Dagur - 30.10.1997, Blaðsíða 14
rD^tr
30 — FIMMTUDAGUR 30.OKTÓBER 1997
LÍFIÐ t LANDINU
Á hliðarsvipnum sést greinilega form stallbaksins, þ.e.a.s. það er ekki ósvipað þvíað bætt hafi veríð aftan við stallbak
tii að búa tii iangbak, en það kemur ekkert illa út - mynd: ohr
Frábærar hirslur
fyrir miðju er látinn halda sér upp á
mælaborðið en inn í hann eru felld
ýmis tæki og tól svo sem klukka, út-
blástur miðstöðvar, útvarp, hnappar
fyrir miðstöð o.fl.
En rúsínan í pylsuendanum og það
sem helst skarar þessum bíl fram úr
mörgum af keppinautunum eru hirslur
og kyrnur undir botninum á farangurs-
rýminu aftast. Þegar plötunni í botnin-
um er lyft kemur í Ijós önnur plata ansi
skemmtileg. Það er ekki nóg með að
þar sé Ijöldinn allur af geymsluhólfum
heldur er þar líka fata sem felld er ofan
í plötuna og hægt er að taka með sér
eða nota undir eitt og annað. Þetta er
upplagður útbúnaður fyrir karla eins
og mig sem þurfa sífellt að vera með
eitt og annað smálegt, t.d. úr verkfæra-
kassanum, með sér á ferðalögum.
Maður er nefnilega yfirleitt í mestu
vandræðum með þessa smáhluti og
þeir eru nánast alltaf týndir einhvers-
staðar í bílnum þegar til á að taka. En í
Suzuki Baleno er aldeilis frábær
geymslustaður fyrir þessa nauðsynja-
hluti sem sumir eiga það til í ógáti að
kalla „drasl.“
Baleno er ljúfur akstursbíll. Upptak-
ið í 1600 vélinni er ekkert rífandi en
allt í Iagi og dugar fjölskyldubílnum
fyllilega. Vegna sítengda aldrifsins eru
aksturseiginleikar bílsins með ágætum
og hann liggur vel á malarvegum. Þrátt
fyrir að bíllinn, sem var reynsluekið
væri kominn á nagladekk var veghljóð-
ið sáralítið. Eyðslan fannst mér vera í
meira lagi þar sem aksturinn var að
mestu Ieyti utanbæjar og tiltölulega
hlýtt í veðri en hún mældist 10,86 lítr-
ar á hundraðið. En bíllinn er gefinn
upp fyrir mun minni eyðslu. Baleno er
með rafmagn í rúðum, samlæsingar og
veltistýri sem staðalbúnað. ABS hemlar
eru boðnir sem aukabúnaður.
Mundi ég?
Mundi ég kaupa svona bíl? Já, Suzuki
Baleno langbakur kemur sterklega til
greina sem fjölskyldubíll hjá mér.
Ástæðan er fyrst og fremst fjórhjóla-
drifið og að þarna er um að ræða nokk-
uð vel búinn bíl sem kostar rétt um
1.600 þúsund krónur, þ.e.a.s. hann er
á tiltölulega góðu verði.
Ýmsar stærðir
Breidd 1.690 mm Eigin þyngd (4WD) 1.105 kg
Hæð 1.460 mm Heildarþyngd (4WD) 1.580 kg
Hjólahaf 2.480 mm Afl v/6.000 sn 99 hö
Spomdd f 1.440 mm Tog v/3200 sn 127 Nm
Sporvfdd a 1.435 mm Uppgefin eyðsla (4WD):
Lægsti punktur 155 mm Innanbæja 9,5 1
Beygjuradius 4,9 m Utanbæjar 6,8 1
Tankur 2WD 51 1 BI. akstur 7,8 1
Tankur 4WD 48 1
Á dögunum var fj ó r hj ó 1 a d r i fn u m
Suzuki Baleno Iangbak reynsluekið.
Þessi bfll er boðinn í
þremur útgáfum hér-
Iendis sem langbakur:
Beinskiptur og sjálf-
skiptur með framdrifi
og beinskiptur með
fjórhjóladrifi.
Suzuki kom inn á
markaðinn hérlendis
upphaflega með smá-
bíla og flestir kannast
við Suzuki jeppana
sem alltaf hafa verið Iitlir en farið
stækkandi jafnt og þétt. Suzuki bílar
hafa þar af Ieiðandi þá mynd á sér að
þeir séu smáir.
Þó Suzuki Baleno sé að sumu leyti í
smærra lagi þá er þetta enginn smábíll.
í rauninni er þetta mjög álitlegur fjöl-
skyldubíll og fyllilega samkeppnisfær
við bfla í svipuðum stærðarflokki,
þ.e.a.s. hafi einhver haft einhverjar
efasemdir um það.
Rak hofuðið 1
I smærra lagi segi ég. Þegar ég settist
inn í bílinn í fyrsta sinn rak ég höfuðið
harkalega í dyrakarminn að ofanverðu.
Framrúðan er afturhallandi vegna
straumlínulagsins á bílnum og fyrir
vikið er hurðargatið heldur lægra en
gengur og gerist í sumum öðrum bíl-
um. Þegar maður er sestur inn Iiggur
hægri leggurinn heldur þétt utan í
miðjustokknum og maður er svolítið að
vandræðast með vinstri olnbogann á
sér í byrjun. En þetta venst fljótlega og
maður fer að kunna ágætlega við sig
undir stýrinu. Þegar maður sest aftur í
er ágætlega rúmt um mann. Baleno er
laglegur bíll. Að sjá á hlið langbaksins
er að vísu eins og tekinn hafi verið
stallbakur, þakið Iengt og bætt við
gluggum og skottloki og afturrúðu
breytt í afturhlera og útkoman orðin
langbakur. En þetta kemur ágætlega
út. Vindskeið uppi að aftan með
bremsuljósi er staðalbúnaður á lang-
baknum og hún setur mikinn svip á
bílinn. Samlitir stuðarar eru einnig
staðalbúnaður. Að innan er bíllinn líka
fallega hannaður þó án íburðar, með
tvílitu snyrtilegu áklæði. Stokkurinn
Olgeir Helgi
Ragnarsson
skrifar
• Kengúran lifir allt sitt líf án þess að
þurfa að drekka vatn.
• Aska magnesíum málmsins, sé hann
brenndur, er þyngri en samsvarandi
magn af málmi.
• I Japan greiða vélmenni til stéttarfé-
laga.
• Stóru hafnarboltafélögin í Bandaríkj-
unum kaupa um 18000 bolta hvert á
leiktímabili.
• Marocco var fyrsta landið til að viður-
kenna Bandaríkin árið 1789.
• Á nafnspjaldi A1 Capone stóð að hann
seldi notuð húsgögn.
• Stafrófið í Kambódíu hefur 74 stafi.
• Indverski flóðhesturinn vegur um
2000 kg. en getur eigi að síður náð
um 80 km. hraða.
• Þegar tunglið er beint yfir Ameríku, er
aðdráttarafl þess nægjanlegt til að
hækka landið um 15 sm.
HVAÐ Á ÉG AÐ GERA
Að pissa undir
Ég á 11 ára gamlan dreng sem pissar enn
undir. Það gerist ekki á hverri nóttu,
heldur svona 3svar í viku. Stundum
nokkrar nætur £ röð og svo ekki smá tíma,
en ég sé ekkert mynstur. Þetta fer illa
með sjálfstraust hans og hann vill helst
ekki bjóða til sín vinum sínum.
Strákum er hættara við að pissa undir
en stúlkum og þeir gera það Iengur.
Oft er hægt að kenna um streitu eða
einhverjum áhyggjum sem börnin búa
yfir og er þá mikilvægt að tala við þau
og reyna að komast að því hvort svo er.
Kannski líður drengnum illa í skólan-
um, á við námsörðugleika að stríða,
eða þá hann verður fyrir stríðni. Ef
ekkert af þessu er fyrir hendi, þá ættir
þú að fara með hann til læknis,
kannski hefur hann snert af blöðru-
bólgu eða þarf einfaldlega að læra að
stjórna þvaglátum sínum betur.
Vigdís svarar í símaun!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símann kl. 9-12.
Síminn er S63 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
PaprLkukartöflm'
Fín kartöfluuppskrift með
hvftlauksívafi. Ætlað 4.
8 stórar paprikar
700 gr. kartöflur
6 lauf hvítlaukur
2 tsk. dillfræ
175 ml. af ólífuolíu
Hitið ofninn í 180°C. Skerið stilkinn af
paprikunum, ljarlægið fræin. Þvoið kart-
öflurnar og skerið í teninga, fremur Iitla.
Blandið saman við hvítlaukinn, fræin og
3 tsk. af olíu. Kryddið ef vill með salti og
pipar. Látið í paprikurnar og setjið þær í
ofnfast form. Hellið afganginum af olí-
unni yfir og bakið í l'A klst. Takið paprik-
urnar af diskinum, sjóðið upp á vökvan-
um sem hefur lekið af þeim, þykkið að-
eins ef vill og hellið yfir paprikurnar. Ber-
ið fram með brauði og salati.
Matarlitur
HÞað hefur verið spurt um mat-
arlit sem notaður er í kökur og
kökuskreytingar. Þessi litur er
mun sterkari en sá venjulegi
og hefur fengist t.d. í Húsasmiðjunni.
En hann fæst líka í Húsgagnahöllinni og
ef til vill £ Pipar og salt. I amerísku
kökubókunum er mikið talað um svona
lit, það þarf ekki nema 2-3 dropa til að
lita heilmikið krem.
t