Dagur - 09.10.1997, Blaðsíða 11
Tk^ur
FIMMTVDAGVR 9.0KTÓBER 1997 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
SMÁTT OG STÓRT
FjarskynjuB gæludýra
Margir telja að gæludýr hafi fjarskynjunarhæfileika og viti þegar
eigendurnir eru á leið heim úr vinnu eða ætla að hringja heim.
Nú hefur breskur
jurtalífeðlisfræðingur
sýnt fram á að ósýni-
legt fjarskynjunar-
samband myndast oft
milli gæludýra og eig-
enda en flestir vís-
indamenn eru á móti
þessari hugmynd,
eins og fram kemur í
nýja tímaritinu Lif-
andi Vísindi. Þeir
Ósýnilegt samband millimanns og gæludýrs? telja að skynjun dýra
----------------------------- sé miklu skarpari en
mannsins og það
skýri það sem virðist dularfullir hæfileikar. Þjóðsagan segir hins
vegar að maðurinn sé ákafur í að túlka eðlilega hluti sem yfir-
náttúrulega. Samkvæmt þessu myndu ljarskynjunarhæfileikar
dýranna teljast hugarburður eigandans. Athyglisvert, ekki satt!
Tregða? Nei, varla.
Skriffinnskan hjá hinu opinbera virðist alltaf vera söm við sig og
seinagangurinn svipaður þó að ný upplýsingalög hafi verið sam-
þykkt. Snemma á
þessu ári fjallaði Dag-
ur-Tíminn um skot-
vopn lögreglunnar og
heimsótti Víkinga-
sveitina en fékk síðan
þær upplýsingar frá
dómsmálaráðuneyt-
inu að ekld yrðu gefn-
ar upplýsingar um
skotvopnaeign lög-
reglunnar. Um skot-
vopnaeign þjóðarinn-
ar gilti hins vegar
Tregða i tíduneyti? Nei, varia... öðru máli - þeim
upplýsingum þyrfti
bara að safna saman. Nú rúmu hálfu ári síðar fást þær upplýs-
ingar að tölurnar hafi borist ráðuneytinu en það eigi eftir að
\inna úr þeim. Maður vísar á annan, maður hættir í vinnu og
fer í aðra vinnu og annar maður tekur við gömlu vinnunni. Lík-
legast eru þetta iíka upplýsingar sem embætti ríkislögreglustjóra
mun vinna úr. Þessar upplýsingar liggja greinilega ekki á lausu
og flokkast kannski sem ríldsleyndarmál, eða hvað? Það kannski
skýrist um áramót - enda bendir allt til þess að það taki árið að
fá þessar tölur úr ráðuneytinu. Var einhver að tala um seina-
gang og tregðu hjá hinu opinbera?
Aflita hárið aldrei
aftur
„Þetta ersvo róleg
vinna, kvikmyndaleik-
urinn, “ segir Ólajta
Hrötin Jónsdóttir, en
hún leikur adalhlut-
verk í nýrri íslenskri
kvikmynd „Perlurog
svín“, sem verður
frumsýnd í dag.
Með því á hún við að hægt er að
taka aftur og aftur sömu senuna
og eldd þarf að gera nema smá-
parta í einu, sem er ólíkt vinn-
unni í Ieikhúsinu. Það er tölu-
vert álag á leikstjóranum því
hann þarf að hafa á hreinu hvar
hver og einn er staddur og svo
þurfa leikarar að geta sett sig í
réttar stellingar hverju sinni.
„Þetta hefur gengið rosalega
vel hjá okkur. Eg er að vísu svo-
lítið titrandi, því ég hef ekki séð
þetta í heilu lagi, bara í smábút-
um. Við tökum þetta heldur ekki
í réttri röð, heldur svona fram
og til baka, byij-
um kannski á
endinum og för-
um svo inn í
miðju, þannig að
maður verður að
kunna að kveikja
á sér og bíða á
milli."
Handritið var
ekki samið f einu
lagi, heldur hitt-
ust leikarar og
höfundur fyrir
um þremur árum
og sköpuðu persónur. Svo settist
höfundur niður og skrifaði og
þau hittust aftur til spjalls og
ráðagerða og höfundur skrifaði
meira eftir það. Handritið var
sem sagt unnið í nánu samstarfi
við leikendur.
Létt og skeuimtilegt
„Það var mjög gaman f þess-
um tökum, góður andi og við
skemmtum okkur öll vel. Það
var afskaplega gott og létt
andrúmsloft. Ég vona að það
skili sér í gegn-
um myndina,
ég trúi ekki
öðru en að það
skili sér,“ segir
Ólafía.
Henni er hár-
liturinn ofarlega
í huga „Eg
þurfti að láta
aflita hárið á
mér til að fá það
svona hvítt, það
er nokkuð sem
ég kem ekki til
með að gera aftur, en mér þykir
gaman að hafa gert það fyrir
þetta hlutverk og séð hvernig ég
er með svona hvítt hár,“ segir
Ólafía. — VS
„Þetta liejurgengið
rosalega vel hjá okkur.
Ég erað vísu svolítið
titraiidi,því ég lief
ekki séð þetta í heilu
Iagi,“ segirÚlafia
Hrönn um
Perlurogsvín.
Óiafia Hrönn Jónsdóttir leikur aðalhlutverk i myndinni Perlur og svín, en áður hefur hún ieikið i myndunum Skýjahöllin og Svo á jörðu sem á
himni. - mynd: pjéwr
SPJALL
Þúsund liljur
Nýju nöfnin mannanafnanefndar hafa verið til
umræðu undanfarið og hafa ýmis nöfn vakið at-
hygli. Mesta athygli vekur Lúsífer en drengur
með því nafni yrði kenndur við þann vonda sjálf-
an. Einnig Þórsteinn, Antonio, Werner, Sandri
(af Sandra, Alexandra), Þorvar, Ástvin, Kosmo og
Ká (eins og bókstafurinn). Þessum nöfnum hef-
ur ýmist verið hafnað eða þau verið samþykkt.
Mannsnafnið Kaprasíus hljómar líka undarlega
þó að gamalt sé og hefðin sé fyrir hendi. Kven-
mannsnöfnin eru mörg og fjölbreytileg eins og vera ber og má til
dæmis nefna Rósinkara, Maídís, Bergrín, Jóndís, Myrra, Bjart-
mey, Yrja, Veiga, Ríta, Louisa og Katinka en nafninu Cathinca
hefur verið hafnað. Erlen er hins vegar fullgilt nafn enda dregið
af mannsnafninu Eriendur. Islenska þjóðin hefur svo sannarlega
leyft hugmyndafluginu að njóta sín eftir að lögin voru rýmkuð.
Var það ekki Maó sem sagði eitthvað á þessa leið: Látið þúsund
liljur blómstra?
GUÐRUIM H.
SIGURÐARD.
Kolbrun
Bergþórsdóttir
Kollafer í bíó
Eirni gegn eldfj alli
Volcano ***
Aðalhlutverk: Tonuny Lee
Jones, Anne Heche.
Leikstjóri: Mick Jackson.
I stórslysamynd ársins gýs eld-
fjall í Los Angeles og fulltrúi al-
mannavarna, Tommy Lee Jones,
er svotil einn til varnar. Hlut-
verkið gefur þessum ágæta leik-
ara ekki svigrúm til mikils ann-
ars en að vera áhyggjufullur og
ábúðarmikill, en hvorutveggja
gerir hann með sóma. Hann er
hinn karlmannlegi bjargvættur
og þegar hann, umkringdur
rústum og spúandi eldfjalli, seg-
ir: „Ég veit eldd hvað ég á að
gera,“ veit áhorfandinn betur,
enda hefur Tomrny ekki fyrr
sleppt setningunni en hann
kemur auga á lausnina.
I aðalkvenhlutverkinu, hlut-
verki jarðfræðings, er Anne
Heche yfirleitt á hlaupum, eins
og aðrar persónur myndarinnar.
Þar sem hlutverkið býður ekld
upp á mikil tilþrif er illmögulegt
að dæma um hæfileika leikkon-
unar en hún er óneitanlega
mjög snotur.
Það vottar fyrir tilraun hand-
ritshöfunda til að skapa persón-
um séreinkenni og karakter, en
það er eins og þeir hafi snemma
komist að þeirri niðurstöðu að
eldfjallið væri stórstjarna mynd-
arinnar og við það þýddi ekki að
keppa. Persónur myndarinnar
verða því aldrei annað en andlit
fólks sem er misjafnlega mikið
hrætt.
Á einstaka stað verður myndin
kjánaleg líkt og þegar eldhnettir
lýsa upp himininn og Anne
Heche segir hugfangin: „Þessu
hefðir þú ekki \iljað missa af,
Rakel" - og mælir til vinkonu
sinnar sem eldQalIið hafði gleypt
skömmu áður!
Raunveruleiki myndarinnar
býr í tæknibrellunum fremur en
í handritinu og þær tæknibrell-
urnar eru svo magnaðar að
áhorfandinn situr oft og tfðum
ansi skelfdur í sæti sínu.
Skemmtanagildi myndarinnar er
ótvírætt og þeir sem vilja hasar
og læti ættu ekki að láta hana
fram hjá sér fara.
Mynd sem mælt er með
Júlía Roberts er í hlutverki
Julianne í léttri rómantískri
gamanmynd, My Best Friend’s
Wedding, og ætlar sér að koma
í veg fyrir brúðkaup besta vinar
síns sem hún telur sig elska.
Dermont Mulrone er í hlut-
verki brúðgumans og skortir
sjarma og hæfileika til að gera
hlutverkinu viðunandi skil.
Cameron Diaz er hins vegar
krúttleg í hlutverki brúðarinn-
ar. Rupert Everett, í hlutverki
homma á myndina, leikur af
þokka, íjöri og húmor á þann
veg að jafnvel Júlía Robert á
ekki roð við hann. Mynd fyrir
rómantískar sálir.