Dagur - 02.12.1997, Blaðsíða 1
Kertaljósijifrá Eyjum
eru í hörkusamkeppni
við innflutning.
En harkan býrí mýkt-
inni: Ijósinfrá kerta-
verksmiðjunni
Heimaey eru unnin
með hjartanu á vemd-
uðum vinnustað fyrir
fatlaða. Heima-
eyjarkertin em í
mikilli sókn.
Kertalj ós og kauphækkun
Forsetahjónin, biskupinn, kerti
og hljóðfæraspil. Þannig kom
aðventan í hjörtu þeirra sem
mættu á Kjarvalsstaði á sunnu-
dag og dáðust að ljósadýrðinni
frá Eyjum. Fegurð og birta um-
lukti gesti, en í bakgrunni er
hörkusamkeppni á kertamark-
aðnum. Kertaverksmiðjan
Heimaey er verndaður vinnu-
staður fyrir fatlaða, sem hefur
verið í mikilli sókn. Markmiðinu
um að selja 200 þúsund kerti á
einu ári hefur verið náð, og það í
upphafi aðventu. A bak við
þennan góða árangur liggur vilj-
inn til að gera betur.
Kauphækkun
Fjölmenni dáðist að ljósadýrð-
inni og naut helgistundar með
hjóðfæraleik og ávörpum. Ný-
vígður biskup, herra Karl Sigur-
björnsson, bað fólk að hleypa
ljósinu í huga sér á aðventu, og
forseti, Ólafur Ragnar Grímsson,
tendraði fyrsta Ijósið. Logandi
kertin spegluðust í gluggum
Kjarvalsstaða og sýndust skipta
þúsundum. Fulltrúi kaupmanna
sagðist myndu Ieggja söluátakinu
lið og endurómaði þann góða
vilja sem kom fram í garð Heima-
eyjar. Þarna er á ferðinni átak
sem hver einasti einn getur lagt
lið: fyrir jólin fá jú allir eitthvað
fallegt, í það minnsta kerti og
spil. Kertin frá Heimaey eru
vissulega falleg eins og gestir á
fyrsta sunnudegi í aðventu sáu.
Starfsmenn Heimaeyjar hafa
fengið 30% kauphækkun vegna
þess hve vel hefur gengið. Kaup-
ið er því samræmt því sem geng-
ur og gerist á vernduðum vinnu-
stöðum, en svo var ekki meðan
afköst og sala voru mun minni.
Nýlega var fötluðum starfsmönn-
um fjölgað úr 12 í hálfu starfi í
21 og verksmiðjan rekin á fullum
afköstum. Það er mikill munur
frá því sem var þegar fólkið fékk
vinnu með höppum og glöppum.
Staðan er nú sú að nær allir
Eyjabúar sem þurfa á vernduðum
vinnustað að halda fá vinnu.
Áður var biðlisti. Vonin er sú að
smám saman fái fatlaðir þá þjálf-
un sem gerir þá gjaldgenga á al-
mennum vinumarkaði.
Stefnt hærra
Ef salan verður góð í desember á
að endurnýja tæld og bæta að-
stöðu starfsmanna. Stefnan er
nú sett á aukið úrval kerta og
fjölbreyttari framleiðslu. Heima-
ey er í samkeppni við innflutn-
ing, og hefur aðeins um 5-10% af
markaðnum. Innfluttu kertin
koma einkum frá Svíþjóð og
Danmörku. Starfsmenn Heima-
Veitum hagstæð
lán til kaupa á
landbúnaðarvélum
Reiknaðu með
1 SP-FJÁRMÖGNUN HF
Vegmúli 3 • 108 Reykjavík • Simi S88-7200 • Fax S88-7201
eyjar fullyrða að sín framleiðsla
sé fyllilega samkeppnishæf í
verði, og einkum þó gæðum.
Verðið sé sambærilegt, en
brennslutími íslensku kertanna
sé stundum þriðjungi lengri.
Styrkir mimnka
Þegar litla \ánnu var að hafa
borgaði ríkið nær helming launa
starfsmanna. Með meiri sölu, af-
köstum og vinnu hefur hlutfall
rfkisins f Iaunum lækkað mikið.
Verksmiðjan er því ekki lengur al-
veg háð styrkjum, heldur fram-
leiðslan að verða sjálfbær í
rekstrarlegum skilningi. „Þetta
eru kerti sem eru unnin með
hjartanu,“ segir María Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri sýningarinnar
á Kjarvalsstöðum og stjórnandi
söluátaksins „Færum fötluðum
framtíð". Það átak hófst fyrr á
árinu og miðaði að því að festa í
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
sessi atvinnusköpun og starfs-
þjálfun fyrir öryrkja og fatlaða.
Markaðssókn
Markaðssóknin felst ekki bara í
að framleiða meira eins og
stundum er gert þegar hægri
höndin gleymir þeirri vinstri.
Salan er hluti af átakinu, og til að
koma kertunum á framfæri eru
þau nú komin í nýjar áberandi
fallegar umbúðir sem hannaðar
eru hérlendis. Þá hafa verið sett-
ir upp sérstakir standar í verslun-
um svo kertin séu meira áberandi
en fyrr. Og nú fást þau víðar um
land en áður. Alll miðar að því
að auka söluna. Og útlitið ætti
að vera gott: jólaljósin í ár koma
frá hjartanu.
Sjd einnig viðtal dagsins
« bls. 27.
-SJH