Dagur - 18.10.1997, Side 8
VIII - LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
ANDLÁT
Aðalsteinn Jónsson
húsasmíðameistari frá Vestra-Skag-
nesi í Mýrdal, lést þriðjudaginn 14.
októbcr.
Amljótur Baldursson
varð bráðkvaddur á Gran Canary
aðfaranótt miðvikudagsins 15.
október.
Benedikt Sigvaldason
Hamrahlíð 31, lést á heimili sínu
föstudaginn 10. október sl.
Benóný Magnússon
húsgagnasmíðameistari, Mýrargötu
28, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
fimmtudaginn 9. október.
Dagný Olafsdóttir
frá Hnjóti, Orlygshöfn, lést mánu-
daginn 29. september.
Ebenezer Þ. Asgeirsson
forstjóri andaðist á Landakotsspít-
ala miðvikudaginn 8. október.
Elín Arnadóttir
Síldartjörn 12, Selfossi, lést á
Sjúkrahúsi Suðurlands að morgni
laugardagsins 11. október.
Friojón Sigurðsson
tyrrv. skrifstofustjóri Alþingis, lést á
heimili sínu þriðjudaginn 14. októ-
ber.
Guðfínna Karen
Brynjólfsdóttir
Hrauntungu 4, Hafnarfirði, lést á
heimili sínu aðfaranótt miðviku-
dagsins 15. október.
Guðríður Halldórsdóttir
Hæðargarði 35, lést á hjúkrunar-
heimilinu Droplaugarstöðum laug-
ardaginn 11. október síðastliðinn.
Guðrún Bjömsdóttir
Dalbraut 27, andaðist á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur laugardaginn 11. októ-
ber.
Guðrún Sigríður
Guðmundsdóttir
Brautarholti 1, Ólafsvík, lést í
Ólafsvík miðvikudaginn 8. október.
Halldór Pétursson
sjómaður, Hrafnistu, Reykjavík, lést
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugar-
daginn 11. október.
Hallvarður Kristjánsson
Þingvöllum, lést í St. Fransiskus-
sjúkrahúsinu í Stykkishólmi þriðju-
daginn 14. október.
Helga Velschow-Rasmussen
lést í Kaupmannahöfn aðfaranótt
þriðjudagsins 14. október.
Hermann Sigurðsson
Snorrabraut 56, Reykjavík, lést að
morgni mánudagsins 13. október.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Kirkjuteig 29 (áður Grundarstíg 7),
andaðist á Droplaugarstöðum
mánudaginn 1. október.
Josep Louis Miolla
andaðist í Norfolk, Bandaríkjunum,
miðvikudaginn 8. október.
Jón Hálfdán Þorbergsson
Garðsenda 7, Reykjavík, lést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardag-
inn 11. október.
Július Guðmundsson
lögfræðingur, lést á heimili sínu
sunnudaginn 12. október síðastlið-
inn.
Katrín Júlíusdóttir
Njarðargötu 29, Reykjavík, lést á
heimili sínu aðfaranótt mánudags-
ins 13. október.
Kristján Brynjar Larsen
vélstjóri, Hraunsvegi 16, Njarðvík,
lést mánudaginn 29. september.
Lydía Kristófersdóttir
Hjarðartúni 2, Ólafsvík, lést á St.
Fransiskusspítala Stykkishólmi 13.
októeber.
Magnea Ingvarsdóttir
Snorrabraut 56, Reykjavík, lést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudag-
inn 12. október síðastliðinn.
Magnús Ingimundarson
járnsmiður frá Patreksfirði, til
heimilis íÆsufelli 2, Reykjavík, lést
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að
morgni fimmtudagsins 9. október.
Marinó Kristinn V. Bjömsson
og Bjöm Valberg Jónsson
léstust af slysförum fimmtudag-
inn 9. október síðastliðinn.
Ólafur Bertel Pálmason
frá Vestmannaeyjum, andaðist á
heimili sínu, Reynimel 88, 12.
október.
Ólafur Diðrik Þorsteinsson
Brekastíg 14, Vestmannaeyjum,
lést á Landspítalanum laugardag-
inn 11. oktÓDer.
Roy Ólafsson
hafnsögumaður, Brekkubyggð 5,
Garðabæ, lést á krabbameins-
deild Landspítalans sunnudaginn
12. október.
Sigrún Guðjónsdóttir
frá Seyðisfirði, lést á Sjúkrahúsi
Seyðisrjarðar sunnud. 12. okt.
Sigurjón Ólafsson
fyrrv. vitavörður á Reykjanesi lést
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að kvöl-
di sunnudagsins 12. október.
Steinunn Guðný Magnúsdóttir
Bakkastíg 1, Reykjavík, lést að-
faranótt mánudagsins 13. okt.
Torfhildur Sigurveig
Kristjánsdóttir
Víkurbraut 14a, Grindavík, lést á
heimili sínu, Þingseli 5, Reykja-
vík, að morgni 13. október.
Þórdís Daníelsdóttir
Hrannarstíg 3, lést á Droplaugar-
stöðum að morgni þriðjudagsins
14. október.
ÁRNAÐ HEILIA
Níræð
Guðmn Emksdóttir
frá Sandhaugum
ElRÍKUR Sigurðsson, sem var
fæddur á Ingjaldsstöðum í Ein-
arsstaðasókn 1871, kom 4 ára að
Sandhaugum í Bárðardal. Yngst-
ur 12 systkina og var faðir hans
þá allur. Ólst Eiríkur upp á
Sandhaugum í skjóli móður
sinnar, Guðrúnar, f. 1883 í Víði-
keri, Jónsdóttur Þorkelssonar, og
Önnu Kristínar systur sinnar.
Var aldursmunur þeirra meiri en
20 ár. Frá því segir Sigurður Ei-
ríks og Guðrúnar son í merku og
minnilegu forsíðuviðtali í heima
er bezt, þá á rosknum aldri. Fað-
ir hans hafði verið á Hólaskóla í
2 ár, en móðir hans lærði orgel-
leik hjá Sigurgeiri Jónssyni á
Stóruvöllum. Hafði hún næma
tónheyrn og var tónlistin snar
þáttur í lífi hennar alla ævi. -
Sigurður var einkasonur, en 5
systur. Ein þeirra er níræð í dag,
Guðrún, lengst búsett í Kaup-
mannahöfn, f. á Sandhaugum
hinn 18. október 1907. Eldir
voru Anna húsfrú á Selfossi og
einn frumbyggjanna þar, og
Kristín ljósmóðir og húsfreyja á
Hafralæk í Aðaldal, en yngri Sig-
ríður ljósmóðir á Stokkseyri og
Rebekka fyrrum húsfreyja á
Kirkjubóli í Bjarnardal.
Aminnst orð Sigurðar á Sand-
haugum eru góð Iesning ekki síst
þeim mörgu vinum Guðrúnar
systur hans, sem kynntust henni
í Kaupmannahöfn, en þar bjó
hún í 40 ár, 1949-1989. Virtust
þeir raunar miklir Islendingar í
lund og hætti, sem lengst höfðu
verið í Danmörku, en nokkrir
þeirra fóru heim eins og hún,
sumir eftir jafnvel enn Iengri ut-
ansetu, t.a.m. góðvinur hennar
og samstarfsmaður að félagsmál-
um landanna í Höfn. Fyrr var
hún kjörin heiðursfélagi Náms-
manna- og íslendingafélaganna
og sæmd fálkaorðunni vegna
margþættra áratuga langra starfa
í þágu Hafnar-íslendinga, ósér-
plægni og stoðar. Og í Jónshúsi
fórnaði hún löndum sínum
óvenju farsælli starfsorku og
varð hollvinur. - Heimför sína
ákvað hún eftir að beinbrot hefti
hana í félagsstörfunum. Sneri
hún stafnhafinu til Akureyrar, en
þar bjó hún í húsi gamals vinar
frá Kaupmannahöfn og þjóð-
kunnugs sýslunga síns, uns hún
færði sig um set og á Dvalar-
heimilið Hlíð á fyrra ári. Þar
kann hún hið besta við sig, enda
mannblendin og vönust fjöl-
menni á langri leið. Mjög var
hún og ánægð með tímabundna
dvöl og þjálfun frammi á Krist-
nesi. Fróð og félagslynd og
kynntist brátt við fólk. Þá reynd-
ist henni eins og Ijúfur og traust-
ur sonur ungur maður á Akru-
eyri, sem eignast hafði vináttu
hennar í Höfn, þegar hann var
námsmaður þar, Arni Steinar Jó-
hannsson frá Dalvík, garðyrkju-
stjóri á Akureyri.
Guðrún Eiríksdóttir er þjóð-
menningar og kirkjuvinur. Skal
aðild hennar að kirkjukór ís-
lenska safnaðarins í Höfn þakk-
aður fyrir hönd okkar síra Jó-
hanns Hlíðar og áður síra Hreins
Hjartarsonar, en organistinn var
trúnaðarvinur hennar og náinn
félagi, Axel Arnfjörð tónlistar-
kennari frá Bolungarvík. Hann
lést í Höfn eftir langa starfsævi
þar snemma árs 1982.
A ungu árunum lagði Guðrún
stund á hjúkrunarnám. Vinnuá-
lagið var þungt og meiðsli í bern-
sku á Sandhaugum tóku sig upp
í bakveiki. Hafði hún verið starf-
andi nemi á Siglufirði og ísafirði
og á Vífilsstöðum, svo að nokkuð
sé nefnt. Síðar dvaldi hún á
Reykjalaundi og var svo vinnandi
hjá frú Astu og Bjarna Asgeirs-
syni á Reykjum í Mosfellssveit
og hefði líklega farið með þeim
til Noregs, þegar þau urðu sendi-
herrahjón þar, ef ekki hefði áður
borist kall, sem henni fannst
skyldugt að hlýða. Björg Sigurð-
ardóttir Dalmann, aldurhnigin
frænka hennar, sem lengi hafði
verið búsett í Kaupmannahöfn
sagði, að vel yrði aðstoð þegin.
Fór Guðrún þá til Hafnar og
annaðist Björgu jafnframt því
sem hún tók tilhendinni við
sauma og annað þarflegt vert.
Gerði hún það ekki endasleppt
við frænku sína frekar en aðra
þá, sem hún batt trúnað við,
traust og vináttu. Eins og landið.
Eftir öll þessi ár í Danmörku,
hvarf hún heim. Norður í land.
Skýringin á þ\i er fundin í viðtal-
inu í Heima er bezt við Sigurð
bróður hennar, þar sem hann
talar um hérað þeirra, dalinn og
öræfin. Guðrún Eiríksdóttir frá
Sandhaugum er kynborin dóttir
tslands sögu og ljóðs. Hennar
heimalands mót kallaði hana til
fundar, þegar hún kvaddi hér á
Danagrund.
Fjölskyldan, sem var henni
samtíða í Húsi Jóns Sigurðsson-
ar á níunda áratugnum þakkar
tryggð og óskar góðs.
Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum
MINNINGARGREINAR
Sverrir Bjömsson
Sverrir BjÖRNSSON var fæddur
að Spákonufelli á Skagaströnd
12. júní 1924. Hann ólst upp á
Óseyri í Höfðakaupstað og
stundaði venjulegt skólanám í
barnaskólanum á Hólanesi á
Skagaströnd. Hann lést að
heimili sínu, Sólvallagötu 39,
þriðjudaginn 7. október.
Foreldrar hans voru hjónin
Matthildur Jóhannsdóttir hús-
freyja (1889-1953) og Björn
Fossdal Benediktsson (1881-
1969), sjómaður, bóndi og
verkamaður.
Sverrir átti einn albróður,
Auðun Hafstein Fossdal, f. að
Vindhæli 2. febr. 1921 ; drukkn-
aði í höfninni á Skagaströnd
26. febr. 1962. Hálfbróður, sam-
feðra, átti Sverrir: Ara Fossdal,
ljósmyndara á Akureyri( 1907-
1965).
Sverrir stundaði nám við
Gagnfræðaskóla Akureyrar
1940-41, en vann að því loknu
ýmis störf, var m. a. kennari á
Skógarströnd tvo vetur. Frá
1952, til starfsaldursloka,
1994, var hann í þjónustu Vita-
og hafnarmálaskrifstofunnar,
þar af mörg síðari árin yfirverk-
stjóri.
Sverrir kvæntist 31. desember
1957 Laufeyju Helgadóttur (f.
1928), frá Búðum í Fáskrúðs-
firði. Hcintili þeirra stóð í
Kópavogi til 1976, en eftir það í
Reykjavík. Synir þeirra eru :
1) Matthías Helgi, bifvéla-
virki, f. 9. apríl 1954, var kvænt-
ur og á 3 börn. 2) Þráinn Björn,
framreiðslumaður, f. 27. maí
1958, var í sambúð og á 2 börn.
Síðustu æviárin var Sverrir
virkur í Félagi aldraðra í Reykja-
vík.
Útförin fór fram frá Dóm-
kirkjunni miðvikdaginn 15.
október.
Einum æskuvininum, einum
fermingarbróðurnum, einum
skólafélaganum færra. Líklega
hefur enginn lýst fallvatleika lífs-
ins betur í fáum orðum en skáld-
ið Páll Jónsson Ardal, en hann
segir í ljóði sínu : „Saga lífsins11 :
Að hryggjast og gleðjast
hér umfáa daga.
Heilsast og kveðjast :
það er lífsins saga.
Fyrst man ég Sverri sem ungan
dreng í barnaskólanum á Hólanesi
á Skagaströnd. Þar vorum við sam-
an veturinn 1934-35, og höfðum
þá fyllt rúman tug æviára. Bróðir
hans, Auðunn Hafsteinn, var
þarna einnig við nám. I skólanum
hjá honum Sigurjóni Jóhannssyni
var ekki um stranga bekkjarskipan
að ræða. Þar voru saman nokkrir
árgangar barna, á misjöfnu þroska-
og þekkingarstigi. Má geta nærri,
að erfitt hafi verið að komast yfir
að leiðbeina drjúgum hópi barna
við slíkar aðstæður. Síðustu tvo
vetur barnafræðslunnar skildu
leiðir okkar Sverris, því að ég var
þá við nám á Ytri- Ey á Skaga-
strönd, en hann áfram á Hólanesi.
Kennarinn kenndi annan mánuð-
inn á Skagaströnd og hinn á Ytri-
Ey, því að farskólafyrirkomulag var
enn við lýði á þessum slóðum.
Fyrirkomulag þetta var auðvitað
ófullkomnara en síðar gerðist, þeg-
ar fastir skólar urðu reglan. En al-
veg var ótrúlegt, hvað börn og
kennarar lögðu sig fram um að ár-
angur yrði sem mestur og bestur af
skólagöngunni. Úr farskólanum
komum við vel læs, skrifandi og
reiknandi. En lakara var, að fæst
áttum við þess kost að halda
áfram námi að bamaskólanum
loknum. Var undirritaður þeirra á
meðal.
Við Sverrir fermdumst í gömlu
kirkjunni á Hólanesi á Skag-
strönd, sem fyrir löngu hefur ver-
ið niður tekin, á hvítasunnudag
1938., sem bar upp á 5. júní. Ef
ég man rétt, vorum við átta að
tölu, sem fermdumst þarna : fimm
piltar og þijár stúlkur. Presturinn
var séra Björn O. Björnsson.
Hann var bóklærður og vel gef-
inn, hinn vænsti maður. Um hann
hefi ég ritað þátt í bók mína „Sitt-
hvað kringum presta“, sem út kom
hjá Skuggsjá 1991. Litlir vexti
vorum við Sverrir, þegar við
fermdumst, en það gerði ekkert
til. Nógur var tíminn til að vaxa
og verða stór!
Nokkur síðustu árin hittumst
við Sverrir við og við. Mun þátt-
taka okkar í félagssskap aldaðra
hafa þar nokliru valdið Hann var
áhugasamur um málefni eldri
borgara og félagslyndur.
Fyrir rúmu ári greindist illkynja
meinsemd í líkama Sverris. Hann
gekkst undir víðtækar lækningatil-
raunir, og trúði því lengi vel, að
þær kynnu að bera einhvern ár-
angur, en eins og kunnugt er,
fleygir lækningum og rannsóknum
á krabbameini hratt fram. En sjúk-
dómurinn hafði sinn gang, og
vonir um bata tóku að dofna. Ég
heimsótti Sverri nokkrum sinnum
á meðan hann háði hina hörðu
baráttu við þennan geigvænlega
sjúkdóm, sem árlega leggur nokk-
ur hundruð íslendinga í gröfina,
marga á besta aldri, að segja má.
Síðast átti ég tal við Sverri
sunnudaginn 14. september s.l.
Hann var vel málhress þá, þrátt
fyrir veikindi sín. Sagði, að sjúk-
dómurinn ynni markvisst að því,
að hann hyrfi af sjónarsviðinu,
eins og hann orðaði það í mín
eyru. Æðruleysi hans og stilling
gagnvart örlögum sínum var aðdá-
unarverð. Hann lá rúmfastur síð-
ustu tvær vikurnar og kaus að
deyja heima. Og honum varð að
þeirri ósk sinni. Hann lést fyrir
hádegi þriðjudaginn 7. október.
Þá var himinn næstum heiður
yfir höfuðborginni. Farsælli ævi
var lokið.
Eftirlifandi eiginkonu, svo og
sonum og öðrum vandamönnum,
votta ég samúð mína við fráfall
Sverris Björnssonar.
Auðunn Bragi Sveinsson
frá Refsstöðum.