Dagur - 08.10.1997, Qupperneq 10
’CÍ r a > r 'i 'i « rt t \i n t «H 'i tkíni’n 3 p. f tr
26 - MIÐVIKUDAGUR 8.0KTÓBER 1997
LÍFIÐ í LANDINU
---~
Da
Skiptar skoðanir
en miklir kostir
Gustur frá Grund með hæsta hæfiteikadóm ársins. Knapi Sigurður Matthíasson.
Stóðhesturinn Gustur
frá Grund hefur verið
seldur til Þýskalands
og söluverðið talið um
sjö milljónir króna.
Gustur er undan Flosa
frá Brunnum og sá af
sonum hans sem best
hefur reynst. Fáir stóð-
hestar komu fram und-
an Flosa og er Kópur
frá Mykjunesi trúlega sá eini sem enn
er hér innan lands af 1. verðlauna hest-
um undan honum.
Flosi var á margan hátt sérstakur
hestur hvað snerti
reiðhestshæfileika.
Viljinn var afspyrnu
góður svo og flestar
gangtegundir. A
Iandsmótinu 1986
fékk FIosi 8,56 í
einkunn íyrir hæfi-
leika, þar af 9 fyrir
skeið og vilja. Teign-
in sem nú er farið
að beita í einkunna-
gjöf hefði gefið hon-
um enn hærri eink-
unn ef henni hefði
verið beitt þá. Und-
an honum hafa
komið margir snjall-
ir reiðhestar, ekki
síður klárhestar en
alhliðahestar. Fótaburður þeirra flestra
hefur verið sérstakur á brokki og tölti.
Viljinn hefur skilað sér vel. En því er
ekki að leyna að sum afkvæma hans
hafa verið erfið.
Hátt dæmdir hestar fara úr landi
Um Flosa og afkvæmi hans hafa verið
skiptar skoðanir en engu að síður bjó.
FIosi yfir hæfileikum sem nýta hefði
mátt betur í íslenska stofninum hér
heima. Því verður að telja að eftirsjá sé
í því afkvæmi hans sem best hefur stað-
ið sig á sýningu og var Iíklegast til að
skila erfðunum frá Flosa. Þess er þó
rétt að geta að Gustur skilur eftir sig
allmörg afkvæmi hér á landi og væntan-
lega eru í þeim hópi stóðhestsefni.
Gustur er með hæstu hæfileika eink-
unnina á þessu ári 8,69. Hann fékk 9,5
fyrir tölt, 10,0 fyrir brokk og 9,5 fyrir
vilja. Þetta eru gríðarlega háar einkunn-
ir og þó hann fengi ekki nema 6 fyrir
skeið þá býr hann yfir miklu þar.
Á þessu ári hafa
farið úr landi mjög
hátt dæmdir stóð-
hestar. Má þar
nefna Glað frá
Hólabaki, sem er
hæst dæmda kyn-
bótahrossið á Is-
landi þetta árið. Þá
er einnig farinn úr
landi Hljómur frá
Brún v/Akureyri en
hann stendur efst-
ur í kynbótamati
yngri stóðhest-
anna. Það gerist
nánast á hverju ári
að hæst dæmdu
hestarnir eru seldir
til útlanda. Fjöldi
fer af hátt dæmdum hryssum ár hvert
svo engan þarf að undra þó samkeppn-
in við önnur lönd sem rækta íslenska
hestinn harðni. Þjóðverjar eru okkar
helstu keppinautar á markaði í Amer-
íku. Þeir sækjast nú mjög eftir hestum
sem hafa góða fótlyftu og mikið fas.
Þetta eru þættir sem selja vel í dag.
Á þessu ári hafafarið
úrlandi mjög hátt
dæmdir stóðhestar. Má
þarnefna Glaðfrá
Hólabaki sem erhæst
dæmda kynbótarhrossið
á íslandi þetta árið.
Að hlæja dátt léttir ekki bara
skapið, heldur Iækkar það blóð-
þrýstinginn og lyftir andlitsvöð-
unum. Við það að hlæja dátt
losnar um endorfin í líkamanum og það
veldur því að manni líður vel. Þess vegna
er maður svolítið léttur eftir gott hlátur-
skast.
Reyndu að sjá spaugilegu hliðar Iífsins,
horfðu á skemmtilegar myndir, lestu
fyndnar bækur og hlæðu með vinum þín-
um. Kitlaðu eiginmanninn
una til að fá fram hlátur.
Eftir því sem þú átt fleiri vini
og skemmtir þér betur, (með því er
ekki átt við að fara á ball eða krá á hverju
kvöldi og vaka fram á nótt) því heilbrigð-
ara og lengra lífi lifir þú, eftir því sem
nýjustu rannsóknir sýna.
Sem sagt, notaðu hvert tækifæri til að
hlæja því hláturinn lengir lífið.
HVAÐ Á É G A Ð GERA___
Skólanestið óspeimandi
Dóttir mín er orðin svo leið á nestinu
sem hún hefur með sér í skólann, en ég
veit ekki hvernig ég get gert það meira
spennandi. Hún hefur venjulega með sér
ostasamloku og fær ávaxtadrykk í skólan-
um. Hún er í 6. bekk og margir krakk-
anna virðast mega hafa með sér kökur
eða kex,' en það vil ég ekki. Ertu með
einhverjar hugmyndir sem eru einfaldar
en þó eitthvað sem krakkar vilja?
Gott nesti þarf að innihalda kolvetni,
prótein og grænmeti. Einfaldasta leið-
in er auðvitað að smyrja samloku, gróft
brauð með salatblaði eða gúrkusneið-
um og kjötáleggi, rækjusalati eða eggj-
um. Hafa svo einhvern ávöxt með til að
borða á eftir. Jafnvel hafrakökur eða
hafrakex sem er svolítið sætt, án þess
að vera dísætt, ef barninu finnst gott
að enda máltíðina á einhverju sætu.
Ef þú hefur aðgang að Internetinu,
skaltu slá inn leitarorðin „lunch box
ideas kids“ og þá færðu upp margar
síður með skemmtilegum nestishug-
myndum.
Vigdís svarar í símarai!
Ertu með ráð, parftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símann kl. 9-12.
Símirm er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Straudgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
Mysuostasúpa
Þessi uppskrift er úr nýju bókinni, Osta-
lyst 3, sem Osta og smjörsalan gefur út.
l/l vatn
100 g sveskjur
40 g sykur
250 g mysuostur
25 g hrísmjöl
1 dl þeyttur rjómi
Salt
Hitið vatnið. Sjóðið sveskjurnar í u.þ.b. 5
mín. og færið þær upp. Skerið ostinn
smátt og látið hann bráðna í heitum
vökvanum. Jafnið súpuna með hrísmjöl-
inu og látið hana sjóða í 10 mín. Sykrið.
Smakkið til með saltinu, ekki víst að þörf
sé á því. Þeytið rjómann og setjið hann á
botninn á súpuskal og heilið súpunni yfir.
Leggið sveskjurnar í. Ausið súpunni upp
og setjið þeyttan rjóma á hvern disk.
Berið fram með þeyttum rjóma.
Ráðagóðahornið
S Stundum vill gulur blær verða
I á hvítum heimilistækjum. I'il
) þess að losna við það og
■1**#**! einnig af borðplötum, má nota
eftirfarandi blöndu:
/ bolla af ldór, 14 bolla af matarsóda
og 4 bolla af volgu vatni. Berið á með
svampi og Iátið liggja á í 10 mín. Skolið
vel.
Til að ná erfiðum blettum af teflon-
húðuðum pönnum og pottum, er gott að
setja 2 tsk. af matarsóda ásamt / bolla
af ediki og 1 bolla af vatni í pottinn og
sjóða uppá. Berið salatolíu innan í pott-
in áður hann er notaður.
Til að hreinsa koparpotta, fyllið úða-
brúsa með ediki og látið 3 tsk. af salti
útí. Uðið á pottinn, látið standa dálitla
stund og þurrkið af.
Með því að bæta smávegis af ediki í
uppvottavatnið verður leirtauið glans-
andi og fínt.