Alþýðublaðið - 17.01.1967, Blaðsíða 4
Ritstjóran Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — RÍtstjórnarfulK
trúi: Eiður GuÖnason — Símar: 14900-14903 — Auglýsingasími: 14906.
Aðsetúr AlþýSuhúsið við Hverfisgötu, P.eykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-.
blaðsins. - Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausasölu kr. 7.00 eintajkið.
Útgefandi Alþýðuflokkurinn.
Mannaskipti
| SÍÐASTLIÐINN LAUGARDAG fóru fram yfir-
-fpanriaskipti á Keflavíkurflugvelli, er F. B. Stone að
• rhíráll tók við tjórn vamnarliðsins af R. Weymouth
. feðmírál við hátíðlega athöfn. Slík mannaskipti verða
reglulega, og mátti heyra á ræðum flotaforingjanna
á laugardag, að þau eru notuð sem tilefni til að líta yf
tlr farinn veg og endurbæta verkefni líðandi stundar.
Weymouth aðmíráll hefur notið sérstakra vin-
S,ælda hér á landi, ekki 'aðeins vegna persónulegra
mannkosta, heldur einnig fyrir viðhorf hans til starfa
si'ns og skiínings á afstöðu íslendinga. Hvort tveggja
kóm fram í kveðjuræðu hans, en hárin sagði meðal
annars:
ó,Það á vel við að-íhuga, hvers vegna ég hef verið
hér á landi og hvers vegna Stone aðmíráll tekur við
starfi mínu. Hermennska nýtur nú á dögum meiri
skilnings og er betur hagnýtt en áður. Hér á ísalndi
hafa ríki okkar gert með sér ákveðið samkomulag
um hlut hervarna í varðveizlu þjóða okkar og menn-
ingar þeirra. Bitur reynsla hefur fært of mörgum
þjóðum heim sanninn um, hve sorglegar afleiðingar
það getur haft, ef þær skortir vilja til að verja þjóðar
vérðmæti sín.
En þetta ástand er ekki óbreytanlegt. Maðurinn hef
ur-sýnt þróttmikla hæfileika til að hæta líf sitt, þrátt
fyrir dapurleg dæmi um hið gagnstæða. Hver veit,
hversu Iengi þörf verður á varnarsamningum okk-
ar? Ég er bjartsýnn um að mannkynið sé á framfara
Ibraut — að vera annað en hjartsýnn í þeim efnum
er sama og að lifa ekki. Ég er stoltur yfir því, að eina
markmið hermennskunnar er að hlúa að þeim fram-
förum.“
Það er vissulega tilgangur íslendinga með því að
semja um hervarnir landsins að stuðla þannig að
jafnvægi og friði í þessum hluta heims. Sem betur
fer hefur mikið áunnizt í þeim efnum í Evrópu, síð-
an Atlantshafsbandalagið var stofnað, þótt glatt
-forénni eldar ófriðar í öðrum heimsálfum og geti því
miður breiðzt út.“
Breyttir timar
SÆNSKA STJÓRNIN hefur ákveðið að gera stór-
felldar ráðstafanir til að hjálpa sænskum iðnaði að
auka hagræðingu og laga sig eftir breyttum aðstæðum
á.heimsmarkaði. Samkeppnisaðstaða Svía hefur versn
ao og ný tækni gerir miklar breytingar hjá fyrir-
tækjum nauðsynlegar. Sumar verksmiðjur eru úreltar
og verða lagðar niður, en aðrar þurfa að koma í
þeirra stað til að komizt verði hjá atvinnuleysi. Vill
sijórnin nú hækka söluskatt um 1% til að safna fé
til þessara þarfa. Mundi þannig fást 500 milljónir
sænskra króna á ári og.verður það fé lagt í sérstak-
an sjóð. Þannig mæta Svíar hreyttum aðstæðum.
4 17. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Tvöfalt gler - Tvöfalt gler
Þið fáið tvöfalda einangrunarglerið með ótrúlega stuttum
fyrirvara.
GLUGGAÞJÓNUSTAN
Hátúni 27. — Sími 12880.
Gluggaþjónustunni Hátúni 27: .
Allar þykktir af rúðugleri, litað gler, falleg munstur
Sjáum um ísetningu á öllu gleri.
Sími 12880.
TAX
mm
VANTAR BLAÐBURÐAR-
FÓLK í
EFT8RTALKN HVERFI:
MIÐBÆ, I. og II.
HVEItFISGÖTU,
EFRI OG NEÐRI
NJÁLSGÖTU
LAUFÁSVEG
LAUGARÁS
RAUÐARÁRSTÍG
GRETTISGÖTU
ESKUILIÐ
KLEPPSIIOLT
SÖRLASKJÓL
LAUGAVEG, NEÐRI
SKJÓLIN
HRINGBRAUT
LAUGAVEG, EFRI
FRAMNESVEG
SÍMI 14900
★ HÆGRIAKSTURINN.
H.H. hefur sent okkur bréf, sem er svohljóð
andi.: Stöðugt er verið að tilkynna í blöðum hvern
ig gangi undirbúningur þess að taka hór upp hægri
akstur. Ég hef áður sent ykkur línu um þetta efni
og geri það nú enn, þótt svo ég viti, að þar verður
engu um þokað úr þessu.
En ástæðan til þess að ég skrifa þessar lín
u." er sú, að nú mun senn eiga að fara að innheimta
skatt þann sem Alþingismenn samþykktu að lagð
ur yrði á eigendur einkabifreiða vegna kostnaðar
ins, sem breytingin yfir í liægri handar akstur hef
ur í för með sér, nú er mér spurn, þegar stöðvun
arstefnan er komin í framkvæmd, er þá heimilt að
liækka skattana á bifreiðaeigendum fremur en öðr
um borgurum. Fróðlegt væri að fá svar verðlagsyfir
valda við þessari spurningu. í öðru lagi -finnst
mér það svo f járr hart eins og raunar hefur oft ver
ið bent á áður, hvers vegna eigendur einkabifreiða
nem borga mestan hluta þessa skatts, eiga að bera
kostnaðinn af breytingu á almenningsvögnum, sem
þelr sjálfir sjaldan eða aldrei nota? Þetta sýnist
ekki vera réttlátt. Þessar breytingar eiga allir lands
menn að borga fyrst illu heilli var ákveðið að láta
þær eiga sér stað.
\
★ BREYTING TIL ILLS.
Ég leyfi mér meira að segja að efast um hvort
það stenzt frá lagalegu sjónarmiði að láta hluta af
landsmönnum standa undir framkvæmdum, sem
eru fyrir allan landslýð. Ég held að það hljóti mjög
að orka tvímælis.
Hræddur er ég sömuleiðis um að það eigi
eftir að koma mjög áþreifanlega í Ijós síðar, að
þessi breyting yfir í hægri handar akstur er alls
endis óþörf, og til þess eins fallin að skapa hér
slóraukna slysaliættu og skapa óþarfan kostnað. Um
ferðarslysin hér eru nógu mörg og geigvænleg samt
þótt hið opinbera gangi ekki fram fyrir skjöldu
og geri sitt til að fjölga þeim. Enn sem komið er
hafa engin lialdbær rök komið fram, sem mæla
með því að hér verði tekinn upp hægri akstur.
Lg vona að lokum að þið Ijáið þessu stutta bréfi
mínu rúm í krossgötudálkunum ykkar. — H.H.