Alþýðublaðið - 17.01.1967, Qupperneq 7
I—
J»að' hefur g-engið á ýmsu í Indó-
Jiesíu undanfarið, en Jan Hœkke-
rup aðalritari IUSY telur að þar
eigi jafnaðarstefnan mikla fram-
tíð' fyrir sér.
. 0
Fyrir jólin var á ferð hér á ís-
londi Jan Hækkerup, aðalritari
Alþjóðasamhands ungra jafnaðar-
manria. Stanzaði hann hér í tvo
daga og átti viðræður og hélt
fundi með leiðtogum ungra jafn-
aðarmanna á íslandi. Þegar hann
kom hingað var hann á leið til
Evrópu eftir njargra mánaða ferða
lag um Asíu, og-er toann kom heim
til Danmerkur birtist viðtal við
Ihann í Aktuelt, máigagni danskra
jafnaðarmanna. Fer viðtalið hér á
eftir í lauslegri þýðingu:
Eitt af tiltölulega fáum löndum
í Asíu, þar sem lýðræðisleg jafn-
aðarstefna virðist eiga mikla
möguleika éinmitt nú er Indónes-
ía, andstætt því sem margir
kynnu að halda, sagði Jan Hække-
rup við Aktuelt.
— Það var ekki laust við að
mér væri dálítið órótt, þegar ég
kom til Indónetsíu toélt hann á-
fram, því þar liefur orðið ,,jafn-
aðarmaður" verið skammaryrði
um langt árabil, og þessvegna var
ég hálfhræddur um að ég kynni
að fá óblíðar móttökur.
En móttökurnar komu mér sann
arlega þægilega á. óvart. Jafnað-
armenn áttu þarna verulegt fylgi
fyrir svo sem tuttugu árum, en
svo þegar Sukarno óx fiskur um
hrygg þá bannaði hann starfsemi
jafnaðarmanna, og leiðtogar
þeirra voru hnepptir í fangelsi.
Þeir toafa nú verið látnir lausír
og búizt er við að banninu verði
aflétt bráðlega og jafnvel ekki tal-
jð ólíklegt að einhverjir af þess-
um mönnum, sem um árabil hafa
verið fangar, verði nú kosnir á
þing, ekki sem fulltrúar ákveðins
flokks þó. Þarna var 'gerður al-
gjör greinarmunur á jafnaðar-
mönnum eða sósíalistum og svo
kommúnistum, og ég er sannfærð-
ur um að hin lýðræðislega jafnð-
arstefna á þarna mjög mikla fram-
tið.
— Hvaða ályktanir toafið þér
dregið af þessu ferðalagi, nú þeg-
ar þér eruð komnir heim?
— Ég held að það sem Alþjóða-
samband ungra jafnaðarmanna, I-
USY, verði að einbeita sér að nú
á næstunni sé að hj'álpa ungum
jafnaðarmönnum í ýmsum Asíu-
löndum við að koma skipulagi á
starfsemi sína. Jafnaðarstefnan
átti mjög sterk ítök í öllum þjóð-
frelsishreyfin'gum þarna, en vegna
slæms skipulags og skipulagsieys-
is í fjölmörgum tilfellum hefur ár-
angurinn síðar ekki orðið í réttu
hlutfalli við þessi miklu ítök.
— Um það er ég sannfærðari
nú en nokkru sinni fyrr, að jafn-
aðarstefnan er eina stjórnmála-
stefnan 'frá Evrópu, sem þarna
getur fallið í góðan jarðveg, og
sem þetta fólk er raunverulega
móttækilegt fyrir. Og held ég að
það sé fyrst og fremst ve'gna ein-
ingarstefnunnar.
Það er oft þannig að ungir jafn-
aðarmenn ganga lengra í kröfum
og stefnumálum, heldur en jafn-
aðarmannaflokkarnir gera al-
mennt, segir Hækkerup. Þetta kom
til dæmis ágæta vel í Ijós i Alsír-
striðinu, þá var IUSY mjög and-
snúið frönskum jafnaðarmönnum,
sem undir forystu Mollets studdu
styrjaldarreksturinn í Alsir. Ekki
er óhugsandi að svipuð vandamál
gætu nú aftur skotið upp kollin-
um í sambandi við afstöðuna til
Rhódesíumálsins. Þá gæti vel farið
svo, að ágreiningur skapaðist milli
IUSY og Alþjóðasambands jafn-
aðarmanna.
— En hvað vilduð þér segja al-
mennt í stuttu máli um þau lönd,
sem þér heimsóttuð 'á þessu langa
ferðalagi?
— Pakistan til dæmis, er ekki
um lýðræði að ræða. Ayub Khan
treystir bersýnilega á samheldnis-
mátt trúai-innar til að standa gegn
yfirgangi kommúnista. Kínverjar
kappkosta hins vegar að leggja á-
toerzlu á að í Kína er trúfrelsi,
og þeir bjóða Pakistönum tugum
saman að koma til Kína og fyl'gj-
ast með þeirri þróun, sem þar
hefur orðið. Þetta hefur veruleg
áhrif að ég held, og sést m.a. af
því hvernig fréttunum um síðustu
atomsprengingu Kínverja var tek-
ið í Pakistan. Þar urðu menn blátt
áfram mjög glaðir yfir þessu vís-
indaafreki Kínverja.
— í Indlandi er það Kongress-
flokkurinn, sem flaggar merki
jafnaðarstefnunnar. í raun réttri
rúmar sá flokkur þó alltof ólíkar
skoðanir til þess að geta með
nokkrum rétti talizt jafnaðar-
mannaflokkur. Prajasósíalistamir
standa ef til vill nærri því að geta
kallazt jafnaðarmenn, en það hef-
ur þó háð vexti þeirra og við-
gangi talsvert að í þeirra röðum
hafa menntamenn og hugsuðir
verið einráðir.
—Rhastra Sivadal, samtök ungra
jafnaðarmanna í Indlandi, sem að-
ild eiga að IUSY eru nýbyrjuð á
mjög merkilegu starfi, sem ég
held að binda megi miklar vonir
við. Þessi samtök toafa hafizt handa
um að stofna samvinnufélög með-
al bænda og hyggjast þannig
tryggja það að lýðræðislegur sósí-
alismi fái einnig mikil ítök í sveit-
um, en stuðningur við þá stefnu
hefur til þessa byggzt mjög og ef
til vill næstum eingöngu á iðn-
verkafólkinu í stórborgunum.
í Japan er varla búizt við nein-
um stórbreytingum í kosningun-
um, sem þar' eiga að fara fram.
Þó verður mjög athyglisvert að
fylgjast með því tovernig sósíalist-
ísku flokkarnir muni standa sig.
Ýmsir í Japan telja að þar hafi
raunverulegt lýðræði verið á und-
anhaldi undanfarið, því það sé
mjög algengt, sérstaklega meðal
eldra fólks, að það kjósi bara þann
flokk, sem er í stjórn, án þess að
leiða hugann að vali milli flokka
eða markmiða.
Verkalýðshreyfingin í Japan er
vaxandi, en hún er samt klofin og
enn ekki nógu vel skipulögð.
Vegna skipula'gsleysisins eru fé-
lögin ekki eins fjölmenn og annars
mundi Vera.'
í Kóreu er nú búið að leyfa
starfsemi jafnaðarmanna á ný, en
það var ekki gert fyrr en í maí á
síðastliðnu ári. Samt eru enn ýms-
ir af forystumönnum flokksins og
raunar verkalýðshreyfingarinnar
einnig, enn í fangelsum. Þá er
kosningafyrirkomulagið þarna
þannig, að mjög erfitt er fyrir
nýja flokka, sem ekki eiga þegar
fulltrúa á þingi að bjóða frani.
Við þetta bætist svo, að þeir, sem
nú eru við völd nota 'gífurlegar f jár
hæðir, — fleiri milljónir króna, í
áróður svo þeir geti stjórnað á-
fram, og eru þessir peningar oft
ekki heiðarlega fengnir.
— Á Ceylon er nú við völd
flokkur, sem kerinir sig við þjóð-
ernisstefnu. Hann fylgir kapítal-
isma og vinsamlegri sambúð við
vesturlönd, og nýtur ef til vill
einhvers stuðnings frá CIA.
Stjórn frú Bandaranaike missti
meirihluta sinn fyrst og fremst
vegna þess, held ég, að atvinnu-
leysi var gífurlegt meðal ungs
fólks. En það vandamál toefur ekki
batnað, heldur þvert á móti stór-
lega versnað, svo vel getur farið
svo, að frúin fái á ný meirihluta,
til stjórnarmyndunar.
— Það var 'ánægjulegt að koma
til Singapore. Þar eru jafnaðar-
menn við völd og þar er sannar-
iega verið að reyna að leysa þau
vandamál, sem við er að etja. Stórt
átak hefur verið gert þar í fræðslu
málurn og nú er verið að reyna að
gera malayísku að landsmáli, þótt
reyndar meirihluti íbúanna tali
hana ekki. Ýmislegt af því sem
þarna er verið að gera er þess
eðlis að ég held að við á Vestur-
löndum gætum ýmislegt af því
lært.
17. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J
m j