Dagur - 18.10.1997, Page 5
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 - V
FÓLK Í ÆTTUM
Vandratað er imt villustig
Pétur Thorsteinsson á Bíldu-
dal var einn þeirra sem settu
svip á sína öld, báðum megin við
aldamótin. hans er enn minnst
vestra, því undir forustu og fyrir
dirfsku hans steig atvinnulífið
inn í nýja öld fyrr en annars og
sagt er að gæfa fylgi djörfum.
Hann kemur fram í fjölda frá-
sagna og ævisögum manna frá
öldinni sem leið.
Lúðvík Kristjánsson reit
Bíldudalsminningu til að minn-
ast Péturs, fjölskyldu hans og
samstarfsmanna á velgengisár-
unum á Bíldudal.
Pétur var óskilgetinn, rang-
feðraður, alinn upp hjá vanda-
lausum og sáust Iengi vel engin
deili til þess að hann yrði vinsæll
og auðugur stórútgerðarmaður
og þorpsfaðir. Þessar andstæður
voru hrífandi og hafa alltaf vak-
ið áhuga og forvitni um mann-
inn. Hann fékk gott kvonfang,
eignaðist margt barna og er nú
margt manna frá honum komið.
Asgeir Jakobsson skrifaði um
Pétur, ættargrunn hans og við-
skiptatengsl og heitir rit hans
Bildudalskóngurinn. Þar fjallar
hann nokkuð um Þorstein í
Æðey er sig kallaði Th. Thor-
steinsson og var faðir Péturs.
Þar er þó rangt farið með atriði
úr ævi Þorsteins og er það allillt
þareð ætla má að Bíldudals-
kóngurinn sé í margra höndum.
Sýnir þetta eitt með öðru að
vandfarið er með gloppóttar
heimildir og skal fyrst líta á bls.
41-45.
Það er þá fyrst að það er rangt
að Þorsteinn væri fæddur í Tröð
í Alftafirði. Fæðingarstaðurinn
er Traðir í Seyðisfirði, hjáleigu-
kot í túnjaðri á Eyri í Seyðisfirði
þar sem afi hans var prestur þá.
Þá er fæðingardagur hans held-
ur ekki réttur og virðist hafa ver-
ið farið Iínuvillt í kirkjubókinni.
Þorsteinn er fæddur 18. júlí
1817 en næsti piltur á undan
14. sama mánaðar.
Rétt mun þess til getið að Þor-
steinn hafi alist upp á Kirkjubóli
í Skutulsfirði, hann er ekki hjá
foreldrum 1820. Hins er hér
ógetið að hann er skráður á
Kirkjubóli 1822, fósturbarn, sta-
far þá og farinn að læra fræðin.
Hann fermist þaðan 1830 og
allar vangaveltur um annað eru
því út í hött. Síðan má finna að
1832 fer hann að Ytri-Hjarðar-
dal í Onundarfirði, kallaður
skrifari. Þá var Ebeneser Thor-
steinsson sýslumaður búandi í
Hjarðardal og Abigael föðursyst-
ir Þorsteins þjónandi hjá hon-
um. Þorsteinn er svo horfinn úr
Önundarfirði 1835.
Óskiljanleg er tilvitnun í
kirkjubók Eyrarsóknar þess efn-
is að Þorsteinn komi á Tangann
1840. Þar er allt annar og yngri
maður á ferð og hann kemur að
Tungu, ekki á Tangann. Ártalið
er 1846, ekki 1840. Best er því
að þögnin geymi þessa klausu
framvegis.
Þá verður það að teljast þjóð-
saga á bls. 78 að Þorsteinn veldi
Pétri syni sínum samastað 1857
og að hann færi 3ja ára í fóstrið.
Pétur er kominn að Hall-
steinsnesi 1855, er þar skráður
við manntal í árslok, búinn að
lifa tvær jólanætur og því talinn
2ja ára að þeirrar tíðar hætti.
Þá er Halla komin í verstöðv-
arlífið við Djúp, er vinnukona í
Vigur það ár en á Isafirði árið
eftir. Hún kemur svo að Suður-
eyri í Súgandafirði 1857 og elur
þar son sinn, Sölva Ágústínus, f.
12. ágúst 1857. Faðir hans er
skráður Sölvi Thorsteinsson á
ísafirði, bróðir Þorsteins í Æðey.
Sölvi yngri fermdist á ísafirði en
hverfur síðan og sögn er að
hann hafi drukknað ungur.
Halla hefur svo farið aftur til
ísafjarðar því þaðan kemur hún
1859 til að trúlofast Þorbirni í
Selárdal..
Framangreind atriði eru ekki
dregin hér fram til að kasta rýrð
á verk Ásgeirs um Bíldudals-
kónginn. Það verk hefur sína
verðleika, varpar nýju Ijósi á
margt, víða með skáldlegum
sprettum og talning ættfræði-
staðreynda er þar enginn megin-
tilgangur.
En þau atriði sem rangt
kunna að vera tilfærð lýta ann-
ars ágætt verk og ber að leiðrétta
svo ekki verði til þeirra vitnað.
Þetta getur sýnt þeim sem nú
lifa að það er vandratað um
brautir misgóðra heimilda og
sveitaslúðrinu illtrúandi fyrr og
nú. Læri svo hver fyrir sig.
Á.S.
Skrií síra Agústs Sigurðs-
sonar unt syndir annarra
Sagt hefur verið að óráðlegt sé
að glíma við sótarann, því flekk-
laus komist enginn úr slíkri viður-
eign.
Ég tek samt áhættuna, því ég
get ekki orða bundist yfir þeim
neikvæðu skrifum og níði, sem
þjónandi prestur Þjóðkirkjunnar
hefur látið fxá sér fara hér í blað-
inu að undanförnu um Iöngu
látna mæta og góða drengi. Eg Iýsi
yfir furðu minni og vanþóknun á
því að slík skrif skuli birt í blaði
sem ber nöfnin DAGUR og TÍM-
INN. Þau gömlu og góðu blöð
voru undir stjórn og birtu hreint
ekki allt sem þeim barst í tímans
rás frá misvönduðum höfundum.
En ef síra Ágúst hefur um sinn
lokið skrifum um „syndir ann-
arra“, þá vil ég benda honum á að
taka næst fyrir söguþætti af sjálf-
um sér og draga ekkert undan.
Vera kynni að skrifin enduðu með
orðunum „... óhreinn kem ég vei,
ó vei, væg mér herra, deyð mig ei“.
Eg hef borið skrif síra Ágústs
undir starfsbróður hans, sem er
mjög kunnugur málum, en hann
segir: „Það er ekki heil brú í því
sem hann er að þvæla. Það sem
mig furðar mest, er að nokkur rit-
stjóri með virðingu fyrir sér og
sínu starfi, skuli vera fáanlegur til
að birta. slíkan þvætting í blaði
sínu, þar sem allar heimildir vant-
>*V ,| -i'f \i JL*h‘ítÉráw/?s23SBjmM.''*41.1.1»»i "
1
Þannig var ástandid i norrænum krikjum fyrir 100 árum. Hafa prestar ennþá ekkert
lært í háttvisi?
ar. Og það um þjóðkunnan mann,
löngu íiðinn, sem átt hefur og á
enn marga stórmerka og gáfaða
afkomendur, sem margir munu
kannast við. Nægir þar að nefna
til dæmis Helga Hálfdánarson
prestaskólakennara, son hans Jón
biskup og Helga Hálfdánarson
yngri, hinn þjóðkunna þýðanda
erlendra stórskálda. Biblíufélagið
hefði mátt senda blaðinu stutta
ábendingu um hvíh'kt níð hér sé
um að ræða og algjör sögufölsun".
Svo mörg voru þau orð. Blaðið
ætti að biðja þjóðina velvirðingar á
þeim mistökum, að óhróður
prestsins skyldi verða birtur. Já, og
ef það vill lengi lifa og heita þvf að
slíkt skuli ekki endurtaka sig. ÖIl-
um getur orðið á í messunni, því
enginn er fullkominn - ekki einn.
Hermann Þorsteinsson
Minningargreinar
Minningargreinar birtast aðeins í laugardagsblöðum Dags.
Þær þurfa að berast á tölvudiskum eða vélritaðar.
Myndir af þeim sem skrifað er um þurfa að berast með
greinunum.
Sendist merkt Dagur
Strandgötu 31, 600 Akureyri
Garðarsbraut 7, 640 Húsavík
Þverholti 14, 105 Reykjavík