Dagur - 13.12.1997, Blaðsíða 6

Dagur - 13.12.1997, Blaðsíða 6
VI- LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 MINNINGARGREINAR Brynhildur Magnúsdóttir fæddist á Selfossi 15. október 1979, en bjó allan sinn aldur á Oddgeirshólum, Hraungerðis- hreppi. Hún lést á deild 11-E á Landspíatalanum 26. nóvember. Foreldrar hennar eru Magnús Guðmundsson, f. 7. nóvember 1951, og Margrét Einarsdóttir, f. 16. mars 1951, búa þau á Odd- geirshólum. Foreldrar Magnúsar eru Guðmundur Ámason og Ilse Brynhildur Magnúsdóttir Amason, búsett á Oddgeirshól- um. Foreldrar Margrétar eru Ein- ar Guðni Guðjónsson, dáinn 1982, og Brynhild Stefánsdóttir, búsett á Selfossi. Systkini Brynhildar em Harpa, fædd 20. apríl 1978, Elín, fædd 18. mars 1981 og Einar, fæddur 22. september 1986. Brynhildur var nemandi í Fjöl- brautarskóla Suðurlands, á 5. önn á málabraut og starfaði í Vöm- Vinningaskrá 30. útdráttur 11. des. 1997. íbúðavinningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 15323 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) I 19577 27873 40896 72132 Ferðavinningur Kr. 50.000 7461 29933 39734 49697 62921 68901 25345 35624 46102 56299 66758 75405 Húsbúnaðarvinningur 304 10839 18108 28556 42963 51073 64682 73353 3133 11936 19435 28881 42999 52672 65457 75779 4545 12527 20059 30507 43220 53513 67551 76144 5332 12832 20131 30797 43376 53779 68312 76626 5466 13634 20922 31232 43515 54681 68522 78715 5848 14650 23410 32167 43973 58927 69080 78793 6029 15776 23902 32923 44246 59678 69325 78873 6302 15803 24298 36210 45761 59801 69472 79043 7311 15921 25341 36725 45849 61697 69945 79589 8029 16327 25513 37873 46055 62353 70013 8588 16964 26926 40906 48661 63296 70430 9108 17360 27003 41702 49423 63361 70800 10023 17489 27640 42182 50900 64605 71976 Húsbúnaðarvinningur Kr. 5.000 3 10841 21857 32789 40574 50666 57958 70196 286 11161 21933 32853 40767 50690 57992 70218 366 11175 22048 32897 41155 51028 58390 70510 409 11690 22155 33034 41226 51085 58597 70913 475 11776 23012 33101 41540 51088 59260 71207 678 11793 23090 33108 41621 51255 59413 71519 939 12030 23412 33209 41718 51346 59809 71601 1089 12036 24058 33596 41877 51363 59856 72081 1149 12231 24143 33969 41975 51373 60074 72617 1377 12421 24476 34251 42081 51464 60087 72641 1777 12549 24484 34397 42118 51869 60170 72802 1983 12801 24567 34610 42338 51960 60696 72912 2313 13029 24690 34739 42467 52036 61899 72976 2460 13330 24808 34824 42648 52039 61948 73021 2748 13368 24900 34957 42716 52500 61967 73093 3008 13536 24973 35283 43478 52640 62377 73319 3030 13794 25005 35515 43687 52706 62480 73501 3204 14297 25130 35689 43717 52808 63282 73644 4012 14333 25139 35756 43743 52859 63378 73737 4200 14456 25168 35791 44014 52876 63397 73781 4458 14672 25305 35997 44200 53125 63680 73919 4556 14747 25327 36193 44322 53299 63831 74234 4633 14785 25532 36621 44622 53354 63914 74785 4929 15058 25610 36826 44845 53462 64234 75495 4998 15130 26218 37012 45069 53684 64425 75807 5060 15777 26230 37042 45193 54109 64740 76123 5500 16086 26681 37062 45320 54290 65242 76394 5535 16115 26721 37190 45696 . 54553 65506 76705 5679 16308 27092 37199 46688 54606 65682 76775 5768 16385 27160 37784 46922 54613 65773 76921 5929 16503 27213 37787 47131 54699 66470 76973 5946 16511 27782 37863 47178 54843 66477 76977 6460 16582 27887 38030 47179 54904 66749 77071 7233 17032 27997 38092 47730 55098 67143 77093 7255 17658 28302 38349 47963 55525 67394 77565 7510 17825 28739 38598 47968 55556 67435 77690 7662 17944 28870 38827 48205 55645 67530 77864 7826 ■ 18258 29061 38873 48329 55916 67626 77923 7975 - 18331 29217 39083 48593 56153 67634 78051 8001 18961 29249 39287 49007 56203 68028 78227 8228 19053 29473 39295 49103 56350 68060 78344 8329 19188 . 29742 39414 49216 56526 68133 78493 8849 19739 29906 39442 49231 56809 68301 78525 9190 19892 31054 39565 49339 57053 68422 78615 9866 20241 31096 39566 49535 57145 68508 78623 9951 20353 31097 40124 49836 57192 68637 79381 10148 20812 31147 40222 50093 57239 69309 79574 10383 21297 31349 40274 50281 57527 69538 79598 10583 21532 31351 40314 50378 57631 69863 79746 10669 21558 32709 40496 50578 57946 70002 79852 Nfesti útdríttur fer fram 18. des. 1997 Heimasíöa á Interneti: Http://www.itn.is/das/ húsi K.Á. í sumarvinnu 1994 og 1995 og með námi á vetuma en sumarið 1996 var Brynhildur að vinna á hestabúgarði í Þýska- Iandi. Útför Brynhildar fór fram frá Selfosskirkju síðastliðinn laugar- dag. Hver hefði getað trúað því að þegar ég kvaddi þig í forstofunni í Geira- koti áður en ég fór til Argentínu að það væri í síðasta sinn sem ég sæi þig í þessu lífi. Hefði ég vitað það hefði verið kvatt á allt öðruvísi hátt. Síðan þá hafa samskipti okkar að- eins verið bréfleiðis og fyrir mig er mjög erfitt að átta mig á því að þeg- ar ég kem heim munt þú ekki verða þar. Eg var ekki til staðar þegar þú háðir baráttu þín við dauðann, sá þig aldrei neitt vemlega veika. Þetta allt saman var að byija þegar ég fór og því er þetta allt mjög ótrúlegt og einfaldlega fáránlegt fyrir mig að trúa og skilja. Ég er að hugsa hvað eiginlega hefur skeð uppi í Himna- ríki sem er svo áríðandi og mikil- vægt að það þurfti að ná í þig til að leysa málin. Eg veit það fyrir vist að það hefur verið eitthvað svakalega mikilvægt og ætla ég því að reyna að sætta mig við að þín er þörf annars staðar. Kannski munt þú segja mér hvað það var sem var svona mikil- vægt þegar við hittumst á ný. Það er ekkert auðvelt að sætta sig við að kveðja svona miklu fyrr en við báðar áttum von á. Þú sem ert svo stór partur af mínu stutta lífi. Nú þegar þú ert farin streyma til mín allar þessar yndislegu minningar um þig án þess að ég fái nokkuð við það ráðið og gefa mér hveija ástæðuna á fætur annarri til að brosa gegnum tárin. Það bmtust alltaf út fagnaðarlæti hjá mér og Kristínu systur þegar við fómm upp að Oddgeirshólum og gátum leikið okkur allan daginn með þér, Hörpu og Elínu. fmyndun- araflið tók öll völd og klettamir gátu auðveldlega orðið að himinháum íjöllum þar sem Iöggur og bófar háðu stríð ríðandi um á tréhestum. Sætar minningar um öll afmælin og hin frægu jólaböll í Þingborg. Eða þegar mæður okkar gerðu sam- komulag sín á milli að fara með okk- ur krakkaskarann í sumarbústað á hveiju vori sem varð árlegur við- burður okkur öllum til mikillar ánægju. Það er mér alveg sérstak- lega eftirminnilegt þegar við fómm norður í Hjaltadal vorið sem við fermdumst. Við vorum á okkar gelgjuskeiði og klæddum okkur því- líkt upp fyrir dagsferð inn á Sauðár- krók, fómm í þvílíkt útvíðar buxur, hatta, sólgleraugu og ég veit ekki hvað og hvað. Það besta var, að við báðar, illa snúnar á öklum, skelltum okkur í fermingarskóna sem vom með ekkert minna en 10-12 senti- metra háum hælum þetta árið. Við höltruðum svo um þveran og endi- langan Sauðárkrók í góðri trú um að við væmm sko rosa gellur. Ég er ekkert svo alltof viss um það lengur að Skagfirðingar hafi verið á sama máli, eða hvað heldur þú? Eftir að þú byijaðir í 8. bekk í Sólvallaskóla hittumst við mun oftar en áður. Við vomm í sama bekk og gerðum Eddu kennara lífið leitt með kjaftagangi og snúðaáti inni í tímum. Samt allt í góðu. Það særir mig ólýsanlega að hugsa til þess að nú em þessar stundir á enda, því það verður aldrei það sama þegar þig vantar. Við hin- ar verðum að vera duglegar að rifja upp gömlu góðu tímana, allar frá- bæm útilegumar. Það skipti engu máli að fara eitthvað langt. Það var alveg nóg að fara á tjaldsvæðið á Selfossi til að eiga góða hvítasunnu- helgi. Eða þegar við fórum á Prodigytónleikana. Brynhildur jeppabani!! Við gátum gert ævitnýri hvar og hvenær sem var. Og síðan byijuðum við í Fjölbraut og vina- hópurinn fór stækkandi. Þín verður sárt saknað, það verður alltaf þessi „það vantar eina“ tilfinning hjá okk- ur öllum. Það er svo bjánalegt hvað litlir hlutir fá allt aðra merkingu núna, eins og það þegar við vomm að djóka hvað við ætluðum að gera áramótin 2000. Ég man sérstaklega eftir einni nótt fyrir um það bil ári síðan þegar þú varst heima og við vomm vakandi alla nóttina talandi um ffamtíðina. Við létum okkur dreyma um interrail ferðina okkar sem við ætluðum að fara sumarið ‘98. Við ætluðum að ferðast um alla Mið-Evrópu á sex vikum og enda ferðina í Tyrklandi. Við höfðum ver- ið að tala um þetta í tvö ár. Núna verður þessi ferð aldrei farin nema í draumum mínum. Já, ég og þú gát- um aldrei hætt að bulla um áhuga okkar á fjarlægum slóðum og ævin- týralegum ferðalögum. í einum af síðustu bréfunum sem ég fékk frá þér sagðir þú mér frá áhuga þínum á Tælandi. Ég býst við að núna get- ir þú farið til Tælands þegar þig Iangar til. Núna þegar ég þarf að kveðja þig, langar mig til að þakka þér fyrir að hafa alltaf staðið við bakið á mér í öllu sem ég hef gert. Ég hef alltaf reynt að gera það sama fyrir þig Iíka. Þú hefur kennt mér svo margt um vináttu, traust, heiðarleika og dugn- að. Takk fyrir að leyfa mér að njóta þess kærleika sem ríkir í kringum þig hvert sem þú ferð. Þú hefur svo sannarlega sýnt okkur öllum hvað það er mikilvægt að horfa alltaf á björtu hliðamar og gefast aldrei, aldrei upp. Ég dýrka þig fyrir það að þú gleymir aldrei hver þú ert og hvað þú vilt. Ég verð að segja þér að þú ert sú heiðarlegasta manneskja sem ég hef kynnst. Ég hræðist ekki leng- ur dauðann, dauðinn er aðeins ann- að form af því að vera tíl. Ég veit að þú ert hamingjusamanri þar sem þú ert núna. Þangað til við hittumst næst ætla ég að reyna að sakna þín ekki of mikið og ég vil segja þér svo- Iítið sem við segjum alltof sjaldan á Islandi: Ég elska þig. Fjölskyldunni í Oddgeirshólum sendi ég mína dýpstu samúð. Þín vinkona alltaf Auðbjörg I dag kveðjum við þig ástkæra systir. I huga okkar geymast yndislegar perlur, skærar og bjartar minningar um stundimar með þér. Eins og þegar við systumar þijár fórum með Perlu í nestisferð inní Einbúa. Þar notuðum við tækifærið og fórum í langstökk og dugði ekkert annað en að raka sandinn og mæla stökkin. Þegar röðin kom að þér að raka vildi svo illilega til að þú misstir hrífuna í hausinn á Eh'nu. Og þegar við hraustmennin miklu ákváðum að byggja brú yfir skurðinn í Stóru hestagirðingunni en skorti nægilega tækniþekkingu til þess og því varð fína brúin okkar að fínni stíflu. Manstu allar sumarbústaðaferðim- ar með Auðbjörgu og Kristínu þar sem margt var brallað, meðal ann- ars merktar ljósakrónur í Vík, sagð- ar draugasögur, búin til útvarpsleik- rit, farið í bamamorðingjaleik, stolið símtólum og spilakassar tæmdir. Ekld má gleyma öllum útreiðartúr- unum og þegar við systumar þijár og Bryndís Vala fómm ríðandi til Höllu og villtumst nærri því í þokunni sem reyndist bara vera dalalæða. Þegar við hjóluðum hringinn til Höllu og mamma varð að koma á Land Róvemum með kerru og sækja okkur því að við vor- um búnar að veiða svo mikið af homsílum í fötur. Og þegar við vor- um í reiðskólanum og reiðskóla- hrossin sluppu útí Stóru-Reykja- haga og við eltum þau útum allt enda tókst það að lokum. AUar íþróttaæfingamar í Einbúa sem við fómm á, helst ríðandi og þá þýddi nú ekkert annað en að fylgja Ollu og Höllu af stað heim og helst að hley- pa alla leið. Allar íþróttaæfingamar í Þingborg á vetuma og seinna hand- boltaæfingamar á Selfossi. Og þeg- ar við „myndarheimasætumar“ bök- uðum pönnukökumar sem vom svo vondar að hundurinn leit ekki við þeim og snúðana sem festust við plötuna. Þegar kettlingamir okkar vom svæfðir og við grétum heila nótt. Hvað þú varst þolinmóð við hann Tígul þinn sama hvað á gekk enda var hann ekld auðveldur í tamningu. En reyndist þér síðan mjög vel bæði sem reiðhestur, fjall- hestur og keppnishestur. Hvað þú gladdist yfir sigmm bæði þínum og annarra. Hvað þið Pétur bulluðuð mikið á fjalli. En síðan varðstu veik og þrátt fyrir veildndin komstu tíl okkar uppí Hólaskóg í sumar þegar við gistum þar í eina nótt í Hesta- ferðalaginu okkar. Hvað þú hélst áffarn að vera með í ungmennafé- laginu, vinna í sjoppunni fyrir það og mæta í skólann þrátt fyrir allt. Þetta stríð var erfitt en þú barðist vel og gafst aldrei upp vonina. Elsku Brynhildur, við kveðjum þig núna en minningin um þig mun lifa með okkur sem dýrasti fjársjóður um ókomna tíð og vonandi tekur þú á mótí okkur þegar okkar tími kemur. Við viljum þakka öllum þeim sem styrkt hafa okkur og sýnt vináttu sína á þessum erfiðu tímum. Og ekki síst starfsfólki á deild 11E á Landspítalanum. Þínar systur. Harpa og Elín Elsku Binna! Núna ætla ég að kveðja þig í síð- asta sinn, stóra systir. Mig langar til að þakka þér, í nokkrum orðum, fyr- ir allt það sem þú hefur gert fyrir mig. Manstu þegar ég týndi ístaðinu mínu og við og Pabbi fórum að leita að því en ég datt af baki og hand- Ieggsbrotnaði. Manstu allar beijaferðimar sem við fórum í út á Svörtu-Steina við allir krakkamir. Þegar þú kenndir mér á háu og lágu gírana og á tölv- una. Besta Binna, takk fyrir allar góðu minningamar með þér. Hveri örstutt spor var auðnuspor með þér. Hvert atidarUik er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur luír, minn sáttmáli við Guð í þúsund ár. Hvað jafnast á við andardráttinn þinn1 Ilve öll sú gleði erfyrr naut hugur minn er orðinn hljómlaus, ulangátla og tóm hjá undrinu að heyra þennan róm. Hvfldu í friði. Þinn litli bróðir Einar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.