konurnar tvær sem jafnan
eru í hug hans, Katrín og Anna,
og kötturinn Títa, renna saman í
eina, Annakatrín; kringum þær
snúast „þjóðsögur” Tómasar, fár-
ánlegar frásögur sem felldar eru
inn í meginmálið. „Sálin í mér
heitir Katrín,” segir í sjöuhdu
skrifbók Tómasar, en í fimmtándu
bók stendur ekki nema þetta:
„Eiginkona mannsins er sálin.
Sálin heitir Katrín. Katrín er
konan mín. Katrín merkir hin
hreina.“ í 17du bók er Katrín orð
in heilt eyland og hún er líka bát-
ur á hámeri með þremur mönnum;
allir heita þeir Tómas. Þar lýk-
ur sögunni: „Honum tókst að
hugsa eina lokahugsun: ég kalla
norðurljósin regnboga næturinn-
ar.” Og Tómas Jónsson er eng-
anveginn tryggur sjálfur. Saga
Tómasar sem varð með tímanum
að kjallaraíbúð í Hlíðahverfi
rennur með einhverjum hætti
saman við sögu Ásmundar sem át
upp húseign sína; Tómas er með
einhverju undarlegu móti háður
sambýling sínum Hermanni, eða
Svan, sem einlægt liggur á hleri
hvað karl hafi fyrir stafni. Kann-
ski er Tómas ekki nema hugar-
burður þess síðastnefnda. í sér-
stökum „eftirmála ætluðum
Reykvíkingum”, „undirskriftina
vantar en ætti liklega að vera
Hermann eða Svanur,” segir sem
svo:
„Sumar manneskjur eru bein
afleiðing hugsunar. Líf þannig
fólks og gerðir er ekki sjálf-
sprottið heldur ræktað með um-
hyggju i vermireit. Án hugsunar
yrði • líf þess ekkert nema ömur-
leiki. Aðrar manneskjur lifa
villtu, sjálfsprottnu lífi sem krefst
engrar hugsunar. Þannig líf
blómgast og vex hvarvetna þar
sem einhver jarðvegur er fyrir
það. Þannig líf krefst einskis til-
búins áburðar. Tómas Jónsson er
í hvorugum flokknum. Ljf hans,
að því er bezt verður, séff, var
ekkert. í hæsta lagi líf sandkorns-
ins sem af tilviljun berst inn í
sfeel. Vegna stöðugs snúnings og
bylgjuhreyfíngá sjávarins handan
við Veggi samlofeunnar hlóðst
fealfe á sandkornið. (Einhvers stað-
ar segist hann verá perla). í
Framhald bls. 10.
NÁMSKEIÐ
Kennsla hefst 17. okt. Nómsgreinar eru- Munsturgerð, teikn-
ing ('undirbúningur fyrir batik), ryahnýting, tauprent (ekta
litir), listsaumur margskonar og fl„ Handofnar undirstöður
fyrir ryateppi. Innritun og val á verkefnum daglega frá kl.
6-7 e. h.
SIGRÚN JÓNSDÓTTIR Háteigsvegi 26.
Garðastræti 6. — Sími 16485.
/ ■
er 14901
13- október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9
KatipiS og notið
HUDSON nylonsokka.
Ótrúleg ending.
LFORDI
FORDIL
ORDILF
RDILFO
DILFOR
ILFORD
— alltaf bezta lausnin. —
Einkaumboð fyrir
ILFORD-ljósniyndavörur.