Dagur - 02.12.1997, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGVR 2 . DE SE MB E R 19 9 7 - 23
LÍFIÐ í LANDINU
Kári
ritstjórnarköttur
’ skrifar
\(\ó
æga fólkið
Hangikj ötsklíkan
Bálköstur, blys, veigar og hlað-
borð, ræðuhöld og nikka. Þetta
var bara forsmekkurinn að kjöt-
kveðjuhátíð í Straumi í Hafnar-
firði á laugardagskvöld. Sverrir
Olafsson, æðstistrumpur í „The
dead meat society" eða Kjöt-
kveðjuklíkunni, setti hátíðina
undir kratarós, en þar var ekki
talað rósamál: hér voru saman-
komnir þeir sem ætla sér ekkert
annað en besta hangikjöt í
heimi. Fimm hjólbörufarmar af
kjöti lágu í pækli; skán, birki,
beyki greni og lyng voru í haug-
um, eða „skítur" eins og Sverrir
sagði. Fjöldi manna kom með
kjötið, alls konar listasprautur,
pólitíkusar og aðrar sprautur
samfélagsins; krakkar, hundar
og kettir hlupu um völl. Magnús
Jón Arnason bæjarfulltrúi var
sérlega hylltur íyrir hálfrar aldar
afmæli, minnst var á rússneska
kommúnistaflokkinn sem einnig
átti afmæli þann sama dag, en
aðallega var rætt um gildi góðs
hangikjöts. Reykkofinn var til-
búinn og sérstaklega valið lið
sem þótti rétt að etja fram í
„skítverkin": Hulda Hákon
myndlistarkona og ritstjóri Dags
látin hengja upp í kofanum -
enda hann kvartað opinberlega
yfir því að vera ekki í hangi-
kjötsklíku. Jón Arsæll Þórðarson
var látinn blessa, (líklega af því
að svona var Island þennan
dag). A meðan skemmtu hinir
sér og bolabítur rak ketti upp í
rjáfur. Sverrir tendraði svo eld-
inn og kveikti upp, en Jón Ar-
sæll sagði söguna af því þegar
pabbi hans skaut níu álftir í
tveimur skotum þarna úti með
sjónum og bað fólk að þegja
jólahangikjötinu til heiðurs
meðan kviknaði upp. Nú rýkur í
litlum kofa úti í hrauni, ein-
hvern tímann á jólaföstu kemur
í ljós hvar „besta hangikjöt í
heimi er að finna“.
Busarnir i hópnum voru settir í skítverkin, hin sönnu skítverk: hengja kjötið upp í rjáfur
og skríða í skítnum, lyngi, beyki og sagi. Ritstjóri Dags og Hulda Hákon myndlistar-
maður á duggarapeysu.
Sverrir Ólafsson ávarpaði gesti og lofaði heimsins besta hangikjöti úr
reykhúsinu í hrauninu. mvndir sjh.
Fimm hjólbörufarmar voru fluttir aó húsinu.
Gleðileg jól i vændum hjá sælkerum!
Jón Ársæll flutti kjötbæn þegar búið var að hengja upp.
Magnús Jón var hylltur fyrir 50 ára æviskeið, hér til hægrí með
kommaskiltið sitt og baráttufélaga.
„Ráðlegg öllum að leggja svolítið i brúðkaupsdaginn, “ segir Berlind Sigurpálsdóttir, sem
hér er ásamt Jónasi Inga Sigurössyni, eiginmanni sínum. (Ljósmyndastofa Páls,
Akureyri.J.
Tímikomiim
á giftingu
Saman íþettán ár, en
giftusigþá. „Tmi
kominn til. “
„Okkur fannst kominn tími til
að við giftum okkur, en við vor-
um búin að vera saman frá ár-
inu 1984,“ segir Berglind Sigur-
pálsdóttir, húsmóðir á Arskógs-
sandi. Hún og Jónas Ingi Sig-
urðsson, eiginmaður hennar,
gengu í heilagt hjónaband þann
6. september sl. Séra Hulda
Hrönn Stefánsdóttir, sóknar-
prestur, gaf þau saman við há-
tíðlega athöfn í Stærri-Arskógs-
kirkju.
„Eg myndi ráðleggja öllum að
leggja svolítið í brúðkaupsdag-
inn sinn. Þetta var skemmtileg-
ur dagur sem verður minnis-
stæður," segir Berglind. „Við
héldum skemmtilega veislu hér í
Arskógsskóla, þar sem við buð-
um uppá veitingar og fjöldi
góðra og skemmtilegra ræðna
voru fluttar. Nei, við fórum ekki
í neitt brúðkaupsferðalag. Að
minnsta kosti ekki ennþá.“
Sem áður segir hafa þau Berg-
lind og Jónas verið saman í
þrettán ár, en hún er 29 ára en
hann fimm árum eldri. Þau eiga
saman tvær stelpur, sjö og
tveggja ára. Berglind starfar
heima við að gæta bús og barna,
en Jónas er stýrimaður á bátn-
um Sólrúnu EA, sem gerður er
út frá Arskógsströnd. -SBS.
Sigríður og Kristján
Gefin voru saman í Grundar-
kirkju í Eyjafirði þann 6. sept-
embersl., afsr. Svavari Alfreð
Jónssyni, þau Sigríður Jakobs-
dóttir og Kristján Vemharðsson.
Heimili þeirra er á Austurbergi í
Eyjafjarðarsveit. (Ljósmyndastofa
Páls, Akureyri).
Eva Rakel og Höskuldur
Gefin voru saman í Lágafells-
kirkju í Mosfellsbæ þann 3. maí
á liðnu vori, af séra Sigríði Guð-
mundsdóttur, þau Eva Rakel
Helgadóttir og Höskiddur Ólafs-
son. Heimili þeirra er í Hraunbæ
188 í Re) kjavík. (Ljósmyndarinn
Lára Long).