Dagur - 27.11.1997, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 27.NÓVEMBER 1997 - 13
ÍÞRÓTTIR
L
Landsliðið á æfingu fyrir siaginn við Júgósiavana i kvöid. mynd: e.úl
Nauðsynlegt að taka
harkalega á þeim
Hvaða brögðum kem-
ur Þorbjöm Jensson
landsliðsþjálfari til
með að beita í leikn-
uin mikilvæga gegn
Jngðslavíu í kvöld.
Dagur leitaði til Atla
Hilmarssonar, þjálf-
ara KA, til að þefa það
upp hvernig Þorbjöm
myndi stiUa liði sínu
upp.
Atli spáir jöfnum leik í Laugar-
dalshöllinni í kvöld, þar sem
hann segir þó sigurmöguleika Is-
lendinga aðeins meiri. „Við verð-
um að beita hörku. Eg held það
sé nauðsynlegt að taka harkalega
á þeim, trufla sóknarleikinn og
stoppa spil þeirra í fæðingu með
því að láta þá fá aukaköst. Þá
fara þeir að væla og það er okkur
í hag,“ segir Atli og bætir því við
að stórsigur Islands í Kumamoto
komi liðinu ekki til góða nú,
nema síður sé. „Eg veit ekki
hversu góður þessi níu marka
sigur er núna. Júgóslavar voru
hræðilega slakir í þeim leik og
þeir eru örugglega ekki búnir að
gleyma þessum úrslitum."
PáU í stað Dags
Að framansögðu er það nokkuð
ljóst að KA-þjálfarinn var nokk-
uð vantrúaður á að Þorbjörn
ensson mundi leggja það fyrir
íslenska liðið að spila 6-0 vörn,
jafnvel þó Nenad Perunicic,
helsta stórskytta Júgóslava, sé
fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Líldegt er að Þorbjörn stilli upp
3-2-1 varnarleik, sem oft hefur
gefist vel á móti Júgóslövum, en
á æfingu liðsins í gær lagði Þor-
björn þrenns konar varnaraf-
brigði fyrir menn sína, 6-0, 4-2
og 3-2-1. Aðspurður um það af
hverju hann léti liðið æfa allar
þrjár tegundirnar svaraði Þor-
björn því til að þó hann trúði því
að ein taktik virkaði best, þá gæti
hann ekki sett allt sitt traust á
hana. „Eg hef svo oft lent í því að
taktik gengur ekki upp og þá
verður maður að vera tilbúinn til
að gera breytingar."
Líklega verður lagt upp með 3-
2-1 vörnina og ef eitthvað er að
marka uppstillinguna á æfingu
þá kemur það í hlut Páls Þórólfs-
sonar að taka stöðu Dags Sigurð-
arsonar, sem jafnan hefur leikið í
„senterstöðunni“ í vörninni.
Islenska landsliðið lék svokall-
aðan 3-3 varnarleik og fóru langt
út á móti Júgóslövum í leiknum í
Kumamoto, en Atli sagði það
mjög ólíklegt að íslenska liðið
mundi reyna það í kvöld. Slík
taktik er stundum reynd gegn
liðum sem hafa mjög sterkum
skyttum á að skipa, en veikara
línuspili. Júgóslavneska liðið er
hins vegar án sinnar helstu
skyttu og auk þess eru þeir með
línumanninn Dragan Scribic
sem leikur með þýska liðinu
Hameln og er erfiður viðureign-
ar á línunni.
Fá far með einka-
vél Júgóslava
Júgóslavneska landsliðið og að-
stoðarmenn létu fara vel um sig í
200 manna leiguvél af gerðinni
Boeing 737, sem þeir neyddust
til að leigja eftir að ferðaáætlun
þeirra fór út um þúfur. Júgóslav-
neski hópurinn kom ekki hingað
til lands fyrr en í gærkvöld, en
þess má geta Islenska hand-
knattleikssambandið hefur þegar
samið um far með vélinni til
Belgrad á morgun og íslenski
hópurinn sleppur því við þreyt-
andi ferðalag í síðari leikinn.
Ferðalag júgóslavneska hóps-
ins fór algjörlega út um þúfur,
þegar í ljós kom að þeir þurftu að
skipta um Ilugvöll í Lundúnum.
Þeir þurftu vegabréfsáritun til að
ferðast í Lundúnum og hana
hafði liðið ekki. Var því liðinu
nauðugur sá kostur að snúa aft-
ur til síns heima og þar var sú
ákvörðun tekin að leigja vélina til
að koma hópnum hingað til
lands í tæka tíð.
Atli taldi það vel mögulegt að
Rostko Stefanovic, sem lék með
Celje Piovarna Lasko gegn KA-
mönnum, verði í byrjunarliðinu í
stað Perunicic og leiki þá á miðj-
unni og að Nedeljo Jovanovic,
sem verið hefur á miðjunni,
verði færður í skyttustöðuna
vinstra megin.
Hugsanlegum uppstillingum á
sóknarleik íslenska liðsins fækk-
ar til muna við það að missa Dag
út úr liðinu. Það virðist nokkuð
sjálfgefið að Patrekur Jóhannes-
son byrji á miðjunni og líklegast
er að fyrrum samherji hans frá
KA, Julian Róbert, verði í skyttu-
stöðunni vinstra megin og Kon-
ráð Olavson í horninu. Þorbjörn
hefur haft orð á sér fyrir að
treysta lykilmönnum sínum vel
og það er lítil hætta á öðru en að
Bergsveinn, Geir, Valdimar og
Ólafur skipi hinar fjórar stöðurn-
ar, nema hvað Bjarki á sjálfsagt
eftir að skipta eitthvað við Valdi-
mar í sóknarleiknum í takt við
það hvernig leikurinn þróast.
Hvernig leyst verður úr þessu á
eftir að koma í Ijós og það er til
að mynda ekki gefið að
Duranona sé fyrsti kostur í sókn-
arleiknum þegar leikið er gegn 3-
2-1 vörn.
„Júgóslavnesk lið eru þekkt
fyrir að spila 3-2-1 vörnina mjög
vel, en hins vegar kæmi mér það
ekki á óvart þó liðið mundi stilla
upp flatri vörn, þar sem flestir
leikmenn liðsins eru hávaxnir,"
sagði Atli. - FE
Atli Hilmarsson.
Tryggvi á kald-
an klakann
Tryggvi Guðmunds-
son hefur víða reyut
fyrir sér í haust með
atviimumennsku í
huga. Síðast var hann
hjá Aberdeen, jiar sem
hann lék með ungl-
ingaliði félagsins. í
dag er Tryggvi í
Tromsö í Noregi jiar
sem klakinn fer seint
úr jörðu.
íslandsmeistarinn, markakóng-
urinn og besti leikmaður Is-
landsmótsins, Tryggvi Guð-
mundsson, skrifaði undir samn-
ing við norska úrvalsdeildarliðið
Tromsö í gærkvöld. Hann er
annar íslendingurinn sem gerir
samning við Tromsö, sem er
nyrsta fyrstudeildarfélag í heim-
inum í dag. KR-ingurinn og fyrr-
um félagi Tryggva, Hilmar
Björnsson, gerði munnlegan
samning við félagið ekki fyrir
löngu en var ekki búinn að skrifa
undir í gærkvöld.
Vitað er að Tryggvi hefur verið
ofarlega á lista hjá forráðamönn-
um Tromsö að undanförnu. Þeir
ætla sér að styrkja liðið til muna
Tryggvi Guðmundsson.
fyrir komandi keppnistímabil en
liðið rétt náði að bjarga sæti sínu
í úrvalsdeildinni í lok síðustu
leiktíðar. Allar aðstæður liðsins
eru góðar þrátt fyrir að náttúru-
legar aðstæður séu með þeim
kaldari sem gerast. Það hefur
ekki gengið allskostar vel hjá
Tryggva Guðmundssyni að koma
sér í atvinnufótboltann. Eftir að
hafa flakkað um álfuna og reýnt
fyrir sér, m.a. hjá Válerenga í
Noregi og Aberdeen í Skotlandi,
varð það Tromsö liðið sem gat
hugsað sér að nýta krafta besta
knattspyrnumanns Islands árið
1997. —gþö
Birgir Lcilur í
hópi 75 bestu
Birgir Leifur Hafþórsson tryggði
sér sæti á Challenge-mótaröð-
inni í golfi f gærdag, þegar hann
loks náði að klára fjórða hring
sinn á úrtökumóti evrópsku
mótaraðarinnar í golfi á Spáni.
Mótinu var tvívegis frestað vegna
veðurs og það var eldvi fyrr en í
gær að Birgir Leifur náði að
ljúka leik á þremur síðustu hol-
um Guadalminavallarins. Hann
lekk par, 5 högg á 16. og 17.
holu vallarins eftir að hafa misst
pútt fyrir „fugli“ á báðum þeirra,
en náði að leika lokaholuna á
þremur höggum, einu höggi
undir pari. Lokapúttiö dugði
honum til að vinna sér sæti á
meðal 75 efstu kylfinganna og
sæti á Challenge-mótaröðinni.
Birgir Leifur lék hringina á 74,
73, 72 og 72 höggum, eða sam-
tals á 291 höggi, en hefði þurft
að leika á þremur höggum færra
til að fá inngöngu á PGA-mótun-
um í Evrópu.
„Eg er nokkuð sáttur við þenn-
an árangur og geri mér vonir um
að þó ég hafi ekki náð í hóp
þeirra fjörtíu bestu, þá komi ég
til með að spila á tveimur til
þremur mótum á „Evróputúrn-
um“ á næsta ári,“ sagði Birgir
Leifur. Hann sagðist hafa verið
þokkalega ánægður með leik
sinn, nema hvað járnahöggin
hefðu oft verið betri, en ósáttur
við þá ákvörðun sem mótshald-
ararnir tóku í fyrradag um að
fimmti hringurinn yrði ekki leik-
inn. Birgir Leifur sagði að ekkert
hefði verið hægt að kvarta yfir
aðstæðum í gær.
Birgir Leifur Hafsteinsson.
Heim á leið
Birgir Leifur mun halda heim á
leið á næstu dögum og mun
dveljast hér á landi framyfir ára-
mótin. Ekki hefur verið ákveðið
hvað Birgir Leifur tekur þátt í
mörgum Challenge-mótum, en
þau byrja í mars og fer fyrsta
mótið fram í Suður-Afríku. Síð-
an verða mót vítt og breitt um
Evrópu og góð frammistaða á
þeim gæti opnað honum dyr inn
á evrópsku PGA-mótin, þar sem
keppt er um miklu hærra verð-
launafé. Birgir Leifur ætti að
eiga góða möguleika á að taka
þátt í þeim mótum þar sem verð-
launaféð er tiltölulega Iítið og
staðirnir úr alfaraleið, eins og til
dæmis mót sem haldið er í
Marokkó.