Dagur - 30.12.1997, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997
11
ERLENDAR FRETTIR
Við kjörstað í Suður-Afríku: óvist hvort ANC helst sameinað til næstu kosninga.
Sundnmg í ANC
DAGURÞOR-
LEIFSSON
SKRIFAR
Nelson Mandela, sem kominn er
undir áttrætt, hefur Iátið af
störfum sem formaður Afríska
þjóðarráðsins (ANC), er fer með
stjórn í Suður-Afríku. Við for-
mennskunni af honum hefur
tekið Thabo Mbeki, varaforseti
landsins.
Gert er ráð fyrir að Mbeki taki
einnig innan skamms við for-
setaembættinu.
Tákn bjartsýni
Þetta verða að líkindum mikil-
vægustu umskiptin í sögu lands-
ins frá því að apartheid var af-
numið ogANC tók við völdum af
Þjóðernisflokknum. I því fólst í
raun að blökkumenn tóku við
völdunum af hvftum mönnum.
Suður-Afríka er undirlögð af
mestu glæpaóöld í heimi og Ioft
er þar lævi blandið í mörgu, en
yfirleitt er þó látið svo heita að
þar sé stöðugleiki nokkur, er
hægt sé að byggja á nokkuð
gæfulega framtíð í félags- og
efnahagsmálum. Tákn þessarar
bjartsýni hefur öðrum fremur
verið Mandela. Ekki fer mjög
fjarri því að segja mætti að
mannkynið hefði orðið sammála
um að lýsa hann allt að því full-
kominn mann (af mismikilli ein-
lægni þó, að líkindum), er haldi
ástandinu í landi sínu í a.m.k.
þolanlegu horfi og tryggi því
grundvöll til þess að byggja á
betri tíð.
Þessi sérstaka dýrkun á Mand-
ela hefur að öllum líkindum átt
talsverðan eða mikinn þátt í því
að Suður-Afríka hefur ekki farið
meira úr böndunum en raun ber
vitni um. Og nú fer ekki leynt að
margir óttast að stöðugleiki sá,
er Mandela er talinn hafa tryggt
að miklu leyti, hverfi með hon-
um sjálfum. Sá ótti er fyrir hendi
á alþjóðavettvangi og enn frekar
í Suður-Afríku sjálfri, meðal
svartra manna, hvítra og ann-
arra.
,;Byltingu“ ekki lokið
A nýafstöðnu flokksþingi ANC,
er Mbeki tók við formennskunni
af Mandela, fórust þeim báðum
orð á þá leið að ýmsuin þótti
ískyggilegt. Téð ummæli Mand-
ela voru túlkuð svo að hann teldi
nauðsyn á frekari ráðstöfunum
til þess að mjókka lífskjarabilið
milli hvítra og svartra lands-
manna. Hefur því verið haldið
fram að forsetinn hafi í því sam-
bandi í huga frekari ráðstafanir
af því tagi, sem á íslensku hafa
verið kallaðar „jákvæð mismun-
un.“ Þesskonar mismunun hefur
lengi verið stefna stjórnvalda í
Bandaríkjunum, og einnig þar
einkum blökkumönnum í vil, en
hefur sætt harðri gagnrýni þar
síðustu ár, m.a. á þeim grund-
velli að hér sé í raun um að ræða
rasisma gegn hvítum mönnum.
Mbeki sagði af tilefni ummæla
Mandela að ljóst væri að bylting-
unni væri ekki lokið, eins og
hinn nýi formaður ANC orðaði
það.
Vera kann að þessi málflutn-
ingur nefndra tveggja leiðtoga
ANC sé helst til þess ætlaður að
Iægja óánægju í röðum flokksins
og meðal fjölmargra blökku-
manna. Fréttamenn þar syðra
segja sem svo að nú sé svo kom-
ið að ANC þurfi ekki svo mjög að
óttast andstæðinga sína, heldur
eigin flokksfélaga. Fjölmargir
þeirra eru óánægðir með stjóm-
völd og ANC og orða það gjarn-
an þannig að flokkurinn hafi
færst langt til hægri í efnahags-
málum.
COSATU og koimmxnistar
Hér er um að ræða splundrun
meðal blökkumanna. Samkvæmt
sumum fréttum hefur síðustu
árin vaxið upp ný svört millistétt
og milli hennar og annarra
blökkumanna er að sögn mikill
og vaxandi lífskjaramunur. For-
ysta ANC hefur látið hafa eftir
sér að lífskjarabilið milli „10%
blökkumanna og mikils meiri-
hluta þeirra hafi hreikkað mjög
hratt."
I fylkinu Eastern Cape (aust-
urhluta fym'erandi Höfðalands)
hafa allmargir ANC-félagar
gengið úr flokki sínum og í nýjan
stjórnmálaflokk, sem nefnist
Sameinaða lýðræðisfylkingin.
Þetta veldur forystu ANC senni-
lega miklum áhyggjum, þar eð
svæði það, sem nú heitir Eastern
Cape, hefur löngum verið talið
helsta kjarnasvæði ANC. Þar
búa Sósar (Xhosa), þjóð sú sem
löngum hefur ljáð ANC mesta
Iiðsemd allra þjóða landsins.
Verulegar líkur eru sagðar á
því að tveir áhrifamiklir aðilar,
sem Iengi hafa verið í bandalagi
viðANC eða jafnvel hálft í hvoru
í þeim Hokki, segi skilið við ANC
fyrir næstu þingkosningar, sem
eiga að fara fram árið 1999.
Þessir aðilar eru verkalýðssam-
bandið Congress of South Afric-
an Trade Unions (COSATU) og
Kommúnistaflokkur Suður-Afr-
íku. Samband flokks þessa, sem
til skamms tíma var einkum
stjórnað af hvítum mönnum, og
ANC stendur á gömlum merg.
Munu kommúnistar jafnan hafa
verið áhrifamiklir í forystu ANC
og átt drjúgan hlut að skipulagn-
ingu þess flokks og starfsemi
hans. Joe Slovo, Iitháískur gyð-
ingur sem lengi var formaður
kommúnistaflokksins, var einnig
um skeið forstöðumaður vopn-
aðs liðs ANC, sem nefnt var
Spjót þjóðarinnar. Siður er með-
al ANC-manna að kalla hver
annan „félaga," að sið kommún-
ista.
Ekki er Iaust við að áðurnefnd
ummæli þeirra Mandela og
Mbeki á flokksþinginu þyki
benda til þess að forysta ANC
kunni að láta freistast til þess að
reyna að sefa óánægjuna í eigin
röðum með því að beina athygl-
inni að hvítum landsmönnum
sem sameiginlegum andstæð-
ingi.
fSenc/iun/ aufsAfétxiaimarb
oÁ/ a/' /e&tw (hs //e u/?i
c (j/e J/ '/ecj/ //ýtt ár /ned
jbö/Afyrir (nS&/fetm/ á/
á/H/iu 'Sem er (uJ // Ja.
Verslunarmiöstöðin
Sunnuhlíð
<Senc/um/ olds/fetaoáiunt/
o/Aae (hj rSta/^s/o//i AeAtu
ós/tá ////( (j/edi/ecj/ nýtt á/*
/ / • / •
ar/.
O//U0U/
ISLANDSBANKI
Akureyri
'4 •, : '(
^ -
ÁöÁÁJ/y/1//1 á/ltd
'Se/ft e,r axt tl(ta/.
Bæjarstjórn Akureyrar