Alþýðublaðið - 09.11.1966, Blaðsíða 3
íyOGÉ:
Ml Deniokratisk
Ropublikan$k
tmxYiLt
Floti Ríkisskip endurnýjaöur
Tvö skip bætast
viö - Heklan seld
Waage
forseti ÍSÍ, látinn
í gærmorgun andaðist að heim-
ili sonar síns, fyrrverandi forseti
ÍSÍ, Benedikt G. Waage.
Benedikt var löngum þjóðkunn-
ur íþróttamaður og starfaði mik-
ið að íþróttamálum. Var hann
kosinn forseti íþróttasambands ís-
lands og gegndi því starfi í rúm
36 ár, en var eftjr það kjörinn
lieiðursforseti sambandsins. Bene
dikt stundaði nám í Verzlunar-
skóla íslands og starfrækti verzl
un í all mörg ár. Hefur hann átt
sæti í stjórnum margra íþrótta-
félaga, auk þess að hafa stuðlað
að útgáfu fjölda bóka og tíma-
rita um íþróttamál. Benedikt
Waage var fæddur 14. júní 1889
í Reykjavík og var því 77 ára
að aldri, er hann andaðist.
5 nýjar bækur
frá Helgafelli
Reykjavík, ÖÓ.
Fimm nýjar bækur koma út
hjá Helgafcllsforlagi í dag, og
eru þá alls komnar út 17 bækur
hjá forlaginu í ár og enn eru
nokkrar væntanlegar fyrir jól.
Meðal bókanna sem nú koma
út er Rímn^safnið, Sveinbjöa'»n
Beinteinsson skáld sá um útgáf-
una. í safninu eru sjötíu rímur
eftir jafnmarga höfunda. Er þarna
að finna úrval úr íslenzkum
rímnakveðskap allt frá árinu 1360
til þessa dags. Sveinbjörn valdi
rímurnar, ritar formála og ítar-
lega grein um rímur almennt.
Einnig kynnir hann í bókinni alla
höfunda rímnanna. Bók þessi er
í flokki klassískra útgáfuverka
Helgafells ,sem hófst með heild-
arútgáfu á verkum Tómasar Guð-
mundssonar. Síðar komu öll verk
Steins Steinarrs í einni bók og
sá Kristján Karlsson um báðar
þessar útgáfur. í fyrra kom svo
út í þessum flokki ljóðasafn Arn-
ar Arnarsonar með ævisögu skálds
ins eftir Bjarna Arinbjarnason.
Þá er Ijóðabókin Svefneyjar
eftir Baldur Óskarsson. í bókinni
eru 28 ljóð og myndir. Kápu-
teikningu gerði fjögurra ára dótt-
ir skáldsins. Þetta er fyrsta ljóða-
bók Baldurs en áður hefur kom-
ið út eftir hann skáldsaga og
smásagnasafn.
Annað bindi ljóðaþýðinga á
dönsku koma út samtimis hjá
Helgafelli sem er útgefandi ljóða
þýðinganna og Gyldendal í Kaup-
mannahöfn. í þessu bindi er úr-
val ljóða eftir Hannes Pétursson
úr þrem ljóðabókum skáldsins,
Frainhald á 14. síðu.
Slökkviliðsmenn voru krafðir um vegatoll
Á mánudag sl, ltl. 17.12 var
Slökkvilið Hafnarfjarðar kvatt
að varnarliðsbifreið, sem kvikn
að hafði í eftir árekstur við
aðra bifreið, skammt fyrir
sunnan vegatollinn á Reykja-
nesbrautinni. sem kannski er
ekki í frásögur færandi, heldur
það, að slökkviliðsmcnn, sem
sendir voru á vettvang eftir
slökkviliðsbifreiðunuin, voru
krafðir um vegaskatt. Slökkvi
liðsstjóri var á eigin bifreið
og- greiddi hann skattinn til
aö geta komizt á brunastað,
en slökkviliðsmaður, er var í
annarri bifreið á eftir, hafði
ekki handbært fé og gat af
þeim sökum ekki greitt skatt
inn og þrátt fyrir fortölur,
varð hann að snúa aftur, því
að honum var tjáð, að einung
is slökkviliðsbifreiðarnar sjálf-
ar fengju að komast í gegn,
án skattgreiðslu. Ekki þarf að
fjölyrða uin hvaða afleiðingar
og óþægindi siíkt getur haft,
fyrir utan það, að brunastaður,
sem var í Ottastaðalandi, er í
lögsagnarumdæmi llafnarfjarð
ar; einnig Lónakotsland, sem
er næst fyrir sunnan Óttastaða
land .
Félagsvist i Lidó
annað kvöld
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR heldur félagsvist í
Lido annað kvöld 10. nóvember og hefst hún kl. 8.30
stundvíslega. Húsið verður opnað láust fyrir kl. 8 og þeir
sem mæta tímanlega þurfa ekki að greiða rúllugjaldið. —
Formaður Alþýðuflokksins, Emil Jónsson, utanríkisráðherra,
flytur stutt ávarp. Að lokum verður dansað til kl. 1 og leikur
hin vinsæla hljóms. Ólafs Gauks fyrir dansinum. Söngvarar eru
Svanhildur Jakobsdóttir og Björn R. Einarsson.
Reykjavík, EG.
Eins og fram hefur komið í
blöðum hefur ríkisstjórnin að til-
lögu stjórnarnejndar Skipaútgerö-
ar Reykjavíkrir heimilað nefnd-
inni að undirbúa kaup eða smíði
tveggja nýrra strandf erðaskipa
riieð 700—1000 lesta. burðarþoli.
Jajnframt var frá því skýrt í gær,
að undirritaðir hefðu verið samn-
ingar um sölu á m.s. Heklu fyrir
137 þúsund sterlingspund eða um
það bil 16,5 milljónir íslenzkra
króna.
Stjórnarnefnd Skiptúgerðar rík-
isins skipa þeir Gunnar Vagnsson
deildarstjóri, Höskuldur Jónsson
deildarstjóri og Guðjón Teitsson,
sem er framkvæmdastjóri nefnd-
arinnar. Það hefur um hríð ver-
ið einróma álit þeirra, sem gerst
til þessara mála þekkja, að nú-
verandi skipakostur Skipaútgerð-
ar- ríkisins væri orðinn úreltur
og brýn þörf að endurnýja hann.
Fyrir nokkru var færeyska
skipið Blikur tekið á leigu til
strandferða hér við land, en það
er næstum nýtt skip, og munu
möguleikar á að fá það keypt, ef
það þykir henta. Þá var Skjald-
breið fyrir nokkru seld til Bret-
lands og nú hefur verið gert
Framhald á 14. síðu.
Hver vakti
stúlkurnar?
Rvík, — ÓTJ.
Þegar kviknaði í á Laugaveg
inum nú rnn helgina, var það ung
ur maður sem vakti tvær konur
sem sváfu þar á efri hæðinni. Fór
hann svo burt og liefur ekki náðst
í hanji síðan. Rannsóknarlögregl
an þarf mjög að hafa tal af hon-
um og eru það vinsamleg tilmæli
hennar að hann hafi samband við
Kristmund Sigurðsson í síma
21100.
i
t
9. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3