Dagur - 11.11.1997, Blaðsíða 11

Dagur - 11.11.1997, Blaðsíða 11
Xk^Hr PRIÐJUDAG UR 1 1 .NÓVEMBER 19 97 - 27 LÍFIÐ í LANDINU Harðviðurfrá Ameríku er þurrkaðurá Húsavík og sendur tiljapan. Margternýtt undir sólinni. í verksmiöju Aldins hf. á Húsavík þegar Finnur ingóifsson iðnadarrádherra sótti starfsemina heim. Hér sést Gunnlaugur Stefánsson, framkvæmdastjóri, aðstoða ráðherrann við að saga harðvið. Harðviður á Húsavík „Við höfum ekki að aðalmark- miði að selja framleiðsluvörur okkar á innanlandsmarkað. Við höfum heint markaðsstarfi okk- ar á Evrópulönd, en einnig selt harðvið til fjarlægari landa, einsog Japan,“ segir Gunnlaug- ur Stefánsson, framkvæmda- stjóri Aldin hf. á Húsavík. Fyrir- tækið er í eigu Kaupfélags Þing- eyinga, Kaupfélags Eyfirðinga, Stefáns Oskarssonar, Norður- víkur ehf, Karls Asmundssonar og fleiri - en fyrirtækið sagar og þurrkar harðvið, sem fenginn er frá NA-fylkjum Bandaríkjanna. Grunnurinn að rekstri verk- smiðjunnar á Húsavík, svo að segja á hjara veraldar, er ódýrt heitt vatn sem notað er við þurkun viðarins. „Þó áherslur í okkar markaðs- starfi séu miðaðar við erlendan markað höfum við engu að síð- ur áhuga á innanlandsmarkaði. Við gerum okkur vonir um að markaður hér á landi fyrir harð- við stækki smám saman og Is- lendingar eignist öflug fyrirtæki í úrvinnslu úr harðviði, sem muni auka fjölbreytni íslensks atvinnulífs — og einnig styrkja þau fyrirtæki sem eru fyrir í þessari atvinnugrein,“ segir Gunnlaugur Stefánsson. Hann segir starfsemi Aldins hafa vaxið síðustu tvö ár, en fyrirtækið var stofnað haustið 1995. Stefnt er að því að á næsta ári verði velt- an komin í 180 millj. kr., að unnir verði 2.500 m3 af harðviði og starfsmenn verði orðnir 13, en í dag eru þeir níu talsins. Sitthvað er framleitt og smíð- að úr harðviði. Má þar nefna húsgögn af ýmsum toga sem og eldhúsinnréttingar. Fram til þessa hefur harðviður verið not- aður við þá framleiðslu, en einsog Gunnlaugur segir er þess vænst að í næstu framtíð stækki markaðurinn hér heima og Húsavíkur-harðviður verði í rík- ara mæli notaður við þessa framleiðslu. -sbs. NYJAR ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGIJR Eru Kristján og Glóbus við Eitt stöndugasta fyrirtæki Akur- eyrarbæjar er Kristjánsbakarí, sem rekur heljarmikla brauðgerð efst á Brekkunni á Akureyri. Fyrirtækið var stofnað snemma á öldinni af Kristjáni þeim, sem það er eftir nefnt. En frumherj- inn er löngu fallinn frá og af- komendurnir eru teknir við af þessum áa sínum. Það var svo fyrir nokkrum árum sem landsþekktur bóksölu- maður sem einnig hefur gert garðinn frægan íýrir dægurlaga- söng mætti inn í bakríið og hugðist kaupa brauð og kökur. En þar sem þessi bókmennta- sinnaði söngvari lætur ekki bjóða sér hvað sem er var hann vandlátur á viðurgjörning af- greiðslufólks, og þegar honum var nóg boðið spurði hann ein- faldlega hvort Kxistján sjálfur væri nokkuð við. En þá hristi brauðsölustúlkan einfaldlega höfuð og sagði: „Nei, það er ekki hægt, hann Kristján er löngu dá- • „ « ínn. Landsþekkt er svo svipuð saga af manni sem mislíkaöi eitthvað þjónustan hjá Glóbus hf. í Reykjavík. Eftir Ianga mæðu og langa leit eftir því sem hann vantaði brast manninum þolin- mæði og spurði einfaldlega hvort hann Glóbus sjálfur væri ekki á staðnum. SMÁTT OG STÓRT Smástráltar ybba gogg Átök voru á landsfundi Alþýðubandalagsins fyrir og um helgina svo að um munaði, formaðurinn „lét sverfa til stáls“ og smástrákurinn kom upp í þingmönnum Hokksins og þeir gerðu sitt besta til að ybba gogg undir fallegum orðum flokksfor- mannsins um samfylkingu vinstri manna án þess að skella þó aftur alltof mörgum hurðum - ekki vilja þeir fórna sætinu. Meðan allaballar voru að ldofna á landsfundinum í ReykjaMk sameinuðust þeir annars staðar. Þannig var til dæmis á Akureyri þar sem vinstri menn féllust í faðma fyrir nokkru og ákváðu að bjóða fram saman til bæjar- stjórnar næsta vor. Maður spyr: Faðmlög fyrir norðan en innantómt hjal í þing- húsinu fyrir sunnan? Innantómt hjal eða faðmlög? Það er spurningin. Möglunarlaus afgreiðsla? Og svo vekur athygli í Mogganum um helgina nokkuð sem við fyrstu sýn virðist tregða í heilbrigðisráðuneytinu en er það auð- vitað alls ekki. Þar hafa embættismenn til umfjöllunar umsóknir frá norskum sem hafa sótt um lækningaleyfi á íslandi. Blessaðir embættismennirnir segja að dregist hafi að afgreiða umsóknirnar því að læknarnir séu að „stytta sér leið“. Nám þeirra taki 8-9 ár í Noregi en fimm og hálft á íslandi. Ekki sé hægt að hafna um- sóknunum (...það hefur auðvitað hvarflað að þeim...) því að EES-reglur heimili það ekki. Ollu venjulegu fólki virtist sem embættismannakerfið væri þarna í klemmu en svo er víst ekki: „Hafi þetta verið vandamál er búið að leysa það,“ segir kerfið á röggsaman hátt. Hvernig? Það skyldi þó ekki vera að menn neyð- ist til að fara eftir reglunum og afgreiða umsóknirnar möglunar- laust? Hvaö eiga bömin að gera? Slæmar fréttir berast af perlu Reykvíkinga, sjálfri Tjörninni, því að þar ku ákveðið að hætta að gefa gæsunum brauð til að hlífa gestum við skít og drullu og hlýtur það að koma nið- ur á kosti vesalings and- anna sem hafa mátt þola yfirgang og frekju í garg- andi gæsum og frekum svönum í áraraðir til að geta sinnt gestum sínum, gjafmildum börnunum með brauð í poka. Sumir myndu nú fara að hafa áhyggjur af blessuðum börnunum sem hafa orðið að vaða skítinn upp að hnjám og berjast við ágengnar gæsir til að gefa öndunum brauð. Breytir þetta nokkru um reglulega gesti Tjarnarinnar? Hætt að gefa öndum brauð? Varað vlð sigur- vissu Keppnisandinn er alltaf sam- ur við sig í landanum og að sjálfsögðu vænta menn einskis annars en sigurs þeg- ar liðin fara á heimsmeistara þetta og heimsmeistara hitt. Nú heyrast fréttir af því að ungir iðnaðarmenn ætli að „Gleðibanki" á ólympíuleikum taka þátt í ólympíuleikum iðnaðarmanna? ungra iðnaðarmanna í Kanada á næsta ári. Sjálfsagt eiga þeir eftir að slá í gegn þessir bráðefnilegu bakarar, hárskerar og húsgagnasmiðir. Þeir eru sjálfsagt löngu byrjaðir að baka, greiða eða klippa og smíða enda er fyrsta hugsunin sem kemur upp í hugann: nú vinnum við. Nákvæmlega eins og í fyrstu Evróvisjón-keppninni um árið. Auðvitað hljótum við að sigra en Dagur getur ekki stillt sig um að vara við: „Vonandi lendum við þó ekki í nýju „gleðibanka- dæmi“ líkt og Norðmenn á sínum lýrstu leikurn. Þeir sendu 8 keppendur og reiknuðu jafnvel með sigrum en enduðu óvart í neðsta sæti í öllum 8 riðlunum."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.