Alþýðublaðið - 08.12.1966, Blaðsíða 9
Aðalfundur styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra
Aðalfundur Styrktarfélags lam
aðra og íatlaðra var haldinn að
Sjafnargötu 14, sunnudaginn 4.
des. sl.
Formaður, Svavar Pálsson, end
urskoðandi, flutti skýrslu stjórnar
og las upp ársreikninga félagsins
fyrir sl. reikningsár frá 1. okt 1965
til 30. sept. 1966, og skýrði þá.
1. Tekjur félagsins námu alls
kr. 4.055.000,— og voru þessir aðal
tekjuliðirnir:
Ágóði af merktu eldspýtustokk
unum 1.631 þús. kr.
Ágóði af símahappdrætti 1,187
þús. kr.
og gjafir , minningargjafir og á-
heit 1,131 þús. kr.
Stærsta gjöfin var frá dánarbúi
lijónanna Sigurbjargar Pálsdótt
ur og Eggerts Jónssonar, Óðins
götu 30 og nam alls 867 þús. kr.
2. Af þessum tekjum var var
ið 1.543 þús. kr. til þess að greiða
rekstrarhalla æfingastöðvar að
Sjafnargó'tu 14 og æfinga- og sum
ardvaifrheimiiis í Reykjadal í Mos
fellssveit, en 2 millj. og 212 þús.
kr. fóru til eignaaukningar.
Hrein eign félagsins nam 11
millj. 801 þús. kr. í lok reiknings
árs 30. sept. sl. og eru þá tvær fast
eignir félagsins í Reykjavík taldar
á brunabótamati, en sumardvalar
heimili félagsins í Reykjadal í Mos
fellssveit á kostnaðarverði. Skuldir
féiagsins námu alls 1 millj. 690
þús. kr. þar af skuldir til langs
tíma 1 millj. og 70 þús. kr. en
skuldir til skamms tíma 620 þús.
3. Æfingastöðin að Sjafnar-
götu 14 var rekin á svipaðan hátt
og óður. Þangað komu alls 424
sjúklingar á árinu og fengu 8715
æfingameðferðir. Yfirlæknir stöðv
arinnar er eins og áður Haukur
Kristjánsson læknir, en auk hans
starfar þar Haukur Þórðarson
læknir og Sverrir Bergmann lækn
ir um nokkurn tíma. Forstöðu
kona er eins og áður Jónina Guð
mundsdóttir, sjúkraþjálfari. Skrif
stofustjóri félagsins er eins og áð
ur frú Matthildur Þórðardóttir.
4. Á sumardvalarheimili félags
ins í Reykjadal dvöldust um 40
fötluð börn I 214 mánuð. Þar fengu
þau æfingameðferðir hjá sjúlcra
þjálfara auk sundæfinga hjá sund
kennara. Börnunum leið þarna vel
og tóku mörg þeirra góðum fram
förum. Á undanförnum árum hef
ir stöðugt verið unnið að stækkun
og endurbótum á heimilinu. Á sl.
ári var lokið við smíði vandaðra
búningsklefa við sundlaug og þar
fyrir komið gufubaði. Þá var eld
húsið í aðalbyggingu stækkað og
settar í það nýjar innréttingar og
vélar. Unnu þetta verk þeir tré
smíðameistararnir Kjartan Tómas
son og Rögnvaldur Þórðarson, með
mestu prýði.
Þá var lóðin í kringum aðalbygg
ingu lagfærð, nýtt hlið sett upp o.
fl. o. fl.
Er þessum framkvæmdum nú að
fullu lokið. í náinni framt.ð þarf þó
að bæta við einni byggingu fyrir
skólastofur, þvottahús og e.t.v. fl.
Forstöðukona sumardvalarheim
ilisins í Reykjadal var eins og und
anfarin sumur Magnea Hjálma’rs
dóttir kennari.
5. Félagið aðstoðaði Davíð
Garðarsson, ortop. skósmið við að
stofnsetja skósmíðavinnustofu í
Reykjavík, með því að veita hon
um lán til Iramkvæmdanna.
6. Þegar félagið keypti Reykja
dal í Mosfellssveit til þess að reka
þar sumardvalarheimili, var þar
ekkert kalt vatn að hafa. Hinsveg
ar er þar nægilegt heitt vatn til
upphitunar og til sundlaugar auk
venjulegrar notkunar.
Var ráðist í að leggja bráða
birgða-vatnslögn frá Hrísbrú.
Leiðslan var lögð ofanjarðar og
dugði því aðeins yfir sumartím
ann. Fékk barnaheimili Reykjavík
urborgar að Reykjahlíð einnig
vatn frá þessari vatnsleiðslu. Öll
um var þó ljóst að við þetta yrði
ekki unað lengur.
í september sl. beitti stjórn fé
lagsins sér fyrir því, að stofnað
yrði vatnsveitufélag í hverfinu,
til að leggja vatnsveitu, sem yrði
nægjanleg fyrir þessi tvö barna
heimili ,og öll önnur býli í hverf
inu .Ilinn 15. sept sl. var Vatns
veitufélagið Víðir stofnað. í stjórn
voru kosnir Svavar Pálsson, form.
vegna Reykjadals, Þóroddur Th.
Sigurðsson, vatnsveitustjóri í Rvk.
vegna barnaheimilis Reykjavíkur
og Andrés Ólafsson, garðyrkju-
bóndi að Laugabóli.
Þóroddur Th. Sigurðsson gerði
kostnaðaráætlun og taldist til að
ljúka mætti verkinu fyrir 1 milljón
bg 1 hundrað þús. kr. Framkvæmd
ir hófust þá þegar og hefir nú ver
ið lögð 4 km. löng aðalleiðsla frá
Laxnessdýjum að Reykjahlíð og
flestar heimæðar þá þegar og var
vatn komið í flest hús í hverfinu
upp úr miðjum nóvember sl.
Mestum hluta verksins er nú
lokið og hefir kostað alls um 900
þús. kr. og verður auðvelt að ljúka
því sem eftir er, þ.e. að ganga bet
ur frá vatnsbóli, næsta vor. Öruggt
er því að kostnaðaráætlun mun
standast.
Yfirumsjón með verkinu hafði
Þóroddur Th. Sigurðsson, en Andr-
és Ólafsson annaðist verkstjórn.
Vatnsveitufélagið Víðir er stofn
að skv. lögum um aðstoð til vatns
veitna nr. 98 frá 5. júní 1947 og
væntir íélagið þess að st.vrkir úr
Framhald í 15. síðu.
■tí' SL
if.
■
-
■Sm
Hver man ekki einhvern hinna sérkennilegu
karla, sem Brynjólfur hefur skapað ó leik-
sviðinu. En færri þekkja leikarann og mann-
inn sjólfan, sögu hans og skoðanir. Brynj-
ólfur segir fró uppvaxtarórum sínum í
Reykjavík og ó ísafirði, en þar lék hann
sitt fyrsta hlutverk. Hann rekur-síðan ýmsa
merka atburði í sögu leiklistarinnar og sína
eigin persónulegu sögu, allt
fram ó þennan dag. Og auk
þess prýða bókina 60 mvndir.
KARLAR
EINS
0GÉG
ÆVIMINNINGAR
BRYNJÓLFS
% JÓHANNESSONAR LEIKARA
ÓLAFUR JÓNSSON
FÆRÐ/ ÍLETUR C
8. desember 1966 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ §