Dagur - 11.11.1997, Síða 4

Dagur - 11.11.1997, Síða 4
20-ÞRIBJUDAGUR 1 1 . NÓVEMBER 1997 Ðíypvr UMBÚÐALAUST Rógurhjá starfsmamii LÍÚ Wg/M GUÐMUNDUR g 'Æ THORSSON Síðastliðinn föstudag birtist í Morgunblaðinu fróðleg grein eftir Jónas Haraldsson starfs- mann LIU sem ekki er hægt að skilja öðruvísi en svo að þar fari þessi lögmaður fram á það við nýstofnuð Náttúruverndarsam- tök íslands að þau víki Arna Finnssyni úr félagsskapnum og meini honum að tala í nafni þeirra, enda sé Arni starfsmaður hryðjuverkasamtakanna Green- peace. Nú er það alkunna að LIÚ- menn telja sig eiga nokkuð und- ir sér - Kristján Ragnarsson talar löngum eins og allir sem ósam- mála eru honum um hvaðeina séu óhlýðnir starfsmenn LIU, hvort heldur þar er um að ræða ritstjóra Morgunblaðsins eða jafnvel sjálfan sjávarútvegsráð- herra, sem Kristján talar ævin- lega um eins og undirmann sinn. Og Jónas Haraldsson hef- ur áður vakið athygli fyrir ein- staklega heiftúðug skrif um Greenpeace-samtökin fyrir þá sök að þau samtök hafi óhlýðn- ast fyrirmælum LlU um stefnu í umhverfismálum. En hér kastar tólfunum: með skrifi sínu er hann í raun réttri að fara fram á það að Arni Finnsson sé sviptur bæði félagafrelsi og málfrelsi á Islandi - hann fer fram á það að Árna Finnssyni sé gert óvært á Islandi og hann hrakinn úr landi; hann vill gera Árna að nokkurs konar skógarmanni í opinberri umræðu, að þjóðin öll komi fram við hann eins og pestarsjúkling, svikara, Iand- ráðamann, allt vegna þess að Árni hefur starfað innan vé- banda Greenpeace-samtakanna, er andvígur hvalveiðum og hefur haft hugrekki og manndóm til að láta þá skoðun einarðlega og málefnalega í Ijós. Við þetta er margt að athuga. I fyrsta lagi sú krafa starfsmanns LÍU sem lúrir að baki greininni að allir skuli vera hér sammála um þetta mál. Hví skyldum við öll vera á einu máli um nauðsyn hvalveiða? Ekki er ég hvalveiði- maður, það eru ekki mínir hags- munir að hvalveiðar séu hér stundaðar; það eru ekki þjóðar- hagsmunir heldur hagsmunir fyrirtækis sem heitir Hvalur hf. og nokkurra hrefnuveiðimanna, hagsmunir sem reynslan hefur sýnt okkur að skipta engu máli í þjóðarbúskapnum. Hvað sem Magnús Guðmundsson kann að gefa til kynna í myndum sínum þá er það mér ekki lífsmáti að vera hvalveiðimaður - eða yfir- höfuð veiðimaður - fremur en yfirgnæfandi meirihluta þjóðar- innar. Ég er skrifstofublók og hef fullan rétt til að hugsa sem slíkur. Hinu er þó ekki að leyna að mér hefur alltaf þótt hvalaást Greenpeace-samtakanna og annarra náttúruverndarmanna úti í Evrópu en einkum þá Am- eríku svolítið kjánaleg, og á eins og aðrir íslendingar bágt með að skilja að ekki megi veiða hvali af því þeir séu svo gáfaðir, en drepa megi öll hin dýrin af því þau séu svo vitlaus - til dæmis kýr sem sagðar eru ámóta vitrar og hvalir. * * * En það er fullkomið aukaat- riði. Það er ekki von á góðu ef Islendingar halda að Green- peace-samtökin séu „hryðju- verkasamtök" eins og Jónas hef- ur eftir forsætisráðherra. Þar er alvarlegur hugtakaruglingur á ferðinni. Það eru ekki hryðju- verk að standa fýrir utan ráð- stefnur með borða; það eru ekki hryðjuverk að birta auglýsingar þar sem vakin er athygli neyt- enda á því að tilteknar þjóðir veiði hvali; það eru ekki hryðju- verk að reyna að fá stóra kaup- endur á fiski til að beina við- skiptum sínum í þá staði þar sem hvalveiðar séu bannaðar - hins vegar unnu Frakkar hryðju- verk á Greenpeace-samtökunum þegar Rainbow Warrior var sökk um árið svo mannsskaði hlaust af. Manni getur þótt stefna Greenpeace bjánaleg en það að berjast á móti einhverju sem einhverjir Islendingar hafa áhuga á að stunda er ekki hryðjuverk í sjálfu sér. Kjarni málsins er að samtökin saman- standa af einlægu fólki sem berst fyrir náttúruvernd og eitt brýnasta hagsmunamál íslensku þjóðarinnar er jafnframt bar- áttumál þessara öflugu samtaka: bann við losun eiturefna í sjó. Umfram allt: Árni Finnsson hefur heilagan rétt til að tjá sig um umhverfismál og til að reyna að vinna sjónarmiðum sínum fylgi. Þann rétt hefur starfsmað- ur LÍÚ líka - en rógur á borð við þann sem hann hefur uppi í Morgunblaðinu síðastliðinn föstudag er hins vegar til þess fallinn að gera óða hvalverndun- arsinna úr öllum ærlegum mönnum. Meimingarvaktin Gerum Guðna að ráðherra KOLBRUN BERGÞÖRS- DOTTIR SKRIFAR í málefnaþurð fyrir síðustu kosningar fann Framsóknar- flokkurinn upp slagorðið Fólk í fyrirrúmi og tókst á einhvern furðulegan hátt að kjafta sig inn á þjóðina. Síðan hefur flokkur- inn markvisst hummað af sér fylgið. Meðan allflestir ráðherr- ar Sjálfstæðisflokksins ganga að verkefnum sínum af einbeitni hins vinnusama manns virðast ráðherrar Framsóknarflokksins ekki hafa full tök á verkefnum sínum. Og engan sérstakan vilja til að sinna þeim. Stirðbusalegir ráðherrar flokksins eru hnípnir menn í vanda en geta engum kennt um öðrum en sjálfum sér. Á engan hátt verður séð að ráðherrar Framsóknarflokks hafi þrótt til að lappa upp á ímynd sína. Af framgöngu þeirra mætti ætla að ráðherradómur ræni menn Iífsgleði og frumkvæði. Þeir mæta fyrir framan sjón- varpsvélar og svara spurningum fréttamanna af ólundarlegri skyldurækni. Afstöðuleysið virð- ist stíga villtan tangó í hugar- fylgsnum þeirra. Kjósendur eru aldrei nokkru nær og vita það eitt að Framsóknarflokkurinn er með ýmis mál í athugun. Nú má vissulega deila um það hvort lýðræðislega kjörin ríkis- stjórn eigi að hafa skemmtigildi. Það er hins vegar heldur vont mál þegar framganga einstakra ráðherra er með slíkum hætti að þjóðin fyllist tilvistarleiða í hvert sinn sem hún ber þá augum. Er ekki kominn tími til að tosa þá menn upp úr ráðherrastólum sem greinilega leiðist vistin þar? Innan þessa ört minnkandi flokks hlýtur að finnast þing- maður sem getur tekist á við ráðherradóm. Hugur minn hvarflar reyndar samstundis til Guðna Ágústssonar. Hann er glaðlyndur og hressilegur ná- ungi og skáld í frístundum. Hin lýríska taug hans mun vísast heilla þjóðina. Auk þessa hefur hann þann ótvíræða kost, fram- yfir ráðherra flokksins, að hafa skoðanir. Ég á ekki von á því að hin hugmyndasnauða forysta Fram- sóknarflokksins telji þörf á end- urnýjun innan sinna raða. En það yrði óneitanlega hressileg tilbreyting fyrir kjósendur ef í ríkisstjórn Islands fyndist skyndilega framsóknarmaður með lífsmarki.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.