Dagur - 01.11.1997, Síða 6
22- ÞRIÐJUDAGUR l.NÓVEMBER 1997
LÍFIÐ í LANDINU
Halldór Óskarsson
lætursig ekki muna
um að vera organisti
við eina kirkju og
stjóma fimm kómm til
viðbótar. „Seginsaga
að eftirþví sem ann-
ríkið eykst kemur mað-
ur meim í verk, því þá
skipuleggur maður sig
betur, “ segirHalldór.
Sex kvöld í viku fara i kórstjórnina, en ég reyni að eiga föstudagskvöldið frítt. Stundum tekst það ekki einu sinni, “ segir Halldór Óskarsson. Þessi mynd var tekin sl. mánudagskvöid
þegar hann var að stjórna Kvennakór Hafnarfjarðar, sem skipaður er 85 dugnaðarkonum.
„Auðvitað er dagskráin í þessu
starfi nokkuð stíf, og það er
spurning hvað maður endist
lengi. En eins og þetta kemur
mér fyrir sjónir, er þetta spurn-
ing um að skipuleggja sjálfan sig
og störf manns vel. Það er segín
saga að eftir því sem annríkið
eykst kemur maður meiru í verk,
því þá skipuleggur maður sig og
sitt betur,“ segir Halldór Oskars-
son, organisti í Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði. Því til viðbótar
stjórnar hann fimm kórum í
Hafnarfirði og Rangárvallasýslu
og syngur með kvartett, sem
kemur fram við jonis tækifæri.
Atorka með listfengi gætu verið
einkennisorð fyrir þennan unga,
kappsama tónlistarmann.
Orgeglnám í Hallgríms-
kirkju
Halldór Óskarsson er fæddur
árið 1966 á bænum Miðtúni í
Hvolhreppi, skammt frá Hvols-
velli. Hann byrjaði níu ára gam-
all í píanónámi við Tónlistar-
skóla Rangæinga og stundaði
það fram yfir fermingu. Þá tók
við nokkurt hlé í tónlistarnámi
hans, en árið 1990 hóf hann
nám í Tónskóla Þjóðkirkjunnar í
orgelleik hjá Herði Askelssyni
organista í Hallgrímskirkju. „Eg
stundaði nám þar í nokkra vetur,
og síðan kom að því að fyrir jólin
1992 var ég beðinn um að taka
að mér organistastörf í Odda-
kirkju á Rangárvöllum. Þau störf
lengdust nokkuð í annan end-
ann, því ég var organisti við
kirkjuna alveg fram á þetta ár en
nú er ég í ársleyfi þaðan,“ segir
Halldór.
Kórarnir sem Halldór stjórnar
eru Kór Víðistaðakirkju, Eldri-
Þrestir, sem er sönghópur félaga
sem áður sungu í Karlakórnum
Þröstum í Hafnarfirði og þá
stjórnar hann Kvennakór Hafn-
arfjarðar, sem sífellt ijölgar í, og
í dag eru kórkonurnar ekki færri
en 85. Einnig stjórnar Halldór
Samkór Rangæinga og Karlakór
Rangæinga, en sönghópurinn
sem hann starfar sjálfur með
heitir Viri Cantantes, og syngur
hann sígild sönglög af ýmsum
toga við ýmis tækifæri.
Sex kvöld 1 viku
„Það eru sex kvöld í viku sem
fara í þetta, en ég reyni að eiga
föstudagskvöldið frítt. Stundum
tekst það ekki einu sinni. En ég
neita því ekki að þetta er oft
strembið að fara austur í
Rangárþing þrjú kvöld í viku,
það er á miðviku-, fimmtu- og
sunnudögum - þegar eru æfing-
ar þar og síðan aðra daga hér í
Hafnarfirði," segir Halldór.
Hann segir - aðspurður um
tónlistarlíf í Rangárþingi - að
það sé afar blómlegt. „Við Rang-
æingar stöndum Skagfirðingum
ekkert að baki í sönglistinni.
Fyrir austan eru allir syngjandi,"
segir hann.
Silkiraddir á niræðisaldri
Það þykir gjarnan viðkvæmt að
spyija listamenn hvort þeir eigi
sér eitthvert eftirlætisverk og í
þessu sambandi er Halldór
spurður hvort einhver kóranna
fimm sem hann stjórnar sé í
meira eftirlæti hjá honum en
annar. Halldór svarar þessari
spurningu nokkuð hikandi, en
hann segir að sér finnist afskap-
lega gaman að stjórna Eldri-
Þröstunum. „Þetta eru gjarnan
karlar sem eru búnir að vera að
syngja í fimmtíu til sextíu ár og
sumir þeirra eru enn býsna góð-
ir, þrátt fyrir háan aldur. Einn er
til dæmis orðinn 86 ára ára og
syngur sinn fýrsta tenór með
þessari fínu silkirödd," segir
Halldór.
„Þá eru í Karlakór Rangæinga
margir ungir menn að koma inn,
sem eru á aldrinum 25 til 30
ára. Þeir eru af þessari Duran-
Duran kynslóð, en gera það
engu að síður gott í því að
syngja þessi sígildu kóralög - það
er íslensku sönglögin sem svo
lengi hafa verið þjóðarinnar
yndi,“ segir hann.
Bach og Mozart
Halldór Oskarsson segist vera
alæta á tónlist og íjölmargt fái
að renna í gegnum geislaspilara
hans. Hann segir hins vegar að
gömlu meistararnir á borð við
Bach og Mozart séu í miklu eft-
irlæti hjá sér, enda hafi hann
lært að meta þá vel þegar hann
söng með Mótettukór Hall-
grímskirkju. „Síðan hlusta ég
talsvert á orgeltónlist, þó þetta
geti líka farið út í að hlusta á
þungarokk og annað ámóta þeg-
ar þannig stendur á og ég er í
skapi til að hlusta á þannig tón-
list í það og það skiptið," segir
hinn atorkusami Iistamaður
-SBS.
Nýr tölvuskóli fyrir
böm hefurslegið í
gegn víða um land. Á
aðeins 6 vikum erbúið
að opna 4 útibú. Nem-
endur allt niður íjjög-
urraára..
Nýtt fyrirtæki, Framtíðarbörn,
hefur fest sig rækilega í sessi í
menntakerfinu á örfáum vikum.
Skólinn hóf starfsemi í Reykja-
vík um miðjan september en
viðtökurnar hafa Ieitt til þess að
búið er að stofna útibú víða um
land, nýjasti skólinn tók til
starfa á Akureyri í gær. Nemend-
ur eru frá fjögurra ára aldri til
Ijórtán.
Að sögn Baldvins Valtýssonar
forstöðumanns eru auk Reykja-
víkur starfrækt útibú í Keflavík,
Isafirði og Vestmannaeyjum.
Viðtökurnar hafa verið að hans
sögn: „Alveg frábærar. Beinlínis
sprengja. Því miður höfum við
þó þurft að hafna umsóknum
bæði í Reykjavík og úti á landi.“
Blaðamenn og veðurfræðingar
„Tölvubörnunum“ er kennt að
umgangast vélarnar á skapandi
hátt að sögn Baldvins. Sam-
kvæmt erlendri forskrift er árinu
skipt upp í tíu tæknisvið: hag-
nýtingt tölvunnar; myndvinnslu;
forritun; tölvuna og jaðarbúnað;
tölvusamskipti; gagnagrunn;
töflureikni; umbrot og útgáfu;
margmiðlun og ritvinnslu. „Eitt
aðalmarkmið kennslufræðinnar
er að námið eigi að vera
skemmtilegt. Börnin gefa út
tfmarit og setja upp útvarpsstöð.
Gera veðurspá, fara á Internetið
osfrv. Við leggjum mikla áherslu
á að börnin séu f uppgötvunar-
námi, séu virkir þátttakendur,"
segir Baldvin.
En hefur 4ra ára gamalt barn
nægan þroska til að fást við tölv-
ur?
„Já, við höfum verið með
marga nemendur á þeim aldri og
það er ótrúlegt að sjá hvað þau
geta lært. Gagnvart þeim yngstu
byggjum við þó meira á leik-
námi. Förum í leiki sem tengjast
tungumálinu s.s. stafaleiki."
Allir sem kenna við skólann
eru kennarar að mennt. Einn
skóli, Sandgerðisskóli, er þegar
kominn með námið sem hluta af
stundatöflu og er slfkt framtíð-
armarkmið skólans að sögn
Baldvins. Starfsmenn eru 18
alls. BÞ