Alþýðublaðið - 24.11.1966, Page 3
Umbótum Francos
misjafnlega tekið
Madrid 23. 11. (NTB-Reuter.)
Fjörugar umræður fara fram nú
á Spáni um breytingar þær, sem
Franco hershöfðingi hefur gert á
stjórnarskránni, en þessar breyting
ar eru nokkurs konar málamiðlun
milli lýðræðislegra og einræðis-
legra stjórnarhátta. Falangaistar,
Konungssinnar, verkálýðsfélögin,
sem eru undir stjórn yfirvaldanna
og óháð samtök rómversk — ka
þólskra manna hafa fagnað umbót
unum, en ástæðurnar eru ólíkar og
túlkanir liinna ýmsu hagsmuna-
hópa A umbótunum eru og ólíkar.
Franco virðist hafa gefið öllum
Jafnaöar-
stefnan
FUJ í Hafnarfirði boðar til
fundar í Alþýðuhúsinu í kvöld
b kl. 20,30. Á fundinum mætir
^ Helgi Sæmundsson, formaður ^
• Menntamálaráðs og kynnir jafn ^
S
aðarstefnuna. Að loknu erind
s
verða frjálsar umræður S
og mun Helgi svara fyrirspurn S
^ um. Allir velkomnir. Kaffiveií S
ingar. — Stjórnin.
I hagsmunahópum eitthvað, en þó
ekki stjórnarandstöðuhópum, sem
berjast fyrst og fremst fyrir frelsi
; til handa stjórnmálaflokkum að
starfa í landinu. AFP hermir, að
hinn venjulegi Spánverji virðist
hafa orðið fyrir vonbrigðum eftir
allan þann hávaða, sem gerður
var út af breytingunum í blöðum,
útvarpi og sjónvarpi. Vonir hans
um, að stjórnarfarið yrði fært í
lýðræðislegra horf og starfsemi
stjórnmáiaflokka leyfð, hafi brugð
| izt .
I Fréttaritari Reuters, John Org
an, segir að konungssinnar láti
gleði sína óspart í ljósi. Hið á-
hrifa mikla málgagn þeirra, ABC,
staðhæfir, að Franco hafi viður
kennt konungdæmið sem stjórnar
form framtíðarinnar. Franco hers
höfðingi hefur ekki tilnefnt eftir
mann sinn, en í nýju lögunum seg
ir, að Spánn sé konungsríki, sem
eignast muni konung eða ríkis
stjóra einhvern tíma i framtíðinni.
Málgagn falagista, Arriba, hefur
ekki gert mikið úr konungsstjórnar
ákvæðum laganna, enda eru falang
istar andvígir konungsstjórn, en
blaðið lýsir yfir ánægju með það,
að Spánverjum með ólíkar skoðan
ir verði ieyfð innganga í falang
istahreýfinguna, sem er eftir sem
áður einu fjöldasamtökin, sem
leyfð eru á Spáni.
Framhald á 14. siðu.
Glæsileg f lugmállaf
hátíð 1. desember
Flugmálahátíðin í ár verður
haldin í Lidó 1. desember n.k.
Sérstaklega verður vandað til
hátíðarinnar að þessu sirrni í til
efni þess að 30 ár eru liðin fbá
stofnun Flugmálafélagsins.
Munu fulltrúar frá flugmála
félögum Norðurlanda sitja hóf
ið.
Dagskrá flugmálahátíðarinn
ar verður í höfuðatriðum á þá
leið að forseti Flugmálaféiags
ins, Baldvin Jónsson, setur há-
tíðina og síðan mun flugmála
ráðherra flytja ávarp. Þá verð
ur verðlaunaafhending frá síð
ustu Shell-bikarkeppni, en hún
fór fram 25. ágúst sl. Hefur
keppni þessi farið fram nokkur
undanfarin ár og sá háttur hafð
ur á að afhenda verðlaunin á
flugmálahátíð. Keppni þessi er
hæfniskeppni í margs konar atr
iðum flugs. Að þessu sinni
hljóta fyrstu verðlaun þeir Haf
liði Bjarnason og Hörður Sveins
son og önnur verðlaun hljóta
Sigurður L. Thorlacius og Gísli
Þorsteinsson. Síðan fer fram af
hending gullmerkis Flugmála
félagsins en það er veitt þeim
mönnum sem forystu hafa haft
í flugmálum íslendinga. Þeir er
hingað til liafa hlotið gullmerk
ið eru Agnar Kofoed Hansen,
Framhald á 15. siðu
ÐING IIM ASI
Þing Alþýðusambands ís-
lands eru einhverjir fjölmenn
ustu samkomur, sem hér eru
haldnar. Hefur oft verið á það
bent, að fjölmennið á bessurr
þingum geri það beinlínis að
verkum, að þau séu næstum
óstarfhæf, fjölmennið dragi
þingstörf óeðlilega á ianginn
og valdi tímasóun. Allt er
þetta vafalaust rétt og sú
skipulagsbreyting, sem nú er
í deiglunni mun hafa það i
för með sér að þingin verða
mun fámennarj og þá jafn-
framt líklegra gangi þar allt
liprar fyrir sig.
Forseti ASI hefur bent á, að
eðlilegt sé að halda fjölmenn
þing svo sem fjórða hvert ár
eins og tíðkast á hinum Norður
löndunum, og er það skvnsam-
leg hugmynd. Fjölmennu þing
in hafa nokkra kosti, þau
hafa talsvert áróðursgildi bæði
út á við og inn á við, og ei
til vill má segja að þau stuðli
að auknum kynnum meðiim-
anna.
Það hefur komið allvel í ljós
á þessu þingi hve úrelt og gam
aldags skipulag nú er við
lýði í ASÍ, og hve það tefur
störf þingsins, þótt á þessu
þingi hafi minni tími, eða þvi
sem næst enginn, farið í pinsk
is nýtt þras um kjörbréf og ó-
merkileg formaatriði.
Síðastliðinn sunnuaag var
þingskjölum dreift, þar á með
al prentaðri skýrslu forseta um
starfið síðastliðin tvö ár. í
skýrslunni eru týnd til alls-
kyns s\náatriði, skýrt er frá
hinum og þessum þingsmálum
misjafnlega merkilegum. sem
send hafa verið miðstjórn ASÍ
til athugunar. í skýrslunni er
hvergi um að ræða neina til-
raun til úrvinnslu þeirra gagna ***"
sem bar er að finna, heldur er
málum aðeins dengt fram í
þeirri tímaröð, sem miðstjórn
hefúr afgreitt þau. Er slíkt auð
vitað fráleitt. Hálfu meiri móðg
un er það þó við þingfulltrúa,
að forseti skyldi verja hátt í
tveim tímum í að lesa upp úr
þessari skýrslu á mánudag í
stað þess að láta umræður um
ÞING
hana hefjast án formála, enda
höfðu þingfulltrúar þá haft
skýrsluna í sólahring eða rúm
lega það. Það er þingskylda
þeirra að kynna sér þingskjöl
og var því óþarfi að sóa löng-
um tíma í að láta fundarmenn
hlýða á þurran lestur upp úr
skýrslunni. Það hefði aðeins
verið einföld vinnuhagræðing,
Framhald á 14. síðu.
24. nóvember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3