Dagur - 27.11.1997, Page 6
6- FIMMTUDAGUR 27.NÓVEMBER 1997
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Sfmar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Símbréf auglýsingadeildar:
Sfmbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVIK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
460 6171 (AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Barist uiii miðjima
í fyrsta lagi
Framsóknarmenn eru sýnilega að reyna að styrkja sig í sessi
sem miðjuflokkur nú þegar vinstrimenn eru farnir að vinna að
því af fullri alvöru að ná saman um stefnuskrá og einhvers
konar sameiginlegt framboð fyrir næstu alþingiskosningar. I
því ljósi verður að líta á áskorun miðstjórnar Framsóknar-
flokksins til flokksmanna um að í sem flestum sveitarfélögum
verði borinn fram hreinn flokkslisti við byggðakosningarnar
næsta vor. Þar er augljóslega ekki verið að amast við samstarfi
framsóknarmanna í Reykjavík innan R-Iistans í þessari um-
ferð, heldur fyrst og fremst verið að marka flokknum sterkari
stöðu á milli vinstriflokkanna og Sjálfstæðisflokksins.
í öðru lagi
Ræða Halldórs Ásgrímssonar, formanns Framsóknarflokksins,
á miðstjórnarfundinum bar það með sér að flokkurinn telur
sig hafa náð verulegum árangri í stjórnarsamstarfinu. Sé það
rétt'mat er Ijóst að það endurspeglast ekki í niðurstöðum skoð-
anakannana. Þar virðist Sjálfstæðisflokkurinn græða vel á rík-
isstjórnarsamstarfinu, en Framsóknarflokkurinn tapa. Það er
reyndar ekki óalgengt þegar flokkurinn lendir í stjórnarsam-
starfi til hægri.
í þriðja lagi
Auðvitað bíða margir spenntir eftir að vita hvort sameiginlegt
framboð vinstrimanna verður að veruleika fyrir næstu þing-
kosningar. Ef af því verður mun slagurinn í kosningunum alls
ekki standa um vinstrafylgið í landinu. Þvert á móti; þá munu
allar þrjár fylkingarnar - sjálfstæðismenn, framsóknarmenn og
vinstrimenn - beijast af kappi um atkvæðin á miðjunni og um
þá kjósendur sem eru sífellt að leita að nýjum pólitískum
draumaprinsi. Þannig verður það hin breiða miðja íslenskra
stjórnmála sem ráða mun úrslitum um hvernig litróf stjórn-
málanna lítur út eftir næstu þingkosningar.
Elías Snæland Jónsson.
Duglegur maður
Bjöm
Björn Bjarnason er duglegur
maður. Hann er sífellt að og
unir sér ekki hvíldar í að ná
fram stefnumálum sínum og
Sjálfstæðisflokksins. Enda er
almælt hversu mikið vinnu-
mórallinn í menntamálaráðu-
neytinu hefur breyst við komu
hans í húsið. Embættismenn
eru t.d. alveg hættir að fara í
veggtennis og badminton í
vinnutímanum - hafa ekki
tíma lengur. Og fáir stjórn-
málamenn hafa úthald í það
að halda úti sínu
einkamálgagni á Net-
inu eins og Björn gerir,
en á heimasíðu sinni
dundar hann sér við
það á sunnudagskvöld-
um að stinga á kýlum
samfélagsins og reyna
að vinna sjálfstæðis-
stefnunni og Sjálfstæðis-
flokknum eitthvað gagn.
Heimasíðan
Og það var einmitt á heima-
síðunni sem þjóðin varð vitni
að nýjasta dugnaði Björns
Bjarnasonar fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Björn fór að skrifa
um samstarfsflokkinn og sak-
aði hann um að leika tveimur
skjöldum í stjórnmálum. Ekki
nóg með það, Björn gekk
lengra og sagði flokkinn ekki
ráða almennilega við þessa
tvöfeldni og því hafi farið sem
raun ber vitni - flokkurinn
komi illa út í skoðanakönnun-
um. í útskýringum Björns á
þessari kenningu sinni kemur
fram að þátttaka framsóknar í
Reykjavíkurlistanum geti ekki
samrýmst því að flokkurinn
standi utan við sameiningu
jafnaðarmanna. Þessi skrif
Björns hins duglega eru aug-
Ijóslega ætluð framsóknar-
mönnum og tilgangurinn með
þeim að skapa þar óánægju
með þátttökuna í Reykjavík-
urlistanum. Hann er að reyna
að búa til samsvörun milli
dalandi fylgis í könnunum og
R-Iistans. Björn telur greini-
lega að slíkt kynni að hjálpa
sjálfstæðismönnum í Reykja-
vík.
Bjöm og Jón
duglegi
Björn gleymir því hins
vegar að bæði fram-
sóluiarmenn og aðrir
vita nákvæmlega
hvers Framsóknar-
flokkurinn er að
gjalda í skoðanakönn-
unum. Hann geldur
stjórnarsamstarfsins í
ríkisstjórn, en ekki R-listans
og þess vegna tekur enginn
mark á þessum skrifum
Björns. Hins vegar er öllum
það svo augljóst að Björn er í
einu af sínum dugnaðarköst-
um fyrir flokkinn sinn - og
það kunna Islendingar að
meta. Dugnaður - já takk. Atli
Magnússon blaðamaður skrif-
aði einu sinni um Jón duglega
sem naut þjóðarvirðingar fyrir
dugnað sinn. Var það haft til
marks um dugnað hans, að
einhverju sinni þegar hann
vann ofan í lest á skipi við
uppskipun á fiski hamaðist
hann svo mikið að hann rak
höfuðið í sperru og rotaðist.
Eins er með Björn Bjarnason.
Hann rak höfuðið líka í
sperru á heimasíðu sinni. En
hann er duglegur maður,
Björn - því verður ekki neitað.
GARRI
JOHANNES
SIGUBJÓNS-
SON
skrifar
Gleðilegur málnmgar-
mánuður
Þegar er farið að örla á því að
menn kasti ekki kveðjum á borð
við „góðan daginn“ og „gott
kvöld“ á þá sem þeir hitta á förn-
um vegi, heldur segi einfaldlega
„gleðileg jól!“ Og halda því nátt-
úrlega áfram það sem eftir lifir
árs.
Jólin nálgast sem sé og eru
raunar þegar skollin á og hafa
staðið svo Iengi um miðjan mán-
uðinn að maður fær það á til-
finninguna að þau séu að baki í
kringum 16. desember. Þá er
jólaglöggið búið að fossa lengi
um fyrirtækin og klístra þar
skrifstofuhúsgögn og skapa ríf-
lega yfirv'innu fyrir hreingern-
ingafólk sem veitir víst ekki af
smá jólaglaðningi í Iaunaumslag-
ið í þessum mánuði.
Hin ómstríða jólaauglýsinga-
sinfónína hefur hljómað í góðan
mánuð á Ijósvakanum og jólalög-
in fara að tröllríða þeim í tíma og
ótíma, svo mörgum liggur við
ógleði þegar fyrstu tónar „Jóla-
sveinsins míns sem ætlar að
koma í kvöld“ fara að hljóma.
Að lifa af jólin
Þegar eru
farnir að birt-
ast varnaðar-
og hvatn-
ingapistlar
sem beint er
til hús-
mæðra: Látið
ekki jólin
ganga gjör-
samlega frá
yltkur; svindl-
ið örlítið í
jólahrein-
gerningunni
og sópið undir teppið; bakið að-
eins tólf smákökusortir í stað
þrettán; fáið börnin til að hjálpa
ykkur; hættið að kaupa jólagjafir
handa fjarskyldustu ættingjum;
biðjið guð þess á hverju kvöldi að
kallinn veiji jafn miklum tíma í
að hjálpa ykkur eins og hann
eyðir í glöggið með vinnustaða-
vinunum; hetra er að lifa af fá-
brotin jól en láta lífið eftir
stórkostlega
gjaldþrota-
hátíð í glans-
andi hrein-
um húsa-
kynnum.
Þetta eru
hollráðin til
húsmæðr-
anna sem
horfa með
hryllingi til
jólanna. Og
á sama tíma
auglýsa
verslanir sem höndla með pensla
og málningu að nú fari í hönd
„málningarmánuður." Málning-
armánuður? Eiga menn nú ofan
á allt annað að fara að mála
íbúðina í desember?
Flatan niðursknrð á jólin
Þegar fólk er farið að horfa með
hryllingi til jólanna og þau eru
farin ríða að heilsu fólks og fjár-
hag að fullu, þá er kannski kom-
inn tími til að staldra ögn við og
endurskoða þessa ágætu hátíð,
rifja upp um hvað hún snýst, fyr-
ir hverja hún er og í hvaða til-
gangi við höldum heilög jól.
Jólin hafa verið og geta aftur
orðið tími friðar og íhugunar,
hvíldar og gleði. Ef við kjósum
það sjálf. Ef ekki, þá verða
stjórnvöld e.t.v. að hafa vit fyrir
okkur í þessu máli eins og svo
mörgum öðrum þar sem forræð-
isumhyggjan er höfð að leiðar-
Ijósi, og boða 50% flatan niður-
skurð á jólahaldi Islendinga.
Það væri stjórnvaldsaðgerö
sem myndi ugglaust gleðja ýmsa.
Skv. tillögum nefndar
umforgangsröðun í
heilbrigðisþjónustu
verður fólk ekki látið
gjalda þess að heilsu-
leysi sé afvöldum lífs-
hátta þess, s.s. reykinga
eða ofáts. Ertu sam-
mála?
Gunnlaugur K. Jónsson
fomaðurNáttúruhekningafélagsís-
lands.
Nei, ég er
ekki sam-
mála því og
hvers eiga
þeir að
gjalda sem
viðhafa
ábyrga lífs-
hætti? Sá
sem lifir
óheilbrigðu lífi getur því, þegar
heilsan bilar, bankað upp á hjá
sameiginlegum sjóðum lands-
manna og sagt: hér er ég og nú
skuluð þið laga mig. Þetta er
ekki hvetjandi fyrir áróður um
heilsusamlegt líferni.
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir
meinatæhnr og þolfimikennari á Ak-
ureyri.
Nei, mér
finnst ekki
hægt að láta
fólk gjalda
þess að hafa
étið á sig gat
eða reykt
einsog
strompur.
Slíkt er sjúkdómur, sem er
greinilega mjög erfitt að ráða við.
Þorgrúnur Þráinsson
framkvæmdstjóri
Tóbáksvamanefndar.
Það er tæp-
ast hægt að
draga fólk í
dilka í þess-
um efnum,
því ástæður
óheilbrigðra
lífshátta
geta verið
margar og
mönnum reynist erfitt að losna
undan oki fíknar. Eg treysti Ingi-
björgu Pálmadóttur, heilbrigðis-
ráðherra, fullkomlega til að leysa
þau mál sem upp koma í heil-
brigðisgeiranum. Hún hefur
staðið sig vel í ráðherratíð sinni.
Niltulás Sigfússon
yfirlæknir Hjartavemdar.
Það er vafa-
samt að
refsa fólki
fyrir lifnað-
arvenjur.
Fólk kann
að líta svo á
að um sjálf-
skaparvíti sé
að ræða, en
málið er
ekki svo einfalt. Ef þetta lýrir-
komulag yrði tekið upp gætum
við eins refsað fólki fyrir að
stunda ekki líkamsrækt. Þá eru
vísbendingar um að ofneysla á
mat og áfengi sé erfðatengd og
það styður enn frekar að taka
ekki upp þá stefnu að fólk greiði
fyrir heilbrigðisþjónustu, þó líf-
erni þess sé heilsunni óæskilegt.