Dagur - 03.10.1997, Blaðsíða 12

Dagur - 03.10.1997, Blaðsíða 12
12- FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 X>npr GOLF Milljón dolum ríkari fyrír holu í höggi „Eg ætlaði mér að koma boltanum í áttina að flötinni. Það var það eina sem ég hugsaði um. Ef ég hefði talið mig eiga möguleika á að fara holu í höggi þá hefði ég orðið taugaveiklaður," sagði bandaríski húsateiknarinn Jay Sarnacki frá Mitchican þegar hann fór holu í höggi á góðgerðarmóti nýlega. Mótshaldararnir ákváðu að borga 400 dala tryggingarfé gegn því að einhver keppendanna færi holu í höggi, en ef það gerðist yrði viðkom- andi milljón dölum ríkari (um 70 millj. ísl. kr.). Það henti einmitt Sarnacki eftir högg á 6. holu vallarins, sem er 150 metrar að lengd. „Eftir að boltinn fór ofan í holuna, þá fóru allir í kringum mig að hoppa um og æpa. Mínútu síðar þurfti ég að leggjast niður vegna þess að ég náði ekki andanum. En í hvert sinn sem ég hugsa um þetta högg þá fer ég að hlæja. Ég er ekki enn farinn að trúa þessu.“ Þrjár stjömur á vesturleið? Þeir sem hyggjast spila á bandar- ísku PGA-mótaröðinni á næsta ári, þurfa að tilkynna þátttöku fyrir nk. mánudag og nú bíða menn spenntir eftir því að sjá hvaða Evrópumenn hyggjast leika vestanhafs á næsta ári.Helsta skrautfjöður Evrópu, Colin Montgomerie, er einn af þeim sem eru á báðum áttum um hvað skuli gera. „Ef ég væri ein- hleypur þá væri þetta ekki spurn- ing, ég færi til Bandaríkjanna á morgun,“ sagði Montgomery. „Það er hins vegar fleira sem ég þarf að hugsa um. Eg hef lagt allt mitt fé í nýtt hús og það að fara með fjölskylduna til Bandaríkj- anna, hefur viss vandræði í för með sér, sérstaklega þar sem börnin eru ung,“ segir Montgomerie. Oánægja Skotans felst helst í slökum vallaraðstæðum á Evrópu- mótunum og löngum ferðalögum, sfðan mótaröðin teygði sig út fyrir álfuna, til Miðausturlanda, Astralíu og Suður-Afríku. Tvær af skær- ustu stjörnum Evrópu af yngri kynslóðinni hafa einnig í huga vestur- för, en það eru þeir Darren Clarke og Lee Westwood, en það mun skýrast í síðasta lagi á mánudaginn. Faxon með 13 km langt putt Brad Faxon, liðsmaður bandarísku sveitarinnar í Ryderbikarnum, sigraði í sérkennilegri púttkeppni sem háð var í Concorde-vélinni sem þeir ferðuðust með til Spánar. Kylfingarnir púttuðu endilangan flug- vélarganginn og pútt Faxons var 23 sekúndur á leiðarenda. „Concor- dinn flaug 8.2 mílur (13.2 km) á þessum tíma, svo þetta hlýtur að vera heimsmet," sagði Faxon. Ruby Grey Enski miðillinn Ruby Grey mun halda námskeið um árur og liti sunnudaginn 12. okt. Uppl. í síma 461 2750, Laufey. Örfáir einkatímar lausir. Colin Montgomeríe. BELTIN IUMFERÐAR RÁÐ Draumahöggin eru orðin 59 á árinu Alls hafa 59 kylfíngar fengið skráð hjá sér holu í höggi í sumar og að sögn Frímanns Gunnlaugssonar, framkvæmdastjóra GSÍ, sem veitir kort- um viðtöku má húast við því að fjöldi nýrra einherja verði um sjö- tíu á árinu. Þeim sem enn eiga eftir að ná draumahögginu í ár, er ráðlagt að leika 15. holuna á Urriða- vatnsvellinum, sem var 6. hola vallarins fyrir stækkun hans í 18 holur. Hún er skráð 68 metrar og sex kylfingar hafa leikið hana á einu höggi í sumar. Sjöunda holan á Korpúlfsstaðávellinum, sem skráð er 130 metrar, hefur einnig reynst sumum farsæl. Fjórir kylfingar þurftu ekki að slá annað en teighöggið á þeirri holu, frá því hún var tekin í notkun um miðjan júní. GOLFSÍÐAN birti í sumar nöfn þrjátíu manna sem farið höfðu holu í höggi í sumar, en þeir 29 sem bæst hafa við eru eftirtaldir, í röð eftir skráningu þeirra. Skúli Guðmundsson, GKJ 9. hola Hlíðarvelli, 118 m Vignir Sigurðsson, GSE 14. hola Setbergsvelli, 1 59 m Guðmundur V. Guðmundss., GSS 6. hola Hlíðarendavelli, 142 m Hörður Harðarson, NK 7. hola Korpúlfstaðav., 130 m Arnór Þ. Hannesson, GR 7. hola Korpúlfsstaðav., 130 m Þorst. Steingrímsson, GKG 3. hola Húsatóftarvelli, 180 m Eyjólfur Vilbergsson, GG 9. hola Húsatóftarvelli, 138 m Jónína Ketilsdóttir, GHD 9. hola Arnarholtsvelli, 91 m Halldór Pálmi Bjarkason, GI 7. hola Tungudalsvelli, 112 m Bragi Eggertsson,- GKG 8. hola Vífilsstaðavelli, 118 m Markús Guðmundsson, GK, 6. hola Hvaleyrarvelli, _ 147 m Daníel Karl Egilsson, GÍ 6. hola Tungudalsvelli, 132 m Baldur Geirmundsson, GÍ 7. hola Tungudalsvelli, 112 m Kristín Karlsdóttir, GÍ 6. hola Tungudalsvelli, 132 m Jón Olafur Jónsson, GS 7. hola Korpúlfstaðav., 130 m Guðjón E. Jónsson, GK 6. hola Hvaleyrarvelli, 130 m Magnús Gunnarsson, GR 17. hola Grafarholtsv., 160m Jónas B. Björnsson, GO 6. hola Urriðavatnsv., 68 m Júlíus Júlíusson, GR 2. hola Grafarholtsv., 136 m Þorsteinn Geirharðsson, GS 13. hola Hólmsvelli, 174 m Þorsteinn Steingrímss., GK 11. hola Hvaleyrarvelli, I 53 m Þorsteinn Hjaltason, GR 15. hola Urriðavatnsv., 68 m Sigurður Haraldsson, GO 8. hola Urriðavatnsv., 97 m Róbert Björnsson, GKG 4. hola Urriðavatnsv., 151 m Ragnar Eggertsson, GO 6. hola Urriðavatnsv. 68 m Hermann Steingrímss., GD 6. hola Urriðavatnsv., 68 m Valdís Geirharðsdóttir, GO 6. hola Urriðavatnsv., 58 m Karl M. Karlsson, GO 4. hola Urriðavatnsv., 151 m Ólafur Brynjólfsson, GO 6. hola Urriðavatnsv., 68 m Framfarir Danans komu Útfari á óvart Úlfar jcmsson hefur att kappi við Ryder- stjömumar Thomas Bjom og Phil Micka- elson, en segist ekki treysta sér til að efna- greina formúluna fyr- ir velgengni þeirra. Ein af hetjum Evrópu í Ryderbik- arnum var Daninn Thomas Bjorn, sem sigraði örugglega í fjórmenningi með Ian Woosnam og sýndi síðan fádæma keppnis- hörku þegar hann jafnaði leikinn við Justin Leonard eftir hroða- Iega byijun. Líklega vita fáir af því að Ulfar Jónsson, marg- faldur Islandsmeistari, hefur leikið nokkrum sinnum með Dananum og var reyndar einnig herbergisfélagi hans, þegar þeir léku með E vr- Úlfar Jónsson. ópuliði áhugamanna gegn úrvalsliði Bret- landseyja fyrir sex árum. „Ég get ekki sagt að það hafi komið mér á óvart hvað Bjorn hafi náð langt, en hins vegar bjóst ég alls ekki við því að honum myndi skjóta upp svo snemma, eins og raun ber vitni. Ég hefði til að mynda ekki giskað á að hann yrði í Ryderliði Evrópu í ár,“ sagði Úlfar, þegar hann var spurður um það hvort velgengni Dan- ans hefði komið hon- um á óvart.“ Bjorn var alltaf með mikið sjálfs- traust og sló gífurlega vel í þessi skipti þegar ég lék með honum. Veikleiki hans var kanns- ki helst stutta spilið, en hann hefur greinilega náð góðum tök- um á því nú,“ segir Úlfar. Thomas Bjom er reyndar ekki eini þekkti spilarinn úr Ryder- Phil Mickelson. Thomas Bjorn. bikarnum sem Úlfar hefur leikið með. Hann Ienti í baráttu við gulldrenginn Phil Mickelson á háskólamóti árið 1990. „Mickel- son var þá þegar þekkt nafn og það bjuggust allir við því að hann mundi ná Iangt, sem hann og gerði. Ég man eftir því, að í þessu móti reyndi hann ýmis sirkus- högg með misjöfnum árangri," segir Úlfar, sem hafnaði í þriðja sæti á mótinu, tveimur sætum á eftir Mickelson. En af kynnum Úlfars af kylfingum í fremstu röð. Hvað er það sem kylfingar hafa til brunns að bera umfram þá sem ekki ná jafnt langt í íþróttinni? „I fyrsta lagi mundi ég segja að menn þurfi að leggja hart að sér. Sjálfstraust, sterk Iöngun og mik- ill metnaður eru þættir sem skip- ta miklu máli. Ég mundi svo bæta við einum óþekktum þætti, því þetta er ekki formúla sem auðvelt er að efnagreina," sagði Úlfar og bætti því við að tækni- lega fullkomin sveifla þyrfti ekki að vera nauðsyn. „Menn þurfa ekki annað en að horfa á Colin Montgomerie. Hann er með marga galla í sveiflunni, en samt sem áður er enginn jafn stöðug- ur og hann.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.