Alþýðublaðið - 02.11.1966, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 02.11.1966, Blaðsíða 3
Ferðin var ánægjuleg Rvík, — OTJ. Þá er Baltika aftur komin til Reykjavíkur og þar með lokið cinni umtöluðustu sjóferð um langan tíma. Meðan á henni stóð gekk hver tröllasagan af ann- arri um borgina. Ef trúa skyldi Jieim þjáðust farþegarnir af mat arleysi, vínleysi, salernisleysi og svefnleysi því að allt var þetta sagt af skornum skammti á fleyinu. Maturinn var sagður slœmur, salernin ekki nema tvö eða þrjú og klefar ekki nema tíu eða tólf manna. Afleiðing alls þessa átti svo að vera sú að hluti farþeganna hafi kom- ið flugleiðisi til baka eftir skamma siglingu. Alþýðublaðið liafði því sam band við Ragnar Ingólfsson, for mann Karlakórs Reykjavikur og innti hann eftir sannleiksgildi sagnanna. Ragnar kvað þær vera ósannindi frá upphafi til enda. Sjóferðin hafi í alla staði veríð hin ánægjulegasta. Fyrst í stað hefðu sögurnar hérna frá íslandi vakið kátínu um borð, en fólk hefði þó fljótlega orðið leitt og ergilegt yfir þeim. í fyrsta lagi !hafi það verið en demis vitleysa, sem stóð í Vísi að skipið hefði orðið vínlaust og orðið að koma við á Gíbralt ar Þangað hafi það alls ekki farið. Eina viðkomuhöfnin sem ekki hafi verið í fei’ðaáætlun inni hafi verið Malta, og þanig að hafi verið farið með sjúk an mann en ekki til að lesta brennivíni. Þá hafi ekkert verið út á þrifnað að setja og sal emin bæði nægjanlega mörg og vel hirt. Maturinn var góður sagði Ragnar, þótt ég búist ekki við að hann hafi verið við allra hæfi, og ég vil ekki neita því að hann gæti hafa þótt dálítið leiðigjarn á svona langri sjóferð Klefarnir voru ágætir. Nokkrir hinna ódýrari voru að vísu sex manna, en þar var ekkert sem fólkið ekki vissi áður en það keypti farmiðana. Landferðirn ar voru nokkuð strangar. Fólk ið var óvant 'hitanum og þar sem tíminn var naumur var í sumum tilfellum færst of mikið í fang við að skoða allt sem skoða átti. Við reyndum að hafa sem fjölbreyttust skemmti atriði á skipsfjöl. M.a. voru dans leíkir á hverju kvöldi, kvik- myndasýningar, grímuböll, happdrætti, kvöldsaga lesin, kórinn söng sjö sinnum og auk þess gat fólk synt, legið í sól baði, lesið, spilað eða gert eitt hvað annað sér til dægrastytt ingar. Það er einnig alrangt að hluti farþeganna hafi kom ið flugleiðis til baka. Þeir einu sem yfirgáfu skipið voru Hans en, þjónn á Borginni, sem lagð ur var á sjúkrahúsi á Möltu og svo Arngrímur Jónsson, skóla stjóri Núpsskóla, sem einnig átti við vanheilsu að stríða. Hvað lýs og pöddur snertir var fjarri því að nokkuð slikt væri um borð í skipinu. Hins vegar keyptu margir farþeg- anna sér leikfangaúlfalda í A1 exandríu. Þeir reyndust vera úr .ósútuðu kattarskinni svo að þeir lyktuðu ekki sem bezt þegar á leið. Svo þóttist einhver sjá pöddu á einum og var þá allt einangrað og því fleygt fyrir borð. Þetta var því ánægjuleg -sjóferð eins og ég sagði í upphafi, og flestallir farþegarnir ánægðir. Hinsveg ar eru í rúmlega 400 manna ihóp alltaf einhverjir sem ekki líkar. Við því er ekkert að gera. Ný Ijóðabók Út er komin nýstárleg ljóðabók, Jarðarmenn eftir Hafliða Jónsson frá Eyrum. Þetta er fyrsta ljóða bók Hafliða sem hingað til hefur verið kunnari fyrir garðyrkjulist sína en ljóðagerð, en hann er sem kunnugt er garðyrkjustjóri bæjar ins. Hins má geta að Hafliði er bróðir Jóns skálds ~úr Vör. Jarð armenn er ljósprentuð í 250 ein tökum eftir vélrituðu handriti höf undarins og er frágangur allur hinn snyrtilegasti. Allmargar imyndir eru í bókinni, dregnar upp af skáldinu sjálfu sem einnig teiknaði kápu bókarinnar. Jarðar menn er 94 bls. að stærð, útgef andi er Bókaskemman, Reykjavík. ísland öruggt í A-riðilinn Rvík, - ÓTJ. Það er taliff svotil öruggt aff ís lending'amir á Olympíumótinu á Kúb,u komist í A-flokk útrslitú keppninnar, hvernig svo þeim reiff ir af eftir þaff. Þeir höfffu tólf vinninga og eina biffskák samkv. fréttum sem bárust í grær. Viffur eigninni viff Júgóslava lauk meff ósigri okkar manna. V!z gegn 2 1/2 og var þaff jafntefli Friffriks viff Gligoric sem stóff fyrir þessum i/i vinning okkar, en Friffrik hef ur engri skák tapaff ennþá. Biðskákirnar við Mexíkana úr fimmtu umferð fóru á þá leið að Friðrik vann Ingleslas, Guðmund ur, Delgada og Freysteinn á betri stöðu 'gegn Terrazas. Indónesía og Mexíkó gerðu jafntefli í fjórðu umferð og Mongólía og Austurríki unnu sína biðskákina hvort úr fimmtu, en ein fór aftur í bið. Önnur sjöttu umferðarúrslit eru þessi: Tyrkland Wz, Mongólía 1/2 LBJ býður öldungi í þyrluferð SEOUL, 1. nóvember (NTB— Reutor) — Johnson forseti heim- sóttf í dag suður-kóreska her- menn, ræddi við Chung-Hee Park forseta og flaug í þyrlu ásamt öldruðum Suður-Kóreumanni yfir Seoul. Einnig var hann viðstadd- ur kennslu í taek won do, suð- Framhald á 15. síffu. (tvær biðskákir), Austurríki 2, ♦ Mexíkó 0 (tvær biðskákir). Og þá er staðan: 1. Júgóslavía 17 %. 2. ísland 12 (1 bið). 3. Indó nesía 9 1/2. 4. Austurríki 9(3 bið). 5. Mongólía 'IVz (3 bið). (Situr hiá í 7. umf.) 6. Tyrkland 8 (2 bið) 7. Mexíkó 2V6 (3 bið). Þær þjóðir sem eru taldar lík- legastar til að komast í A-floíkk; úrslitanna eru Rússar, Júgóslav ar, Bandaríkjamenn, Tékkar, Rúm enar, Belgir, Argentínumenn, Dan ir og íslendingar. Austur,-Þjóð- verjar eru taldir öruggir. TaliS er vafalítið að Rússar vinni mótið, •og þá líklega m.eð Baifdarítkja menn og Júgóslava á hælunum. Er því augljóst að íslendingarnir mega taka á honum stóra sínum 'þegar að úfrslítum dreguk. En þótt afrekin verði kannski ekki stórvægileg þá er alls ekki um að sakast. íslenzku skákmennirnr hafa staðið sig mjög vel og ó- hætt er að óska þeim til hamingju með lanigþráð takmark ef þeir setjast í A-flokkinn. I Aððlfundur FUJ í Kópavogi Aðalfundur Félags ungra jafnaðarmanna í Kópavogi verður haldinn fimmtudag- inn 3. nóvember n.k. Fund- urinn hefst kl. 20.30 stun^l- vísléga, að Félagsheimilinu Auðbrekku 50. Fundarefni: Venjuleg aá- alfundarstörf. Stjórnin. . 2. nóvember 1966 - ALbÝÐUBLAÐIÐ 3 .

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.