Dagur - 08.10.1997, Síða 5
MIÐVIKUDAGVR B.OKTÓBER 1997 - 21
Smástelpur heillast af Láka enda les hann þeim hallir og hávaxna menn úr lófa með miklum tilþrifum. myndir: brink
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
Græðir á íj arlægðiimi
Hart í bak eftirJökul
Jakobsson verðurfrum-
sýnt áfóstudaginn hjá
Leikfélagi Akureyrar.
Hinn ótrúlegi vilji til
að halda haus hjá
breyskum mönnum er
sem endranærífyrir-
rúmi hjá Jökli og leik-
ritið græðir liklega á
fjarlægðinni sem nú er
komin á samfélag
þess.
Leikmyndin var að taka á sig
endanlega mynd þegar Dagur
kom á rennsli í fyrrakvöld. Gam-
all lúinn bátur og haganlega
gerð tjörn seytlar í kring. Skakt
timburhús eða hjallur, íveru-
staður Aróru spákonu, Láka og
starndkapteinsins sem í bytjun
leikrits situr og starir blindum
augum fram í sal og hnýtir
netakúlur. Þetta er hinn bráð-
skemmtilegi leikari Sigurður
Hallmarsson sem situr og yljar
sér við eldinn og veit svo ofurvel
hvernig er að missa skip.
Aróra spákona kemur fljótlega
inn í söguna, leikin af Guð-
björgu Thoroddsen en Láka son
hennar, sem veit að pabbi hans
er einhver áhöfn, leikur Halldór
Gylfason sem útskrifaðist frá
Leiklistarskólanum í vor. Eg skal
aldrei murrka úr mér líftóruna
fyrir nokkrar krónur á mánuði
kristallar lífssýn hans og hald-
reipið er frændi í útlöndum sem
hann reynir án afláts að komast
í samband við.
„Það er gaman að vinna þetta
hlutverk og ég hef farið í nokkra
hringi með það hvernig strákur
þetta er,“ segir Halldór. „En ætli
ég segi ekki að þetta sé strákur
sem er í aðstöðu sem hann lang-
ar ekki að vera í. Hann á sér
drauma sem erfitt er að upp-
fylla, haldreipið er sleipt en
hann trúir á að frændinn í út-
löndum geti reddað sér.“
- Gengur persónan upp i dag?
„Ég kannast við svona fólk. Já
það finnst mér. Allar vel skrifað-
ar persónur halda fullu gildi
þótt þær eldist aðeins.“
leikskáld okkar? Eyvindur Er-
lendsson leikstýrir á Akureyri.
„Menn hafa verið að átta sig á
því að það sé kominn tími til að
byija á honum aftur. Ég hef
Áróra spákona [Guðbjörg Thoroddsenj tekur 10 krónur fyrir að lesa I bolla en 20 krón-
ur fyrir lófalestur. Uppáferðir eru dýrari.
A111 undir síldinni komið
I fyrra sýndi Leikfélag Reykja-
víkur Dómínó eftir Jökul Jakobs-
son. Er Leikfélag Akureyrar líka
að vakna til vitundar um þetta
Aðalsteinn Bergdal leikur gamla kennarann hans Láka (Halldór Gylfason] og þótt ódæll væri hann sem nemandi hefur kennarinn
taugar til stráksins og hjálpar honum að komast í samband við frændann I útlöndum.
alltaf verið hrifinn af Jökli en
hef samt ekki sett upp önnur
verk eftir hann eða verið með í
hans verkum. Hart í bak setti ég
upp með áhugaleikfélagi Stykk-
ishólms í gamla daga en síðast
var verkið sett upp 1983 hjá
Leikfélagi Reykjavíkur.“
- Hvemig eldist Hart t bak?
„Mjög vel. Það eins gott og
það var þegar það var skrifað og
ég gæti vel trúað að það hafi
ekki sfður endurhljóm núna.
Kannski hefur Ieikritið líka
grætt á fjarlægðinni sem er
komin á þessa tíma, það kemur
fjarlægðarbjarmi yfir þetta.
Skáldskapurinn kemur kannski
skýrar í ljós heldur en var þegar
það lá við að hver maður þættist
þekkja þessar persónur úr dag-
lega lífinu."
„Jökull hefur heyjað sér al-
menna kunnáttu til að skrifa og
það er nú það sem skiptir höfuð-
máli,“ segir leikstjórinn og bætir
við að hann sé ánægður með
Ieikarahópinn sem hann hefur
úr að spila.
- Verður þú meira með LA?
„Það er aldrei að vita. Það er
allt undir síldinni komið eins og
Norðmenn sögðu einu sinni.“
-MAR
Leikfélag
Akureyrar
4 TROMP Á HENDI
*
Hart
/
bak
eftir Jökul Jakobsson.
Frumsýning
á Renniverkstæðinu
föstudaginn 10. október kl. 20.30
UPPSELT
2. Sýning
laugardaginn 11. október kl. 20.30
UPPSELT
3. Sýning
Föstudaginn 17. október
4. Sýning
Laugardaginn 18. október
örfá sæti laus
Leikritið sem skipaði Jökli á
bekk með fremstu leiicskáldum
okkar. Hnyttinn texti - hjartnæm
saga.
Leikarar:
Sigurður Halimarsson,
Guðbjörg Thoroddsen,
Halldór Gylfason
Marta Nordal
Hákon Waage
Þráinn Karlsson
Aðalsreinn Bergdal
Marinó Þorsteinsson
Agnes Þorleifsdóttir
Eva Signý Ðerger
Ólafur Sveinsson
Lýsing: Jóhann Bjami Pálmason
Leikmynd: Hallmundur Kristinsson
og Eyvindur Erlendsson
Leikstj<«n: Ej-vindur Erlendsson
♦ Á ferð með frú Daisy
eftir Alfred Uhry
Kynni auðugrar ekkju og óbrotins
aiþýðumanns.
Hjörtum mannanna svipár saman
í Atlanta og á Akureyri.
Prutmýningá Rmmverkstaxtinu 21. cies
Títilhlutverk:
Sigurveig Jónsdóttir
^ Söngvaseiður
eftir Rodgers og Hammerstein
annan
Ástin og tónlistin takast á við
ofurvald nasismans.
Hrífandi tónlist - heillandi
frásögn.
Fmmsýning íSamkomubtisinu 6. mars
Aðalhlutverk:
Þóra Einarsdóttir
4 Markúsarguðspjall
Víðkunnasta saga hins vestræna
heims.
Frumflutningur á íslensku
leiksviði.
Frumsýnmg á Retmiverkshvðinu 5. apríl
Lcikari: Aðalsteinn Bergdal
Leikfélag Akureyrar
Ljúfar stundir í leikhúsinu
Kort.i og miðasala í fuilum gangi
S.462-1400
er styrktaraðili Leikfélags Akureyrar