Alþýðublaðið - 02.11.1966, Blaðsíða 15
G< "'■ luvarðhald
c?g itiannré
Heimild til að halda handtekn
um mönnum í gæzluvarðlialdi er
meginatriði tveggja mála, sem
nýlega hafa verið lögð fyrir mann
réttindadómstól Evrópu í Stras-
bourg. Er hér um a'ð ræða svo-
kölluð „Neumeister“ og Wemhoff“-
mál, sem um nokkurt skeið hafa
verið til mcðferðar hjá mannrétt
indanefnd Evrópu. Nefndin hefur
nú skotið þeim báðum til dóm-
stólsins, en að auki hefur ríkis-
stjórn Austurríkis lagt fram sjálf-
stæða beiðni um, að dómstóllinn
fjalli um Neumeister-málið.
Fritz Neumeister var liandtek
inn í heimalandi sínu, Austurríki,
12. febrúar 1961 vegna gruns um
aðild að stórfelldum skattsvikum.
Honum var haldið í gæzluvarð-
lialdi til 12. maí 1961 og aftur
frá 12. júlí 1962 til 16. september
1964. Dómur er enn ekki geng--
inn í máli hans í Vín. Karl-
Heinz Wemlioff var handtekinn
í Berlín 9. nóvember 1961 vegna
gruns um. að hann hefði tekið
þátt í flóknum fjármunabrotum,
sem snerust um háar uppliæðir.
Wemhoff var dæmdur í 6 ára
fangelsi í Berlín í apríl 1965, en
gæzluvarðhaldstíminn skyldi koma
til frádráttar þessum tíma.
Bæði Neumeister og Wemhoff
| halda því fx-am, að meðferð sú,
sem þeir hafa sætt, feli í sér
bi-ot gegn mannréttindasáttmála
Evrópu. í 5. grein sáttmálans
segir m.a.: „Hvern þann mann,
sem tekinn er höndum eða sett-
ur í vai’ðhald. . . skal án tafar
færa fyrir dómara. . . og skal liann
eiga kröfu til, að rannsókn fyrir
dómi hefjist innan sanngjarns
tima eða hann verði látinn laus
þar til rannsókn hefst“.
Mannréttindadómstóll Evrópu
fjallar einnig um þessar mundir
um mál gegn ríkisstjórn Belgíu
vegna löggjafar um tungumál í
skólum þar í landi.
Einn íslenzkur dómari á sæti í
mannréttindadómstóli Evrópu. Er
það Einar Arnalds hæstaréttar-
dómari.
Frétt frá upplýsingadeild.
Forsetinn heimsótti meðal ann
ars nýræktarsvæði um 32 km. frá
Seoul, og gaf verlcamönnunum
sjónvarpstæki.
LeiStogi
Sþróttir
Framhald af bls. 11
flytzt því upp í I. deild. Horsen
sigraði í 2. deild og leikur nú í
I. deild.
DJURGÁRDEN sænskur meistari.
Stokkhólmsliðið Djurgárden varð
sænskur meistari, sigraði Norrköp
ing með 3 mörkum gegn engu á
sunnudaginn. Leikurinn fór fram
í Stolkkhólmi. Ahorfendur voru
43047, sem er metaðsókn í All-
svenksan á þessu ári. Djurg&rden
hlaut 33 -stig. Norköpintg 29, Elfs
borg 20, Gais 20, og Malmö 19. Ove
Kindvall skoraði flest mörk í All
svenksan á keppnis-tímabilmu, 20
talsins. Hann er nú orðinn atvinnu
maður leikur með ihollenzka fé
laginu Feynord.
L. B. J.
Framhald af 3. síðu
ur-kóreskri fjölbragðaglímu, sem
er sambland af karate og jiujitsu.
Þetta er síðasti dagur heimsókn
ar Johnsons til Suðui’-Kói’eu, og
hefur hann hvergi fengið eins hlýj
ar viðtökur á Asíuferðalagi sínu
Fangar
Framhald af 2. síðu.
sleppti gislunum ekki úr haldi
neyddist Guinea til að grípa til
strangra ráðstafana. Hann lét þess
ekki getið í hyerju þessar ráð-
stafanir yx-ðu fólgnar, en bætti
við: Við hörmum fyrirfram að
við skulum neyðast til að gera
slíkar ráðstafanir.
Salt
CEREBOSí
FÍANDHÆGU BLÁU
DÓSUNUM.
HETMSÞEKKT GÆÐAVAIiA
Fæst í næstu bú'ð.
1
VANTA^ BLAÐBURÐAR-
FÓLK í
EFT8RTALIN HVERFB:
MIÐBÆ, I. OG II.
HVERFISGÖTU,
EFRI OG NEÐRI
LAUGARNESHVERFI
LAUFÁSVEG
LAUGARÁS
LAUGARTEIG
KLEPPSIIOLT
SÖRLASKJÓL
LAUGAVEG, NEÐRI
SKJÓLIN
LÖNGUHLÍÐ
HRINGBRAUT
TJARNARGÖTU
MIKLUBRAUT
LAUGAVEG, EFRI
SELTJARNARNES, I.
BRÆÐRABORGARSTÍG.
fj>)
SÍMI 14900.
Framhald af bls. 1.
bera ábyrgð á því að guðlausir
ofstækismenn kæmust til valda í
Vestur-Þýzkalandi. Fylkiskosning-
ar fara fram í Bæjaralandi 20.
nóvember.
Winter, sem einnig er varafor-
maður flokksins, sagði að hann
væri kvíðafullur vegna þróunar-
innar í flokknum, þar sem klíká
nokkur ,sem engu hefði gleymt
og ekkert lært, fengi æ meiri
áhrif. Þjóðernislegi demókrata-
fiokkurinn berst fyrir brottflutn-
ingi allra erlendra hersveita og
verkamanna frá Vestur-Þýzkalandí
en neitar því að hann sé nýnazista
flokkur.
Ég þakka af alhug öllum fjær og nær sem heimsóttu mig
29. október á áttatíu ára afmælisdaginn, með gjöfum, blómum
og vinarkveðjum.
Guð blessi ykkur öll, Iifið heil.
Símon Símonarson,
Ilöfðaborg 50.
Bygg i ngaverkf ræði ngu r
óskast til að gegna starfi bæjarverkfræðings í
Keflavík. Umsóknir ásamt launakröfu sendist
skrifstofu minni fyrir 15. nóvember n.k.
Bæjarstjórinn í Keflavík.
KEFLAVIK
KEFLAVIK
VÖRUBIFREIÐ TIL SÖLU
Tilboð óskast í Volvo vörubifreið, gerð L 485,
árgerð 1963.
Bifreiðin er með veltisturtum.
Pípugerðarvél, tegund AÖOLO extra með mót
um 4“-24“.
Upplýsingar í síma 1552.
Áhaldahúsið.
Bifreiðarstjóri óskast
Þvottahús Landspítalans vill ráða strax dug-
legan og reglusaman bifreiðastjóra á bifreið
stofnunarinnar. Laun samkvæmt kjarasamn-
ingum opinberra starfsmanna. Umsóknir með
upplýsingum um aldur, og fyrri störf sendist
Skrifstofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29 sem
fyrst og eigi síðar en 7. nóvember n.k.
Reykjavík, 1. nóvember 1966
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
Kðupum hreinar
léreftstuskur
Prentsmiðja
Alþý&ublaðsins
2. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐID |,5