Dagur - 01.11.1997, Page 17

Dagur - 01.11.1997, Page 17
LAUGARDAGUR l.NÓVEMBER 1997 - 33 LÍFIÐ í LANDINU Mannsi íKvistási hef- urséð miklarbreyting- ar á Dettifossi, en hann hefurfylgst með fossinum íSO ár. Hann telur aðfossinn gæti horfið í næstu framtíð. Dropinn holar steininn „Ég byijaði fyrst að fylgjast með Dettifossi árið 1946. Þetta ár var ég feijumaður á Jökulsá á Fjöllum og einhveiju sinni ferjaði ég yfir ána mann, sem var með einhverja dýrustu myndavél sem nokkru sinni sem hafði komið til landsins, og kostaði hálf árslaun verka- manns. Það endaði með því að ég keypti af honum vélina og nokkrum dögum síðar fór ég og tók mynd af Dettifossi. Síðan hef ég með jöfnu millibili verið að fanga fossinn á filmu - þótt ég sé síðan búinn að eiga marg- ar myndavélar, síðan þetta var,“ segir Haraldur Þórarinsson, verkstæðisgúrú og fréttaritari i Kvistási í Kelduhverfi, vel þekkt- ur undir nafninu Mannsi. Bergið titrar Á ferð sinni um Kelduhverfi á dögunum fékk blaðamaður Mannsa í lið með sér sem sér- legan leiðsögumann austur að Dettifossi. Fossinn er 44ra metra hár og er líklega tilkomu- mesti foss landsins. Jökulsá á Fjöllum er líka straumþung og vatnsmikil, meira að segja svo að sé staðið við Jökulsárgljúfrið titr- ar bergið undan þessum mikla þunga árinnar. Mjótt vik verður að gjá „Auðvitað holar dropinn stein- inn og ég hef horft uppá mildar breytingar á fossinum síðustu hálfu öldina," segir Mannsi. Hann segir að brúnir fossins séu orðnar ávalari en þær voru og gjáin, eða raufin, í fossinum vestanverðum hafi dýpkað og stækkað síðustu árin. „Þegar ég byrjaði fyrst að fylgjast með foss- inum var þetta aðeins mjótt vik en nú er þetta orðin Iöng gjá,“ segir Mannsi, sem telur að þetta muni geta haft afdrifaríkar af- leiðingar fyrir frekari breytingar á fossinum í næstu framtíð. Við- búið sé til dæmis að stapi mikill sem gengur út að fossinn að vestan molni niður á næstu árum, ef allt fari fram sem horfi nú. Fylgst með fossimun íhálfaöld „Já, ég er eins og ég segi búinn að fylgjast með fossinum núna í hálfa öld og taka myndir af hon- um öðru hverju æ síðan,“ segir Mannsi. „Það kom reyndar hlé á þessar myndatökur mínar í all- mörg ár, þó ég safnaði myndum af fossinum á þvi tímabili, en sfðan tók ég upp þráðinn við mínar eigin myndatökur um 1990. Stallurinn í fossberginu að vestan hefur tekið miklum stakkaskiptum á fáum árum og mikið molnar úr berginu þeim megin. Þess vegna er fossbrúnin ekki jafn slétt og hún var. Hún var nánast alveg bein þegar ég var krakki og var að koma hing- að í fyrstu skiptin að skoða foss- inn.“ Ekki uni aldur og eilífð Og Mannsi heldur áfram: „Fyrr á tíð var ekki til siðs að taka myndir af fossinum, því auðvit- að hélt fólk að fossinn yrði þarna um aldur og eilífð. En ég er ekki svo viss um svo verði. Við vitum það til dæmis að Víga- bergsfoss, sem er nokkru neðar í Jökulsá á Fjöllum, hvarf um miðja þessa öld eftir mikinn og stífan ágang árinnar, og hið sama gæti vitaskuld gerst með Dettifoss." -SBS. Haraldur Þómrinsson, títtnefndur Mannsi. „Dropinn holar steininn og ég hef horft uppá miklar breytingar á fossinum, “ segir Mannsi. mynd: sbs Dettifoss á því herrans ári 1946. Feröamenn að skoða þetta undraverk náttúrunnar og vikið í fossinum er tiltölulega mjó raufá þessum timapunkti. mynd: h.þ.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.