Dagur - 03.10.1997, Síða 7
FÖSTV DAGtí R 3 : OKTÓ B F.R R9 9'7’ - 7
ÐiUfur.
ÞJÓDMÁL
1
'
Bréftil ksenda
Ágæti lesandi!
Blaðið sem berst þér í dag markar þáttaskil. Nafn, haus, útlit og efni vísa til framtíðar þriðja
aflsins á íslenska blaðamarkaðnum. Markmið okkar er enn betra blað. Blað fyrir þig.
Þróun blaðsins okkar hefur verið ör. A einu ári hefur það náð að festa sig í sessi og safna
til liðs við sig fólki sem trúir á framtíð þess. Það á jafnt við um Iesendur, starfsmenn og
eigendur. Framtíð blaðsins felst í sókn. Við ætlum að bæta blaðið og bæta við lesendum. Það
ætlum við að gera markvisst og örugglega, aldrei slaka á. Dagurinn í dag er stór áfangi og
sannar að enn verður sóknin hert. Við bjóðum landsmönnum öllum að kynna sér blaðið
sjálfir og taka til þess afstöðu á eigin forsendum.
Við aukum fréttaflutning, við bjóðum til líflegrar þjóðmála- og samfélagsumræðu, og
setjum lífið í landinu í öndvegi. Þetta er blað sem á stuttum tíma hefur öðlast sérstöðu í
íslenskum fjölmiðlaheimi og mun áfram styrkjast sem lifandi afl í samfélaginu.
Áhersla okkar og sjónarhorn er á fólkið og hagsmuni þess. Almannaheill. Aðferð okkar er
lifandi frásögn: ábyrg, upplýsandi og skemmtileg. Við viljum að hver dagur sé nýr dagur
— og betri dagur.
Við óskum eftir góðu og lifandi sambandi við fólkið sem les blaðið. í borg eða bæ, til
sjávar eða sveita: blaðið okkar á að vera það blað sem stendur ykkur næst. Við sem skrifum
hvern dag erum full bjartsýni og trausts á því að lesendur og blaðið muni eiga samleið áfram,
og að æ fleiri muni bætast í hópinn. Við viljum að blaðið okkar sé blað sem skiptir máli.
Skiptir fólkið í landinu máli.
Að baki breytingunum liggur sú sannfæring að það sé bæði þörf og rúm fyrir þriðja dagblaðið
á íslenskum blaðamarkaði. Að fólk um allt land vilji kaupa og lesa dagblað sem fjallar um
atburði, málefni og mannlíf á annan hátt en hin blöðin tvö.
Dagur er hljómfagurt íslenskt nafn. Stutt, þjált, staðfast. Ber í sér bjartsýni, von og vissu
um að aldrei þrjóti verkefni í lífi og starfi þjóðarinnar.
Við bjóðum þérgóðan Dagl