Dagur - 01.11.1997, Blaðsíða 15
T
LAUGARDAGUR l.NÓVEMBER 1997- 31
LIFIÐ I LANDINU
Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, nýrumsjónar-
maður Stundarinnar okkar, hefurekki alltafver-
iðjafn klassísk í klæðaburði og hún erí dag. Sem
unglingurvarhún hippa-pönkari og klæddist
fótum frá Fríðu frænku.
„Ég hef alltaf haft áhuga á
menntun og fræðslu fyrir börn
hvort sem það er í sjónvarpinu
eða kennslustofunni," segir Ásta
Hrafnhildur Garðarsdóttir að-
spurð um nýja starfið. „Það sem
ég hef í huga við undirbúning
þáttanna er að kenna börnunum
eitthvað án þess að verða of
„Ég er alltaf voða „fín“. Hefþennan klassíska stfl. En ég hefekki alltafklætt mig
þannig. Þegar ég var unglingur var ég í hippa-pönkara stíl.“ myndifc e.úl.
fræðileg. Reyna að víkka sjóndeildarhring þeirra,
fræða þau og skemmta þeim í leiðinni." Hún
nefnir að það að eiga barn sjálf hafi hjálpað
henni heilmikið í þessu nýja starfi. „Sonur minn
er á þessum týpíska Stundarinnar okkar aldri og
ég get óneitanlega tekið mið af því í gegnum
hann hvar áhugi barnanna liggur."
En við undirbúning þáttanna fylgir höfuðverk-
urinn hvemig maður eigi að vera klæddur. Olli
það einhverjum áhyggjum hjá þér t upphafi að
hugsa til þess að þú þyrftir að klæða þig upp fyrir
hvem þátt og móta þér einhvem stú í þætti sem er
fyrir höm?
„Já, til að byrja með fékk ég í magann þegar ég
var að ákveða hvað passaði og hvað ekki. Það
rjátlaðist nú af mér, allavega í bili, en það kemur
í ljós eftir áramót hvort ég fæ aftur í magann.
Þegar fer að ganga á fataskápinn."
Finnst þér skipta miklu máli í hverju þú ert í
þáttunum?
„Já, ég held að það geri það. í þætti sem þess-
um má maður ekki vera of uppstrílaður. Það
gengur t.d. ekki að vera í dragt eða einhveijum
slíkum fatnaði. Mér fannst skipta máli að ég
væri þægilega klædd og snyrtileg, meira eins og
kennari."
Notar þú alltafþínföt í þáttunum?
„Já, nánast alltaf. En systir mín og frænkur
hafa gaukað einhverju að mér. Ég er samt oftast í
mínu. Ég á það mikið af fötum að þetta er ekki
svo mikið mál.“
Klæðir þú þig svipað og þú gerir dags daglega?
„Já, ég geri það.“
Hvaða stíll er það þá sem þú aðhyllist?
„Ég er alltaf voða „fín“. Hef þennan klassíska
stíl. En ég hef ekki alltaf klætt mig þannig. Þegar
ég var unglingur var ég í þessum hippa-pönkara
stíl og var m.a. valin flippaðasta manneskjan í
Garðaskóla þegar ég var þar. Það var á þessum
tíma þegar allir gengu um í Milletúlpu og galla-
buxum en ég klæddi mig þá í föt frá Fríðu
frænku. Ég snéri þokkalega við blaðinu, hef samt
alltaf haft persónulegan stíl, er ekki í dragtinni
upp úr og niður úr. Ég reyni að blanda svolítið
saman.“
Hefurðu gaman affatnaði?
__ „Ég er með algera fatadellu og hef alltaf haft.
Ég kaupi mér líka töluvert af fötum en svo er það
líka eitt að ég hef notað sama númerið í tíu ár,
þannig að ég get notað föt frá því ég var 16 ára
og geri það hiklaust. Ég kaupi mér líka yfirleitt
„Ég hefalgera dellu fyrir brúnum skóm og gráum buxum. Þetta
er mín ástríða. Eins með peysur, mér finnst ég aldrei eiga nógu
margar peysur."
vandaðan fatnað í klassískum sniðum sem er
grunnurinn en ég tíni síðan utan á það eitthvað
ódýrara, eitthvað sem er meira í tísku þá stund-
ina.“
Ert þú með dellufyrir einhverju sérstöku?
„Ó guð, já. Ég hef algera dellu fyrir brúnum
skóm og gráum buxum. Þetta er mín ástríða. Líka
fyrir peysum, mér finnst ég aldrei eiga nógu marg-
ar peysur.“
Hvað finnst þér skipta máli ífatnaði og stíl?
„Að finna sér sinn eigin stíl.“
Fylgistu með tískunni?
„Já, og hef alltaf gert. Að vísu meira með hátísk-
unni og því sem er að gerast í útlöndum. Mér
finnst götutískan ekki spennandi og þá síst núna,
hún er eitthvað svo drusluleg og höfðar ekkert til
mín. En ég fylgist mjög vel með því sem er að ger-
ast hveiju sinni, það er ekki spurning." iibg
Leikfélag
Akureyrar
4TROMPÁHENDI
Hart
S
bak
eftir Jökul Jakobsson.
á Renniverkstæðinu
Laugardaginn 1. nóvember
kl. 16.00
UPPSELT
Laugardagskvöld 1. nóvember
kl: 20.30
UPPSELT
Föstudagskvöld 7. nóvember
UPPSELT
Laugardaginn 8. nóvember
aukasýning kl. 16.00
UPPSELT
Laugardagskvöld 8. nóvember
kl.20.30
UPPSELT
Sunnudagurinn
9. nóvember
aukasýning vegna
mikillar aðsóknar
laus sæti
Föstudagskvöld 14. nóvember
laus sæti
Laugardagskvöld 15. nóvember
UPPSELT
Gagnrýnendur segja:
„Uppsetning LA á Hart í bak er
hefðbundin og verkinu trú. Örlög
og samskipti persónanna eru í
fyrirrúmi ...“
AuSur Eydar í DV
„Leikritið Hart í bak er meistara-
lega samsett af hliðstæðum og
andstæðum, táknum og samblandi
af stflfærðu raunsæi og botnlausri
rómantík.
Sveinn Haraldsson í Mbl.
„Inn í dökkva söguþráðarins fléttar
hann (höfúndur) fögur ljósbrot og
spaugileg atriði auka dýpt
verksins."
Haukur Ágústsson í Degi
„ Af því að ég skemmti mér svo
vel.'"^-^r“fc
Arthúr Björgvin Bollason Dagsljós
♦ Á ferð með frú Daisy
Frumsýning d Renniverkstœðinu 21. des.
Titiihlutverk: Sigurveig Jónsdóttir
^ Söngvaseiður
Frumsýning i Samkomubúsinu 6. mars
Aðalhlutverk: Þóra Einarsdóttir
4 Markúsarguðspjall
Frumsýning dRenniverkstœðinu 5. apríl
Leikari: Aðalsteinn Bergdal
Leikfélag Akureyrar
Aðgangskort á frábærum
kjörum s. 462-1400
Munið Leikhúsgjuggið
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
sími 570-3600
]gj
er styrktaraðili Leikfélags Akureyrar