Dagur - 18.10.1997, Side 3
I
SÖGUR OG SAGNIR
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 - ffi
Gullöldiii á Akranesi
Ég endaði síðasta þátt árið 1933,
með því að segja frá því að við
komu Axels Andréssonar til Akra-
ness, hafi færst nýtt líf í allt íþrótta-
líf á staðnum. Því auk þess að þjál-
fa strákana í fótbolta byrjaði að
kenna stúlkunum handbolta og
hélt námskeið fyrir dómara og það
er athyglisvert, að 16 júní það ár
ljúka 12 ungir menn dómaraprófi í
knattspymu. Þá minntist ég á að
gamli völlurinn sem þá var til stað-
ar, var ekki talinn boðlegur lengur.
Því var leitað til hreppsnefndar um
nýtt vallarstæði. Hreppsnefndin
brást vei við beiðni knattspymufé-
laganna og þau fengu úthlutað
svæði á Jaðarbökkum, en það
þurfti mikillar lagfæringar við.
Hinir ungu og áhugasömu menn á
Akranesi á þeim tíma létu það ekki
á sig fá og söfnuðu liði til að byrja
framkvæmdir.
Vorið 1934 byijuðu sjálfboðalið-
ar að vinna við völlinn. Sú fram-
kvæmd gekk sem von var nokkuð
hægt fyrir sig, því á þeim árum var
vinnudagur oft langur, en öll vinna
við vallargerðina var unnin í frítím-
um. En menn létu ekki deigan
síga, því hvenær sem stund var að
finna var unnið við völlinn og það
var því mikil hátíðarstund þegar
völlurinn var tekin í notkun við há-
tíðlega athöfn 16. júní 1934.
Völlurinn var að sjálfsögðu mal-
arvöllur, annað þekktist ekki á
þessum ámm, þótti góður og mun
betri, en sá sem fyrir var. Þessi
framkvæmd var byrjunin og mark-
aði tímamót í uppbyggingu íþrótta-
mannavirkja á Akranesi. Völlurinn,
sem tekinn var í notkun árið 1935
er á sama stað og núverandi keppn-
isvöllur Skagamanna er í dag. Ég
mun vfkja nánar að því síðar og
segja þá sögu, er hann var gerður
að grasvelli og af frekari uppbygg-
ingu íþróttamannvirlga á Jaðars-
bökkum, þar sem nú er risin glæsi-
legasta aðstaða til knattspymuiðk-
unar sem til er á landinu.
íþróttaráð stofnað
Til að treysta enn betur allt starf
og samstarf knattspymufélaganna,
var íþróttaráð Akraness stofnað
31. maí árið 1934 og var Axel
Andrésson kosinn fyrsti formaður
þess. I lögum ISI var ákvæði um að
íþróttaráð skyldi stofna á hinum
ýmsu stöðum á landinu og hlut-
verk þess væri að fara með yfir-
stjóm íþróttamála í héraði.
Stofnun íþróttaráðsins markaði
þáttaskil í sögu íþróttamála á Akra-
nesi, því þá fyrst komst allt íþrótta-
starf í það form sem við þekkjum í
dag.
Meistaraflokkur ÍA 1947. Aftari röð frá vinstri: Albert Guðmundsson þjálfari, Dagbjartur Hannesson, Óli Örn Ólafsson, Einar
Árnason, Ásmundur Guðmundsson, Halldór V. Sigurðsson, Ólafur Vilhjálmsson. Fremri röd frá vinstri: Jón S. Jónsson, Ársæll
Jónsson, Jakob Sigurösson, Lúðvik Jónsson og Guðjón Finnbogason.
Fyrstu íslandsmeistara I knattspyrnu - 2. Fl. ÍA 1946. Aftari röð frá vinstri: Ftíkarður
Jónsson, Emil Pálsson, Þórður Þórðarson, Pétur Georgsson, Lúðvík Jónsson. Fremr-
ið röð frá vinstri: Ársæll Jónsson, Arnór Ólafsson,Benedikt Vestmann, Dagbjartur
Hannesson, Guðjón Finnbogason. Fremst er Sólmundur Jónsson markvörður.
áfram þátttöku í landsmóti 1.
flokks og fyrst að Ioknum sigri þar
væri tfmabært að taka þátt í meist-
araflokki. Einhveijir vildu að félög-
in hættu að senda sameiginlegt lið,
enda var mikill rigur milli félag-
anna. Þeir sem vildu taka þátt í Is-
landsmóti meistaraflokks höfðu að
lokum betur og það varð úr að
Skagamenn sendu Iið í íslandsmót-
ið árið 1946, en með í mótinu voru
auk þeirra, Valur, KR, Fram, Vík-
ingur og Akureyringar, sem aftur
voru með eftir nokkurra ára hlé.
Það er skemmst frá því að segja, að
Skagamenn og Akureyringar voru í
neðstu sætunum með sömu stiga-
þess hófst, var það vígt og tekið í
notkun. Það er ekki nokkur vafi á
því, að þetta framtak íþróttafólks á
Akranesi, er eitt mesta framfara-
spor sem tekið hefur verið í íþrótta-
sögu Akraness, fyrr og síðar. Með
tilkomu hússins gjörbreyttist öll
aðstaða til iðkunar íþrótta, auk
þess sem það skapaði mikla sam-
stöðu milli knattspyrnufélaganna,
sem ekki hefur rofiiað síðan. Hús-
ið var strax notað jafnt af skólum
bæjarins sem íþróttafélögum og var
starfsemi þar samfelld frá morgni
til miðnættis þau 30 ár, sem það
var í notkun. - Helgi Daniflssox
Fyrsta knattspymu-
heimsóknin
voru Skagamenn smám saman að
byggja upp góða yngri flokka og
höfðu á að skipa góðum 2. og 3.
flokki.
tölu, því bæði bæði gerðu þau jafri-
tefli við Víking og jafntefli 1-1 varð
í innbyrðis leik þeirra.
Fyrsti íslandsmeist-
aratitillinn
En annað og merkilegra gerðist í
knattspyrnusögu Akraness árið
1946.1 Islandsmóti 2. flokks unnu
Skagamenn frækilegan sigur og
færðu Akurnesingum fyrsta Is-
landsmeistaratitilinn í knatt-
spymu. I þessu liði voru leikmenn,
sem áttu eftir að vekja á sér veru-
lega athygli á næstu árum og ára-
tugum og færa Skagamönnum
marga glæsta sigra. Má þar nefna
Ríkarð Jónsson, Þórð Þórðarson,
Pétur Georgsson, Guðjón Finn-
bogason, Svein Teitsson og Dag-
bjart Hannesson.
Með þessum sigri má segja að
lagður hafi verið grunnurinn að því
knattspymuveldi sem síðar varð á
Akranesi og hefur haldist til dags-
ins í dag.
Merkir áfangar í
íþróttasögu Akraness
Áður en ég skil við þetta tímabil
vil ég nefna tvennt, sem markar
djúp spor í íþróttasögu Akraness.
Hið fyrra er, að árið 1946 var
Iþróttabandalag Akraness stofnað,
en fyrsti formaður þess var Þorgeir
Ibsen fjrrum skólastjóri í Hafnar-
firði og á sama ári taka Akumesing-
ar þátt í viðræðum við forráða-
menn Knattspymuráðs Reykjavík-
ur, fyrstir utanbæjarmanna og
kappleiki og íþróttastarf, sem Ieid-
di til stofnunar KSÍ árið 1947.
Hitt er bygging íþróttahússins
við Laugarbraut, sem var á sínum
tíma stærsta íþróttahús landsins.
Framkvæmdir við húsið hófust
haustið 1944 og var það nær ein-
göngu byggt í sjálfboðaliðsvinnu og
engin laun greidd nema yfirsmiðn-
um. Sex mánuðum eftir að bygging
íþróttaráðið vann mjög gott starf
við að sameina kraftana til nýrra
átaka og fyrir atbeina þess fóm
knattspyrnufélögin að ferðasat
sameiginlega til annara staða til að
keppa, svo og til að taka á móti
knattspymuliðum frá öðrum stöð-
um.
Fyrsta knattspyrnuheimsóknin
til Akraness er árið 1934 er 1.
íþróttahúsið við Laugarbraut, sem byggt var i sjálboðavinnu 1944-1945.
Unnið við knattspyrnuvöllinn á Jaðarsbökkum árið 1934.
Skagamenn meðal
þeirra hestu
Að loknu íslandsmótinu 1945
kom upp sú hugmynd að taka þátt
í Islandsmóti meistaraflokks á
næsta ári. Um það urðu menn ekki
á eitt sáttir. Nokkrir vildu halda
flokkur Hauka í Hafnarfirði kemur
til að keppa við sameiginlegt Iið KA
og Kára. Leiknum lauk með 5-2
sigri heimamanna.
Það er síðan á árinu 1935, sem
Skagamenn fara í sína fyrstu
keppnisferð til Reykjavíkur og var
það í boði Víkings, og er ástæða
þess sú að Axel Andrésson sem var
þjálfari þeirra var fyirum formaður
Víkings. Ekki fóru Skagamenn sig-
urför í sinni fyrstu keppnisferð því
þeir töpuðu 1 -6 í 1. flokki og 0-9 í
3. flokki. Víkingar endurguldu
heimsóknina árið eftir.
A næstu árum var æfingum
haldið áfram og keppt við knatt-
spymulið frá Reykjavík og öðrum
bæjum, bæði heima og að heiman.
Það gekk á ýmsu í þessum leikjum
og ekki unnust margir sigrar.
Skagamenn voru þó á þeim buxun-
um að Ieggja árar í bát þótt illa
gengi, heldur héldu ótrauðir áfram
að bjóða til leikja á Akranesi og
heimsækja önnur félög. Knatt-
spymusaga næstu ára verður ekki
rakin hér.
Þrátt fyrir að KA og Kára væru í
nánu samstarfi, þegar keppt var við
Iið frá öðrum bæjum, var mikil og
hörð keppni milli félaganna og
mikil rígur, stundum meiri en góðu
hófi gegndi.
Þátttaka í landsmóti
Árið 1943 fóru menn að hugsa
um að taka þátt í íslandsmóti 1.
flokks og varð það úr að sent var
sameiginlegt lið í mótið. Skaga-
Þeir fyrstu sem tóku dómaraprófí knattspyrnu á Akranesi 16. Júní 1933 ásamt
Axel Andréssyni kennara og þjálfara.
menn léku tvo leiki í mótinu og
töpuðu þeim báðum. Þótti mönn-
um ljóst að enn vantaði töluvert
uppá til að liðið gæti eitthvað stað-
ið í Reykjavíkurliðunum. Það var
því ekkert um annað að ræða en að
herða sóknina og æfa meira og
gera enn betur á næsta Islands-
móti. Aftur vom Skagamenn með í
1. flokki árið 1944 og þá náðist sá
árangur að þeim tókst að vinna
Víking 2-0. Áftur vom Skagamenn
með árið 1945, en þeir sóttu ekki
gull í greipar andstæðinganna frek-
ar en fyrri daginn.
Þótt ekki hafi gengið vel í ís-
landsmóti 1. flokks á þessum ámm