Alþýðublaðið - 17.01.1967, Síða 6
Oft er það svo, að frímerkja-
safnari, spm á heillegt safn
merkja frá einhverju landi. getur
lesið þróunarsögu menningar og
mannvirkjsgerðar þess, með því
að renna ugunum yfir síðurnar
í albúmi s’nu. Engin undantekn-
ig í þessu efni er eyjaklasinn í
Persaflóa, . sem heitir Bahrain.
Þessar (yjar eru við austur-
strönd Ar óíu Stærð þeirra er
um það bil 600 ferkilómetrar og
íbúarnir, scm eru aðallega arabar
og negrar, eru u. þ. b. 140 þús-
und. Við sjáum því, að þetta
frímerkjalcnd er miklum ' mun
strjálbýlla en ísland. Höfuðborgin
er Manama með um 40 búsund
íbúa og er hún á aðaleyjunni Ba
hrain. Á æssum eyjum skiptir
víða mjög í tvö horn um gróð-
urinn. — Pum staðar eru gróður-
lausar eyð.merkur, en á öðrum
stöðum, þ r sem vatn er fyrir
hendi, eru mjög frjósamir óasar
með ávaxtatrjám og döðlupálm-
um.
Norðarlega í þesum eyjaklasa
er mjög stórt kóralrif. Um alda-
raðir hafði þetta rif verið aðal-
uppspretta eyjanna. í kring um
það voru oft bátar svo hundruð-
um skipti, með 8-60 mannn áhöfn
Þessi skip voru þó ekki á fisk-
veiðum. Þetta voru perlu-kafarar
og kóralrifið stóra var svo gjöf-
ult að perlur voru um langan
aldur og allt fram að árinu 1930,
aðal útflutningsvara eyjabúa.
Þá var það, að Japanir tóku
að rækta perlur og yfirfylltu
markaðinn. Það kom því eins og
kallað væri að olía fannst á Ba-
hrain-eyju. Og þá var ekki að
sökum að snyrja. Ameríkumenn
tóku strax að sér, að nýta hinar
nýfundnu lindir og árið 1935 er
útflutningur hráolíu frá Bahrain
orðinn nokkuð yfir milljón smá-
lestir.
Olíu-útflutningurinn þurfti
góða höfn og hún kom eins og
hendi væri veifað. Við sjáum
þessa höfn einmitt á þessu frí-
«nerki, sem kom út fyrir tæpu
ári. Hún er staðsett stutt norðan
við höfuðljorgina og að henni
liggja olíuleiðslur neðansjávar
frá Caudi-Arabíu. — Sem sagt:
Olían tók við af perlunum sem
verðmætasta útflutningsvaran og
fjármagn streymdi til eyjar-
skeggja.
Á 16 öld réðu Portúgalar yfir
eyjunum, en seinna náðu Persar
yfirráðum þar, þótt þau yfirráð
væru ekki opinberlega viðurkennd
fyrr en á öldinni sem leið.
1895 gerðu Tyrkir tilraun til
að sölsa eyjarnar undir sig, en
mistókst. Bahrain-eyjar eru nú
eitt af verndarríkjum Breta. Geta
má þess að fornleifar, sem fund.
izt hafa á eyjunum sýna það, að
þar hefur verið menninear-þjóð
félag fyrir fimm þúsund árum
síðan.
Hvað er að frétta að frímerkj-
um Bahrain-búa? — 1884 tók þar
nósthús til starfa og mun það
hafa verið indverskt, en ekki
komu út frímerki þar fyrr en 1933
og voru það þá indversk yfir-
prentuð merki. — Bretar tóku að
sér póststjórn eyjanna árið 1948
og voru þá tekin í notkun yfirprent
u ðensk frímerki. En með
áuknum tekjum af olíu
sölunni, færðist einnig aukið fjör
í allar athafnir innan evjanna.
Sérstök Bahrain-frímerki með
mvnd af Arabíu-fursta komu út
1953 til notkunar innanlands og
árið 1960 fengust frímerki eyj-
anna viðurkennd sem alþjóðleg
merki. — Núna á síðastliðnu ári
tóku eyjarnar póstmálin alger-
lega í sínar eigin hendur —
Dregið í Happ-
drætti Háskólans
Mánudaginn 16. janúar var dreg
ið í 1. flokki Happdrættis Háskóla
íslands. Dregnir voru 1,400 vinn-
ingar að fjárhæð ,£,300.000 krón-
ur.
Hæsti vinningur, tveir hálfrar
milljón krónú vinningar, komu á
heilmiða númer 25985. Voru heil
miðarnir báðir seldir í umboði
Þóreyjar Bjarnadóttir í Kjör-
garði. Það var sinn hvor maður
inn sem áttu þessa tvo hálfrar
; milljón krónu vinninga, Annar
eigandinn átti tíu heilmiða í röð
Framhald á 15. síðu.
Leikstjórinní Morlon Brando, og Sophia Loren.
Brettir upp kragann
og bregður sér í bíó
SKIPAUTGCRB RIKISINS
HerjéSfyr
fer til Vestmannaeyja, Horna-
fjarðar og Djúpavogs á miðviku
dag. Vörumóttaka til Horna-
fjarðar og Djúpavogs í dag.
Ws Blikur
fer austur um land í hringferð !
24. þ. m. Vörumóttaka á þriðjuj
dag og miðvikudag til Horna-
fjarðar, Djúpavogs, Breiðdals-
víkur, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðs-
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eski-
fjarðar, Norðfjarðar, Mjóafjarð
ar, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar,
Vopnafjarðar, Bakkafiarðar,
• Þórshafnar, Raufarhafnar,
Kópaskers, Húsavíkur, Akureyri
Ólafsfjarðar, Siglufjarðar, Sauð
árkróks. Blönduós, Hvamms-
tanga, Djúpavíkur og Norður-
fjarðar.
Farseðlar seldir á þriðjudag.
Chaplin-myndinni Greifafrúin
frá Hong Kong var ekki vel tekið
í London. Chaplin leikur sjálfur
í myndinni þjón á farþegaskipinu
sem fer á milli Hong Kong og
Hawaii, en myndin gerist um toorð
í skipinu á þeirri leið. Chaplin
leikur þjón, sem verður óskaplega
sjóveikur og á hinni myndinni
sést Chaplin með þeim Marlon
Brando og Sofiu Loren, sem leika
aðalhlutverkin.
Áður en kvikmyndin var frum-
sýnd í París á fimmtudag sagði
Chaplin á fundi með frönskum
blaðamönnum.
— Ég held því fram, að Greifa-
frúin frá Hong Kong sé stórkost-
leg kvikmynd, hún er bezta mynd-
in mín.
Blaðamenn geta toaft sína skoð-
un, en ég toef mína. Mín vegna
geta þeir skrifað eins og þeim
þóknast. Kvikmyndahúsgestir
munu 'áreiðanlega hafa^gaman af
myndinni. Alveg eins og ég hef
sjálfur haft gaman af að gera
toana. Ég hef haft þessa tougmynd
í mörg ár, en nú loks fannst mér
ég hafa réttu leikarana í hlutverk-
in. Ég er líka viss um, að bæði,
Soffía og Marlon hafa haft ánægju
af að vinna með mér, á sama hátt
og ég hef haft ánægju af að vinna
með þeim.
Þegar Chaplin var spurður um,
á hverri af myndum sínum hann
hefði mest dálæti, og hvort hann
horfði enn á gömlu myndirnar
sínar, svaraði hann: — Nú finnst
mér Greifafrúin í Hong Kong vera
bezta myndin mín. Ég horfi enn á
'gömlu myndirnar minar. Þegar ég
var í London í haust við mynda-
tökuna, stakk ég af öðru hvoru og
fór í bíó, þar sem þeir voru að
sýna gömlu myndirnar mínar. Þá
bretti ég upp kragann, svo að eng-
I inn þekkti mig. Og ég naut þess
I að upplifa þau áhrif, sem mynd-
i irnar enn virtust hafa á áhorfend-
| ur.
I Chaplin var spurður, hvort hon-
| um fyndist hann hafa sætt of
j harðri gagnrýni. Um það sagði
hann:
— Ég hef þegar sagt, að gagn-
rýnendurnir mega segja sitt 'álit,
alveg eins og ég segi mitt álit. En
mér hefur aldrei komið vel saman
við blaðamenn í London. London
er borgin, þar sem ég fæddist, en
hún hefur ekki fært mér gæfu.
Ég hef gert þessa mynd sem létt-
an gamanleik, það er það sem hún
er, svo hvers vegna að taka hana
svona hátíðlega. Það geri ég ekki
sjálfur, en ég krefst þess, að regla
sé á hlutunum og það er. Þar að
auki finnst mér söguþráðurinn
skemmtilegur og ég hef enn þá
margar skemmtilegar hugmyndir
fyrir kvikmyndatöku, Og það er
alls ekki ómögulegt, að eitthvað
verði gert úr þeim.
Chaplin var að lokum spurður,
hyer væri hans eftirlætisleikari.
— Charlie Chaplin.
Þjónnin greifafrúin, kvennagullið.
Eftirlætisleikarinn.
0 17. janúar 1967 -- ALÞÝ0UBLAÐIÐ