Dagur - 03.10.1997, Qupperneq 1
87.
80. og
150 kr.
árgangur- 186. tölublað
Verð í lausasölu
BLAÐ
MUljónaferð stjóra og
maka tíl Hong Kong
Fjölmenn sendinefnd
bankastjóra, ráð-
herra, embættis-
manna og maka á árs-
fund Alþjóðabankans
í Hong Kong mun
kosta íslenska skatt-
borgara að minnsta
kosti 6-7 miUjónir
króna.
Sautján manna hópur banka-
stjóra, ráðherra, embættismanna
og maka sótti ársfund Alþjóða-
bankans sem haldinn var í Hong
Kong.
Þar fóru fyrir bankastjórar rík-
isbankanna, ráðherrar og makar
þeirra og starfsmenn Seðlabank-
ans og ráðuneyta. Bankarn-
ir greiða fyrir bæði banka-
stjóra og maka þeirra og
ráðuneytin fyrir maka ráð-
herra, ferðir, gistingu og
dagpeninga. Að sjálfsögðu
er líka allur kostnaður
greiddur fyrir óbreyttu
starfsmennina.
Engin Ieið er að fá kostn-
aðinn nákvæmlega upp gef-
inn. En miðað við fargjöld
til Hong Kong, gistingu þar
og dagpeninga hefur ferðakostn-
aðurinn verið á bilinu 6-7 millj-
ónir króna fyrir þessa vikuferð.
Þar er hugsanleg risna ekki talin
með.
Það var fullyrt við tíðinda-
mann Dags af háttsettum manni
í bankakerfinu að 3 fulltrúar frá
Islandi á fund sem þennan væri
meira en nóg.
Bankaráð Landsbankans - bankinn sendi þrjá fulltrúa til
Kong ásamt mökum.
Samkvæmt upplýsingum sem
blaðið fékk hjá Samvinnuferðum
Landsýn kostar fargjald frá Is-
landi til Hong Kong fram og til
baka frá 85.800 krónum. Ef
ferðast er á Saga Class eða
Business Class kostar fargjaldið
frá 290 þúsund krónum og upp í
450 þúsund krónur.
Venjulegt 1. flokks hótelher-
bergi fyrir tvo í Hong Kong kost-
ar 19.000 krónur nóttin í
tveggja manna herbergi.
Hugsanlega er hægt að fá
ódýrari herbergi og líka
mun dýrari.
Dagpeningar hjá opinber-
um starfsmönnum, ef farið
er til Asíulanda, eru 15 þús-
und krónur á dag og fyrir
Hong maka í þessu tilfelli helm-
ingur þessarar upphæðar.
Frá Seðlabankanum fóru
Birgir Isleifur Gunnarsson
bankastjóri og frú, Ingimundur
Friðriksson aðstoðarbankastjóri
og Olafur Isleifsson, fram-
kvæmdastjóri alþjóðasviðs
Seðlabankans. Eiginkona hans
fór með í ferðina en á þeirra eig-
in kostnað að sögn Birgis Isleifs
bankastjóra.
Frá Búnaðarbankanum fóru
Sólon Sigurðsson og frú að sögn
Pálma Jónssonar, formanns
bankaráðs.
Björgvin Vilmundarson,
bankastjóri Landsbankans, neit-
aði að gefa uplýsingar um hve
margir eða hverjir fóru á fundinn
á vegum bankans. Dagur fékk
upplýsingar þar um eftir öðrum
leiðum. Þeir sem fóru á vegum
Landsbankans voru Björgvin Vil-
mundarson bankastjóri og frú,
Halldór Guðbjarnarson banka-
stjóri og frú og Barði Árnason og
frú.
Frá utanríkisráðuneytinu fóru
Halldór Ásgrímsson og frú og
tveir starfsmenn. Hluti af kostn-
aðinum við ferð þeirra utanríkis-
ráðuneytismanna er greiddur af
Alþj óðabankanum.
Frá fjármálaráðuneytinu fóru
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra og frú. -s.DÓR
Prestar
brjóta
naJmalög
Prestar hafa á fyrstu 8 mánuð-
um ársins 17 sinnum gefið nöfn
sem ekki er að finna á manna-
nafnaskrá, þrátt fyrir skýlaus
lagafyrirmæli um að það megi
ekki. Þetta kemur fram í skýrslu
eftirlitsnefndar um framkvæmd
mannanafnalaganna, en hún var
lögð fram á Alþingi í gær. „Þótt
fjöldi þessara mála sé ekki mik-
ill, eða innan við 1% tilvika, þá
sýnir hann engu að síður að all-
stór hópur presta er tilbúinn að
brjóta skýr ákvæði 1. mgr. 3. gr.
Iaganna," segir orðrétt í skýrsl-
unni og bent er á að brot á lög-
unum varði sektum.
Þar kemur einnig fram að fáir
virðast hafa áhuga á að kenna
sig við bæði föður og móður,
eins og heimilað var í breyting-
um á nafnalögunum í fyrra.
Ekki er heldur mikil sókn í ný
millinöfn. Aðeins 31 barni af
rúmlega 2000 var gefið milli-
nafn og oftast var um að ræða
ættamafn.
Skólastarfið i framhaldsskólunum er nú komid i fullan gang og unga fólkið sökkvir sér ofan í bækurnar. Þegar kennararnir eru orðnir verulega einhæfir er freistandi að líta aðeins út um gluggann.
Myndin var tekin í Menntaskólanum i Reykjavík í gær. - mynd: pjetur
Séra
8 Steingrmmr
koltvísýriiigur
Á 4 * á Blað 2
Fjárlögin
bls. 8 9
BIAGKSlDECKER!
Handverkfæri
SINDRI
-sterkur í verki
B0RGARTÚNI 31 • SlMI 562 7222 • BRÉFASlMI 562 1024