Alþýðublaðið - 22.01.1967, Blaðsíða 3
1
Sunnudags Alþýðublaiðið 22. Janúar 1967
Blaðgræna
í geimnum?
BERKELEY, Kaliforniu,
21. janúar (NTB-Reuter) —
Bandarískur vísindamaður
skýrði í gær frá uppgötvun,
sem hann hefði gert og hann
telur að styðji þá kenningu,
að líf sé á öðrum hnöttum,
ef til vill svipað því og finnst
á jörðinni.
Dr. Fred M. Johnson, vís-
indalegur ráðunautur fyrir-
tækis er framleiðir rafeinda-
tæki og sjónauka, sagði á
fundi í Kaliforniuháskóla, að
hann hefði fundið merki um
blaðgrænu í hinum stóru
rykskýjum Vetrarbrautarinn-
ar. Blaðgræna, sem er eina
efnið í náttúrunni, sem get-
ur varðveitt orku sólarljóss-
ins, er ein helzta undirstaða
alls dýra- og plöntulífs á
jörðunni.
Stefán Júlíusson formaður
Rithöfundasambandsíslands
Nýkjörin stjórn Rithöfundasam-
bands íslands skipti með sér verk-
um á fundi, sem haldinn var 6.
janúar síðastliðinn. Stjórnin er nú
þannig skipuð:
Stefán Júlíusson formaður,
Björn Th. Björnsson varaformað-
ur, Þorsteinn Valdimarsson ritari,
Ingólfur Kristjánsson gjaldkeri og
Indriði Indriðason meðstjórnandi.
Kjörtímabil stjórnarinnar er nu
tvö ár, en sú breyting var sam-
þykkt á aðalfundi beggja rithöf-
undafélaganna, að fulltrúar þeirra
í stjórn Rithöfundasambandsins
skuli fíamvegis vera kjörnir til
tveggja ára í senn, í stað eins
árs, eins og verið hefur frá stofn-
un sambandsins.
Rithöfundasambandið hefur
opnað skrifstofu á Vesturgötu 25,
og verður hún opin tvisvar í viku,
á þriðjudögum og föstudögum kl.
4—6 síðdegis. Starfsmaður skrif-
stofunnar verður fyrst um sinn
Kristinn Reyr. Sími Rithöfunda-
sambandsins er 1 31 90.
Undanfarin ár hefur Kristinn Ó.
Guðmundsson héraðsdómslögmað-
ur verið iögfræðilegur ráðunautur
Árshátíð
KVENFÉLAG Alþýðuflokksins í Reykjavík
heldur árshátíð næstkomandi þriðjudagskvöld í
kl. 8.30 í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. |i
Skemmtiatriði: 1) Sýndar íslenzkar skugga-
myndir. 2) Leikþáttur, Árni Tryggvason og.
Klemenz Jónsson. — Sameiginleg kaffidrykkja.
— Félagskonur fjölmennig og takið með ykk
ur gesti.
Ritöhfundasambandsins, en um
síðustu áramót lét hann af því
starfi vegna annríkis, en hann
hefur svo sem kunnugt er verið
ráðinn bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Stjórn Rithöfundasambandsins
mun þó leitast við að tryggja sam-
bandinu lögfræðilega aðstoð á-
fram, eftir því sem þörf krefur,
og geta rithöfundar snúið sér til
stjórnarinnar og skrifstofunnar’
um fyrirgreiðslu og aðstoð varð-
andi réttindamál sín og annað
það, er snertir málefni rithöfunda
samtakanna.
Leiksýning fyrir
verkalýösfélögin
Leiksýning á einþáttungum
Matthíasar Jóhannessen, Eins og
þér sáið og Jón gamli verður fyr-
ir meðlimi verkalýðsfélaga í Lind-
arbæ fimmtudaginn 26. janúar n.
k. kl. 8.30 e.to. Aðgöngumiðar á
skrifstofu Dagsbrúnar.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.
Myndasýning í kvöld aö Hótel Sögu
Allir þeir, sem fóru í ferðalag Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur til
Skotlands og Danmerkur á sl. .sumri, eru hvattir til að mæta í kvöld,
sunnud’ag kl. 20.30 að Hótel Sögu ÍBláa salnum) og hafe myndir með
sér.
Fararstjórinn, Guðni Þórðarson, mun sýna myndir úr ferðalaginu.
Kaffidrykkja og dans.
Ferðanefndin.
VOLVO 144
hefur verið valinn sem bíll ársins af „Spiegel“ .
í Hollandi og „Teknikens Várld“ í Svíþjóð fyr
ir að vera öruggur, sterkbyggður og nýtízku-
legur í útliti.
- NÝTT ÚTLIT - AUKIN ÞÆGINDI-
- MEIRA ÖRYGGI -
1, Tvöfalt hemlakerfi, (
2. Stýrisstöng með sérstöku
öryggi, þannig að hún fer í
sundur við harðan árekst-
ur.
S. Fullkomið hita- og Ioft-
ræstikcrfi. Hitablástur
hreinsar einnig afturrúður.
4. Hurðir opnast 80*.
5. 9,25 m snúnings þvernuál.
6. Sérlega þægileg sæti.
Franistólar með mörgunt
stillingum.
/s=&.
fvoi,vo)