Dagur - 30.12.1997, Blaðsíða 1

Dagur - 30.12.1997, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 30. desember 1997 80. og 81. árgangur - 245. tölublað Verð i lausasölu 150 kr. Otímábært að tala um sðlu Símans Sala á Pósti og síma bitbein hjá stjómar- í lokkuniiin. Halldór Ásgrímsson segir aHt tal um sölu á Land- síma íslands lullkom lega ótímabært. HaU- dór Blöndal segir sölu liins vegar miMIvæga og þá að hluta til er- lendra aðila. ^Sala á hlutabréfum í Landsíma Islands er einfaldlega óunnið mál og það þarf mikla vinnu til þess að það komist á ákvörðun- arstig. Málið er svo hrátt og óunnið að við erum ekki farin að ræða það í þingflokknum og alls ekki talið það tímabært," sagði Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra og formaður Framsókn- arflokksins, í samtali við Dag í gær. Halldór Blöndal heldur því hins vegar fram í viðtali á bls. 3 Sitthvad er Halldór og Hatidór. Hatldór Ásgrímsson segir sölu hlutbréfa óunniö mál en Halldór Blöndal vill sölu hlutabréfa. að heíja eigi sölu á hlutabréfum í Landsíma Islánds óg fá érlent fjármagn inn í fyrirtækið. Halldór Ásgrímsson segir rétt að skoða framtíð Landsíma ís- lands í ljósi alþjóðlegrar sam- keppni. „I mínum huga er það alveg Ijóst að það að selja Símann til innlendra aðila breytir engu um möguleika hans. Eins er það Ijóst að alþjóðleg fyrirtæki eru í vaxandi mæli að hasla sér völl ut um allan heim. Það er við þær aðstæður sem þetta nýja fyrir- tæki, Landsími Islands, þarf að starfa og keppa. Það er því líklegt að skoða þurfi hvort ekki verði með einhverjum hætti að bind- ast alþjóðlegri samvinnu ef það á að geta staðist til lengri tíma lit- ið,“ sagði Halldór. Hann bendir hins vegar á að byggðin á Islandi sé dreifð og það geti verið erfitt að tryggja einhverja samkeppni í þessum málum í dreifðum byggðum landsins. I þessu sambandi bendir Halldór til Norðmanna sem hafi verið hikandi í þessum efnum, en vandamál dreifbýlis eru mikil þar eins og hér. Þess vegna þurfi að skoða öll þessi mál afar vel. Sainvinna annað en sala „Ljósleiðari um Iandið er sam- göngunet sem mun skipta miklu máli í framtíðinni. Það verður að tryggja aðgengi allra Iandsmanna að því neti með svipuðum hætti og að allir verða að hafa aðgang að vegakerfinu. Eg sé ákveðnar hættur í þeim efnum ef Land- sími Islands verður kominn í einkaeign. Þetta er því afar flók- ið mál sem á sér margar hliðar og þarf miklu meiri undirbúnings- vinnu en nú er áður en það er komið á ákvörðunarstig," sagði Halldór. - s.DÓR Sjá einnig vidtal við Halldór Blöndal á bls. 3 ísólfur Gylfl Pálmason. Göng undir Hellisheiði? ísólfur Gylfi Pálmason vill jarð- göng undir Hellisheiði og boðar þingsályktunartillögu um málið. „Ég hef mikinn áhuga á að gerð jarðganga undir Hellisheiði verði athuguð og ég er að spá í að leggja fram þingsályktunartillögu um þetta efni. Þar yrði lagt til að kannað væri hvort þetta sé raun- hæf hugmynd og arðbær," segir ísólfur Gylfi Pálmason, þing- maður Sunnlendinga, í samtali við Dag. „Það hefur orðið mikil við- horfsbreyting á síðustu árum hvað varðar jarðgangagerð. Fyrir svo sem þremur til fimm árum töldu fjölmargir óframkvæman- legt að gera göng undir Hvalíjörð - en í dag eru allir á öndverðri skoðun." segir Isólfur Gylfi. Flugeldar fyrir 200 uiilljónir! Flugeldasalan er komin í fullan gang. Sérfræðingar skjóta á að íslendingar muni eyða um 200 milljónum króna í rakettur, púð- urkerlingar og blys af öllu tagi. Sérstakt átak hefur verið í gangi við að fá fólk til að nota hlífðargleraugu þegar flugeldar og blys eru meðhöndluð, en reynslan sýnir að á hverju ári slasast fólk og hlýtur oft varan- legan skaða á augum. Hjálpar- sveit skáta á Akureyri hefur í samvinnu við Sjóvá Almennar dreift öryggisgleraugum til allra níu ára barna og hvetur jafn- framt til þess að allir noti slík gleraugu. Á Akureyri hefur Hjálparsveit- in útsölu á þremur stöðum, í höfuðstöðvum sínum við Viðju- lund, í Stórholti og við Fjölnis- götu og er opið til kl 22:00 í kvöld og til 16:00 á morgun, gamlársdag. Auk Skátanna sel- ur Iþróttafélagið Þór flugelda á Akureyri. Hlynur Tómasson hjá Hjálparsveit skáta á Akureyri sýnir hér brot af því flugeldaúrvali sem á boðstólum er í höfudstað Norðurlands. - mynd: brink - SBS. Latíbær í útlöndum „Stundum er maður nú á barmi þess að hætta þessu, hér á landi er frekar litið niður á svona iðju en hitt,“ sagði Magnús Schev- ing, rithöfundur og þolfimi- kappi, í samtali við Dag í gær. Myndbandsspóla hans um Lata- bæjarliðið varð gífurlega vinsæl á jólamarkaði, seldist í yfir 10 þúsund eintökum og var þó að- eins seld í Bónusbúðum. „Eg ætla að eyða þrem eða fjórum næstu mánuðum í að reyna fyrir mér í erlendri mark- aðssetningu. Fox hefur sýnt Latabæ áhuga og það hefur Walt Disney Iíka gert. Þetta tek- ur allt sinn tíma op það þarf mikla þolinmæði. Eg verð að muna að tvö hundruð nei eru ekki neitt,“ sagði Magnús. Hann segist alltaf sjá Latabæ fyrir sér sem teiknimynd. — JBP srasmaHBSHKi mmm ■i Hamlet í diskótaJkti Blað 2 Premium miðlarar Hringrá sardælu r SINDRI -sterkur í verki ■BDBBl

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.