Dagur - 03.10.1997, Blaðsíða 5

Dagur - 03.10.1997, Blaðsíða 5
Dagur FÖSTUDAGUR 3-OKTÓBER 1A37 - 5 FRÉTTIR Útgjöldin 600 þúsnnd á mairn Tekjur og gjöld í nýju fjárlagafnunvarpi eru uui 163 milljarðar, eða um 600 þúsund krónur á hvert maunsbam í landinu. Hækkun frá fjárlög- um þessa árs er að mestu skýrð með hækkun launa og hóta. Ríkisútgjöldin verða 163 millj- arðar árið 1998 samkvæmt fjár- lagafrumvarpi, en tekjurnar um 500 milljónum króna hærri. Af tekjunum tæpir 2 milljarðar vegna eignasölu. Framsetning frumvarpsins er nú með allt öðrum hætti en áður, líkari rekstrarreikningi fyr- irtækja. Ahrif ýmissa ákvarðana varðandi útgjöld, tekjur og/eða lána koma fram með skýrari hætti en áður. Til dæmis koma lífeyrisskuldbindingar ársins (3,8 milljarðar) nú skýrt fram í fjár- lögum en ekki aðeins það sem greitt er út á fjárlagaárinu (1,7 milljarðar). Mikil útgjaldahækkim Breytingin gerir samanburð milli ára erfiðan nema á heildartölun- um. Þær eru skýrðar bæði með nýja og gamla laginu - sem sýnir rúmlega 3 milljarða afgang. Eftir gamla laginu eru útgjöld- in 135 milljarðar á næsta ári, rösklega 8 milljörðum hærri en fjárlög þessa árs. Hækkunin öll, og raunar gott betur, verður á rekstrargjöldum og neyslu- og rekstrartilfærslum. Það skýrir fjármálaráðuneytið aðallega með hækkun launa og bóta almanna- trygginga á þessu ári og því næsta umfram þá 3,5% Iauna- hækkun sem fjárlög þessa árs gerðu ráð fyrir. Aðrar hækkanir en vegna launa og verðlags séu einungis 1% að raungildi. í viðhald og fjárfestingar eru ætlaðir 14 milljarðar líkt og und- anfarin ár. Skatttekjui hækka um 10 milljarða Tekjur næsta árs eru 138 millj- arðar, rösklega 11 milljörðum (9%) hærri en í fjárlögum þessa árs. Þrátt fyrir nokkra lækkun á tekjusköttum einstaklinga hækka áætlaðar skatttekjur um meira en 10 milljarða frá fjárlög- um í ár. Þar af koma 3 milljarðar frá hækkuðum tekju- og launa- sköttum fyrirtækja og skattar á vörur hækka þjónustu enn meira. Töluvert af þessum hækk- unum kemur raunar þegar fram á þessu ári í kjölfar hærri launa landsmanna og meiri eyðslu. Gjöld heilbrigðisráðuneytisins hækka um nær 7 milljarða frá fjárlögum þessa árs, hvar af 4,4 eru vegna verðlags og Iauna- hækkana. Einna mest munar um 16% hækkun lífeyristrygginga. Heildarútgjöld ráðuneytisins eru 62 milljarðar miðað við nýja grundvöllinn, eða rúm 38% fjár- laganna. Meira en helmingur- inn, eða 32 milljarðar, fer í trygg- ingakerfið. Það gerir um 120 þúsund krónur á hvern mann í fandinu. Rúmir 23 milljarðar fara til sjúkrastofnana. Sala 6,2 milljarða hlutafjár er ráðgerð á næsta ári, en þar af er þegar búið að tekjufæra 4,3 milljarða á þessu ári. — hei Hærra og meira Pólsk Samstaða í Hafnar- fírði Við ætlum að leita eftir leyfi til að fá að nota merki Samstöðu í PóIIandi í okkar baráttu hér heima og munum senda ósk þess efnis til PóIIands," sagði Ólafur Sigurðsson, formaður Jafnaðar- mannafélags Hafnarfjarðar, sem ætlar að vera með f samstöðu- hópi jafnaðarmanna og félags- hyggjufólks sem hefur verið myndaður í Hafnarfirði. Samstaða í Hafnarfirði á að vera opinn starfsvettvangur þeirra sem vilja vinna að sam- vinnu og sameiningu vinstri manna í Hafnarfirði fyrir sveitar- stjórnarkosningarnar í vor. Jafnaðarmannafélag Hafnar- Qarðar, sem er landsmálafélag innan Alþýðuflokksins, hefur ákveðið að hefja einhliða viðræð- ur við Alþýðubandalagið um sameiginlegt framboð í vor. Ólaf- ur Sigurðsson segir að þeir bíði ekki lengur eftir því bvað Al- þýðuflokksfélag Hafnarfjarðar gerir. Meirihlutasamstarfið í bæjarstjórn sé að stórskaða flokkinn og sú fórn sé of dýru verði keypt. — S.DÓR Flugleiöir bæta við vélum, fjölga áfanga- stöðum og auka ferða- tíðni. Sigurður Helga- son segir að vöxtur sé í greininni og félagið ætH sér ríflegan hlut í honum. Flugleiðir hafa undirritað samn- ing við Boeingverksmiðjurnar um kaup á fjórum Boeing 575 þotum til félagsins. Þessi samn- ingur er stærsti flugvélakaup- samningur sem gerður hefur ver- ið í sögu flugrekstrar hér á landi. Auk kaupsamningsins voru handsalaðir samningar um fast- an kauprétt á fjórum vélum til viðbótar og lausan kauprétt á öðrum fjórum. Verð fyrstu fjög- urra vélanna er 14-15 milljarðar og hafa Flugleiðir gengið frá 7 milljarða fjármögnun fyrstu vél- anna. Vélar leigðar Flugleiðir hafa á undanförnum árum selt Boeing vélar með um- Sigurður Helgason, forstjórí Flugleiða. talsverðum söluhagnaði. Félagið á vélarnar í 5-6 ár, selur þær síð- an og leigir í önnur 5-6 ár. Sig- urður Helgason, forstjóri Flug- leiða, segir að ekki hafi verið tek- in ákvörðun um slíkt á næst- unni. Hann segir að Flugleiðir hafi náð hagstæðum samningum við Boeingverksmiðjurnar og rekstur félagsins hafi tryggt þeim hagstæð lán. Þetta geri það að verkum að söluhagnaður verði nokkur þegar vélarnar eru seldar. Sigurður segir að félagið geri ráð fyrir 9% aukningu á ári næstu árin. Hann segir að gert sé ráð fyrir að farþegaflutningar í heiminum muni aukast um 6,5% á ári og Flugleiðir ætli sér stærri hlut en það. I þeim tilgangi sé ætlunin að fjölga áfangastöðum og auka tíðni. Hann segir fyrir- tækið muni nýta sér legu lands- ins í þeim tilgangi að ná fótfestu á mörkuðum, einkum útkjálka- mörkuðum. Þannig fljúgi nú um 7% Norðmanna sem fara til Bandaríkjanna með félaginu. Hann segir að British Airw'ays muni hætta með beint flug frá Glasgow 1. nóvember og þar opnist markaður þar sem búa 7 milljónir manna. Starfsmömium fjölgar Sigurður segir að í kjölfar auk- inna umsvifa fyrirtækisins muni starfsmönnum fjölga og gerir hann ráð fyrir að þeim fjölgi um 80-100 við hverja flugvél sem bætist í flotann. Hann segir að Leifsstöð sé að verða of lítil og fagnar þvá að yfirvöld skuli huga að stækkun hennar. MiHjarða framkvæmdir Ríkið hyggst verja rúmum 12 milljörðum króna í nýfram- kv'æmdir og fjárfestingar á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarp- inu sem lagt var fram í gær. I ný- framkvæmdir á vegum landsins eiga að fara 3,6 milljarðar króna á næsta ári. Verja á 1,3 milljörðum í smíði nýs hafrannsóknaskips á næsta ári. Framkvæmdir við heilbrigðis- stofnanir eru áætlaðar kosta um 1 milljarð og þar af 200 milljónir í barnaspítala. Til framkv'æmda váð háskóla og framhaldsskóla á að verja um 800 milljónum. Þá á að setja 500 milljónir af tekjum Ofanflóðasjóðs í að reisa snjó- flóðavarnargarða. MiMl uppsveifla Gert er ráð fyrir áframhaldandi efnahagsbata á næsta ári, sam- kvæmt fjárlagafrumvarpinu. Aætlað er að tekjur ríkissjóðs aukist um nærri 7 milljarða, einkum vegna aukinna umsvifa í samfélaginu. Veltuskattar skila rúmum 4 milljörðum, 1,9 millj- arðar er sala eigna og 1,2 millj- arðar aukinn tekjuskattur fyrir- tækja. Umsvif á þessu ári voru mun meiri en áætlað var í fjárlögum og tekjur ríkisins að sama skapi, eða nærri 5 milljörðum hærri. Innflutningsgjöld skiluðu um 900 milljónum meira en áætlað var og skýrist það f.o.f. af aukn- um innflutningi bifreiða. Fluttir voru inn rúmlega 12.000 bílar, en gert ráð fyrir 9.400 bílum. Kaupmáttur eykst Utlit er fyrir að kaupmáttur ráð- stöfunartekna aukist þrefalt meira á þessu ári en ráð var fyrir gert í fjárlögum 1997, eða rúm 5% í stað 1,7%. Tekjuskattur ein- staklinga verður Jn'í að skila rík- issjóði um 600 milljónum króna meira en áætlað var. I fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna aukist svipað og á þessu ári. Lægri vaxtagreiðslur Vaxtagreiðslur ríkissjóðs eru áætlaðar 12,3 milljarðar króna á næsta ári, eða 4,7 milljörðum lægri upphæð en á þessu ári. Samkvæmt fjárlagafrumvarp- inu er meginskýringin á því sú að á þessu ári voru innkölluð spari- skírteini, sem annars hefðu kom- ið til innlausnar á því næsta. Onnur skýring er sú að vextir á spariskírteinum hafa farið lækk- andi á síðustu árum. Meixa fé í sendiráðin Heildarútgjöld sendiráða Islands og fastanefnda eru áætluð 945 milljónir króna á næsta ári, eða 220 milljónum meira en á þessu ári. Hækkunin skýrist aðallega af því að framlag til byggingar sendiráðs í Berlín er hækkað um rúmar 100 milljónir króna, 24 milljónir fara í rekstur nýs sendi- ráðs í Helsinki og 15 milljónir í nýja fastanefnd hjá Evrópuráð- inu í Strassborg. Þá er að finna nýja fjárveitingu upp á 9 milljónir króna til þess að greiða aukinn skóla- og sjúkra- kostnað sendiráðsstarfsmanna og fjölskyldna þeirra erlendis.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.