Dagur - 01.11.1997, Side 18
3é - LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1997
ro^ur'
jAfið í landinu
SífJAN
Ný dönsk. Kveður með virktum.
Fortíðarhyggjan/nostalgí-
an verið mjög ráðandi í
popp- og rokklífi hins vest-
ræna heims síðustu árin.
Hafa Bítlaárin verið þar
mesta uppsprettan og hér
á landi hefurfortíðar-
hyggjunnar auðvitað líka
gætt.
Nýdönsk var þar fremst í flokki en
hún var lengst af sínum tíu ára feril
skipuð þeim Jóni Ólafssyni, Birni Jör-
undi Friðbjörnssyni, Stefáni Hjör-
leifssyni, Daníel Agúst Haraldssyni
og Ólafi Hólm. Nánast frá fyrstu
hendi, með Hólmfríði Júníusdóttur af
fyrstu plötunni árið 1987 og fram til
1996 voru þeir félagarnir mjög áber-
andi í íslensku tónlistarlífi og sendu
frá sér sex plötur undir eigin nafni
auk tveggja annarra, Drög að upprisu
með Megasi, og Gauragang með tón-
list úr samnefndu leikriti. Nú tíu
árum eftir að sveitin varð til í
Menntaskólanum við Hamrahlíð, eru
meðlimirnir hins vegar farnir hver í
sína áttina, en til að ljúka samstarf-
inu með hátíðarbrag er nú komin út
vegleg tvöföld geislaplata með úrvali
af lögum sveitarinnar ásamt þremur
nýjum lögum, tónleikaupptökum o.fl.
Alls eru þetta 37 lög í vönduðum
búningi, sem er veglegur minnisvarði
um þetta tíu ára Iífstarf Nýdanskrar.
Hólmfríður, Kirsuber, Alelda, Horfðu
til himins, Ilmur, Nostradamus,
Himnasending o.fl. eru dæmi um þau
fínu lög sem Nýdönsk skilur eftir sig
og er að finna á safnplötunni. Er
greinilegt að landinn hefur ekki
gleymt þessum piltum og saknar
þeirra eitthvað, því á kveðjutónleik-
unum tveimur fyrir viku mættu vel á
annað þúsund manns og á skóla-
skemmtun á Akureyri var hún líka vel
kvödd. I sögubókum mun sveitarinn-
ar því væntanlega verða vel minnst og
þáttur hennar í íslenskri rokksögu
teljast all nokkur.
geislaformi.
Hefur Skífan staðið að þessu og má
segja að viss endapunktur hafa verið
sleginn í því í síðustu viku, þegar tón-
leikaplatan, Drög að sjálfsmorði, með
Megasi og sjálfsmorðssveitinni, kom
út að nýju. Það má deila um hversu
góð eða merk þessi plata er, en víst er
að hún er einhver frægasta tónleika-
plata sem nokkurn tfmann hefur kom-
ið út á íslandi. I stuttu máli sagt var
platan tekin upp á tvennum tónleikum
sem haldnir voru í MH í nóvember
1978. Þessir tónleikar urðu, og eru
enn, sérlega minnistæðir og þá ekki
bara fyrir frammistöðu Meistarans á
þeim og Sjálfsmorðssveitarinnar, held-
ur ekki hvað síst fyrir umgjörðina og
allar sögurnar sem urðu til í kjölfarið.
Muna sjálfsagt margir eftir því þegar
Megas var knúinn til að koma fram
opinberlega til að kveða niður háværar
sögusagnir um sjálfsmorð sitt í kjölfar
tónleikanna. En eitt var hins vegar
ljóst á þeim tíma, að ástandið á kapp-
anum var ekki gott og eitthvað varð til
bragðs að taka ef ekki átti illa að fara.
Utgáfa plötunnar árið 1979, markaði
Meistaradrög Megasar að sjálfsmorði eru komin út á geislaformi.
vissan endapunkt hjá Megasi, sem
næstu fjögur árin eða svo dró sig í hlé.
Hann snéri svo aftur með Bubba á
plötunni Fingraförum 1983 og í sveit-
inni Ikarusi á piötunni The boys from
Chicago það sama ár. Sem fyrr sagði
er Drög að sjálfsmorði ekki endilega
snilldarverk, menn voru til dæmis
gagnrýnir á úrvinnslu hennar, en hún
er samt sem áður mjög svo merk heim-
ild í poppsögu íslands.
Meistarans frægu drög
Síðastliðin tvö árhefurver-
ið unnið að því að endurút-
gefa plöturMegasar á
6
Magnús Geir
Guömundsson
skrifar
• Þrátt fyrir að fjármálaspekúlantar og
fleiri vilji ekki spá stúlkunum snoppu-
fríðu og gríðarvinsælu í Spice girls vel-
gengni í langframa, er í bili ekki að sjá
að æðinu kringum þær sé að linna. Nýja
smáskífan þeirra, Spice up your life, fór
nefnilega rakleiðis á toppinn í liðinni
viku í Bretlandi, en útgáfu þess hafði
verið frestað um nokkrar vikur vegna frá-
falls Díönu prinsessu og útgáfunnar á
Candle in the wind með Elton John.
Mun svo stóra platan, Spice world,
væntanlega fylgja fordæmi smáskífulags-
ins og fara á toppinn víða um heim.
• í Bandaríkjunum, á breiðskífulistanum
þar, fór Janet Jackson með nýju plötuna
sína, Velvet rope, í efsta sætið í síðustu
viku. Kemur það ekki svo mjög á óvart,
Siðskeggjuðu suðurrlkjarokkararnir i ZZ top eiga lag á
Pottþétt - Rokk.
en hins vegar vekur það athygli, að plat-
an er aðeins nefnd undir fornafni söng-
konunnar ffægu, Janet. Gæti þar spilað
inn í einhverjar erjur við aðra fjölskyldu-
meðlimi, en slíkt er engin nýlunda á
þeim bænum, samanber það að yngri
systir Janet, LaToya, hefur í flestu eða
öllu sagt skilið við aðra í fjölskyldunni.
Hvað Janet varðar en þó ekkert hægt að
alhæfa.
• Gleðipopps- og útihátíðasveitin Húsvísk-
ættaða, Greifarnir, sendir nú frá sér nýja
plötu innan tíðar. Mun gripurinn bera
nafn sveitarinnar og ætti að vera kominn
í verslanir annan mánudag.
• Pottþétt-plöturnar tvöföldu hafa náð
miklum vinsældum hérlendis og halda
plöturnar áfram að koma út. Sú nýjasta í
þeim hópi er Pottþétt - Rokk. Tæplega
40 lög prýða safnið og eru þau frá ýms-
um tíma, allt frá 1967 til 1995 og með
bæði innlendum og erlendum flytjend-
um. Meðal flytjendanna eru, David
Bowie, Jet Black Joe, Queen, Foreigner,
Radiohead, Survivor, Oasis, Deep
purple, Start(Sekur) og Flowers(SIapp-
aðu af) Rainbow, Blue Oyster cult og ZZ
top (Gimmie all your lovin’) og margir
fleiri.