Alþýðublaðið - 22.01.1967, Side 14
14
22. janúar 1967 — Sunnudags Alþýðublaðið
Tónlist
Framhald bls. 13.
var borinn og barnfæddur, þar var
honum reistur minnisvarði, um
iþað leyti ég var í Kaupmannahöfn,
og gaf ég sem fleiri til þessa minn
isvarða, og heyrði þá sungið í
Haríukirkju hið óviðjafnanlega
Reqguiem Mozarts, sem hann dó ^
frá, en einn af lærisveinum hans
kompóneraði niðurlagið eftir bend
ingu frá Mozart.
Það er „Musiken" í Danmörk
og svo skógarnir, sem ég sakna.
Hitt annað læt ég svo vera.“ —
(G. P. tók saman).
LEIÐRÉTTING:
í tónlistargreininni í síðasta
Skólastjórar
og kennarar
Laugarásbíó hefur ákveðið að bjóða skólunum
í Reykj'avík og nágrenni á sýningu á stórmynd
inni
Sígurður Fáfnisbani
(Völsungasaga fyrri hluti)
gegn vægu verði.
Upplýsingar í aðgöngumiðasölunni frá kl. 3
e. h., símar 32075 og 38150.
LAUGARÁSBÍÓ.
Forstöðukonustaða
Staða forstöðukonu, þ. e. staða yfirstjórnanda
hjúkrunarstarfa í Lndspítalanum, er laus til
umsóknar frá 1. júlí 1967 að telja.
Laun greiðast samkvæmt 23. launaflokki í
Kjaradómi.
Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf,
menntun og aldur, afritum >af prófskírtein-
um og meðmælum sendist til stjórnarnefnd
ar ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, Reykjavík
fyrir 1. marz n.k.
Reykjavík, 21. janúar 1967.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Good Year og Kentile gólfflísar nýkomnar
í fjölbreyttu og fallegu úrvali.
LIJAVER
Grensásvegi 22 — Símar 30280 og 32262.
blaði féll nokkuð úr í setningu,
þannig að málsgreinin sem hófst
neðst í fremsta dálki, varð með
öllu óskiljanleg. Rétt er sú máls-
grein 'á þessa leið:
Þar eð ekki var snefill eftir af
þeirri tónlist, sem flutt hafði ver-
ið með grísku leikunum, urðu höf
undar óperunnar að sækja á önnur
mið um fyrirmyndir. Árum saman
höfðu þeir hlustað á fjölhljóma
tónverk kirkjuleg, sem risið höfðu
hæst með snilldarverkum Pales-
trina (1524—94). Dánarár meist-
arans hafði einn þeirra, Orazio
Vecchi, sett saman nokkra nadri-
gala eða söngva skrifaða fyrir
fimm eða sex raddir, kirkjulega
tónlist um veraldleg efni, fært á
svið af söngvurum í leikbúningum.
Burus
Framhald af 2. síðu.
vinum, sem áhuga liafa, upp á
„Burns-Supper“ þann 27. janúar
með tilheyrandi sekkjapípublæstri,
þjóðarrétti Skota, „haggis“ sérstak
lega sent frá Skotlandi, upplestri
á kvæðum Burns, skozkum þjóð-
dönsum. o.fl.
Stjórn Íslenzk-Skozka félagsins
skipa nú: Einar Tjörvi Elíasson,
verkfræðingur, formaður, Albert
Guðmundsson, forstjóri, varafor-
maður, Einar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri, ritari, William Mc-
Dugall, gjaldkeri, Rita Steinsson,
meðstjórnandi.
INNBROT
Rvík, SJÓ
Brotizt var inn í verzlunina að
Grensásvegi 50. Þar var farið inn
í verkstæðið, söluturninn, tóm-
stundabúðina og skóverzlunina,
en þar voru hurðir brotnar upp
bakatil. Engu var stolið nema 1000
kr. úr tómstundabúðinni. Innbrot-
ið mun hafa átt sér stað einvern
tíma éftir kl. 4 í fyrrinótt. Var
lögreglunni tilkynnt um atburðinn
kl. 8.20 í gærmorgun.
Lesið AlþýðublaSiS
Leiðrétting
í tilefni af frétt í blaðinu í gær
um „næturklúbb" í Hafnarstræti
skal það tekið fram, að enginn
gleðskapur var í Hrannarbúðinni,
heldur í kjallaranum í Hafnarstr.
1. Einnig skal þess getið, að það
var eijandi Hlrannarbúðarinnar, ‘
sem gerði lögreglunni aðvart um,
að ekki væri allt með felldu í
kjallaranum.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 miðvikudaginn 25. janúar kl.
1—3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl.
5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu samúð og vinar-
hug við amllát og jarðarför móður minnar
Guðbjargar Árnadóttur.
\
Fyrir hönd systkina, tengdabarna og barnabarna.
Tómas Vigfússon.
Við viljum hér með tilkynna viðskiptavinum vorum, að skrifstofur fé-
lagsins eru fluttar í ný húsakynni að:
Laugavegi 103
Meðal nýjunga í tryggingum viljum vér benda bifreiðaeigendum á hinar
hagkvæmu bifreiðatryggingar vorar: Ábyrgðar- og hvers konar kasko-
tryggingar.
Vér viljum um leið minna á, að þeir sem ætla að flytja ábyrgðartrygg-
ingar bifreiðá sinna til vor, þurfa að tilkynna oss það fyrir lok þessa
mánaðar.
Brunabótafélaj
Laugavegi 103. -Sími: 24425.
fslands