Dagur - 30.12.1997, Side 4
4 -ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997
ro^tr
FRÉTTIR
L
Laxá ekki hættulegasti vegarkafli
Vesturlands
Brúin yfir Laxá í Miklaholtshreppi verður breikkuð á næsta ári. En
hún er ekki hættulegasti vegarkafli á Vesturlandi. Frá Laxá í Borgar-
nes eru sjö einbreiðar brýr að Laxárbrúnni varasömu meðtalinni, átta
einbreiðar brýr ef farið er alla leið til Reykjavíkur frá Laxá. Hættuleg-
astur er þó vegarkaflinn ofan Borgarness og hættulegust vegamót
Vesturlands- og Ólafsvíkurvegar. Ekki eru handbærar tölur hvað
muni kosta að gera allar brýrnar tvíbreiðar, en kostnaður við breikk-
un brúarinnar yfir Laxá er um 1 5 milljónir króna, en hún er ein
minnsta brúin. „Það eru víða staðir þar sem er meiri hætta á slysum.
Það þarf ekki að taka nema gatnamótin á Ólafsvíkur- og Vesturíands-
vegi, þau eru slysahæst á Vesturlandi. Eða svæðið fyrir ofan Borgar-
nes, frá Hrafnakletti um gatnamótin og upp að Hamri. Þetta er
hættulegasti kaflinn á Vesturlandi. Við höfum áhættumat á stöðum
og meðaláhætta er talin um 50, það er ákveðin formúla notuð til að
finna það út. Kaflinn ofan við Borgarnes er með áhættustærð upp á
850. Þetta er miðað við slys sem hafa orðið á fimm ára tímabili. Það
hafa orðið ansi mörg og slæm slys á þessum kafla, þrjú dauðaslys, að
vísu ekki nema tvö á þessu tímabili. Síðan er kaflinn fyrir sunnan
Borgarnes frá Seleyri yfir Borgarfjarðarbrú í bæinn minna hættuleg-
ur með áhættustærð upp á 370,“ segir Birgir Guðmundsson, um-
dæmisstjóri Vegagerðarinnar á Vesturlandi.
Bifröst í samstarf við Háskóla
íslands
Samvinnuháskólinn á Bifröst og Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
íslands (HI) undirrituðu samstarfssamning á dögunum. Samningur-
inn felur það í sér að skólarnir vilja efla rannsóknir og menntun í við-
skipta- og rekstrarfræðagreinum á háskólastigi á Islandi og ætla með
þessum samningi að stuðla að aukinni samvirkni miili skólanna og
samnýta aðstöðu og færni hvors annars þegar hagsmunir fara saman.
Gott að búa á Skaga
Akranes hefur yfirburði yfir höfuðborgarsvæðið í búsetuskilyrðum
samkvæmt nýlegri rannsókn á orsökum búferlaflutninga sem Stefán
Ólafsson prófessor vann fyrir Byggðastofnun árið 1997. í rannsókn-
inni eru farnar aðrar leiðir í að rannsaka búferlaflutninga með því að
líta á þær frá sjónarhóli fbúanna sjálfra í stað þess að beina sjónum
að atvinnulífi eða opinberum aðilum. I hluta rannsóknarinnar eru 10
stórir byggðakjarnar sérstaklega skoðaðir og er Akranes þeirra á með-
al.
Sterkar hliðar Akraness eru opinber þjónusta á borð við skóla og
dagvistun en einnig þjónusta við aldraða og heilbrigðisþjónusta.
Einnig eru umhverfisaðstæður góðar að mati íbúanna. Þá koma
verslun og þjónustugreinar sterkt út í rannsókninni. Veikar hliðar
bæjarins eru atvinnumál og húsnæðismál. Sérstaldega eru það
möguleikarnir á því að afla tekna og húshitunarkostnaður. Þar sem
atvinnuástand hefur batnað umtalsvert frá því rannsóknin var gerð
sl. vor og búist er við að enn rætist úr má gera ráð fyrir að húshitun-
arkostnaður verði sá þáttur sem íbúar á Akranesi setja mest fyrir sig
í búsetuskilyrðum.
HusafeHsheHan imdtr skriðu
Bæjargilið á Húsafelli ógnaði Kvíunum, gróf Húsafellshelluna undir
skriðu og kaffærði tvö listaverk eftir Pál Guðmundsson í leysingun-
um sem urðu skömmu fyrir jól. Vatnsflaumurinn bar með sér urð og
grjót en gilið ruddist meðal annars yfir Kvíarnar. Auk þess að kaffæra
flatirnar í kring um ktáarnar eyðilagði vatnsflaumurinn göngustíg
sem mikil vinna hafði verið lögð í að leggja í sumar og haust en stíg-
urinn lá frá listasmiðju Páls Guðmundssonar og upp í Bæjargilið og
gróf Húsafellshelluna frægu undir urðinni.
Einnig var í sumar grafið frá kvíunum og svæðið í kring þökulagt.
Vatnsflaumurinn og urðin fór yfir þetta allt saman. KristleifurÞor-
steinsson á Húsafelli telur líkur á því að hefði ekki verið búið aðgrafa
frá Kvíunum hefðu þær fyllst af aur og drullu. Einnig urðu skemmd-
ir á hitaveitu og telur Kristleifur að heildartjónið sé um 2,5 milljón-
ir króna.
Frá bóksölu Bónuss fyrir jólin. - mynd: hilmar
Bækur voru
orðnar fulldýrar
Rithöfundar leggjast
hreint ekki gegn
lækkuðu bókaverði.
Rithöfundar brugðu skjótt við
þegar tók að bóla á heiftarlegri
verðsamkeppni í bóksölu fyrir 2-
3 árum. Samningar voru gerðir
við útgefendur um útgáfu frum-
saminna verka og miðast við svo-
kallað verðlistaverð. Hlutur rit-
höfunda af því verði er 23% að
sögn Ingibjargar Haraldsdóttur,
formanns Rithöfundasambands
Islands.
Áður var reglan sú að greidd
voru 16% af útsöluverði, en nú er
miðað við heildsöluverð útgef-
andans, sem hann hefur í hendi
sér hvert verður.
„I rauninni erum við að sjá á
eftir því sem lengi hefur verið
okkar fasti punktur í tilverunni,
þetta fasta verð á bókum. Það er
eiginlega úr sögunni. En þetta er
ekkert einsdæmi, þetta er orðið
svona alls staðar," sagði Ingibjörg
Haraldsdóttir.
„En svo kemur auðvitað í stað-
inn aukin sala á bókum. Það er
þó huggun harmi gegn að þótt
greiðsla fyrir hvert eintak sé
minni, þá kunna eintökin sem
seljast að verða miklu fleiri. Það
er því erfitt að æsa sig upp yfir
lækkandi bókaverði, það gerir
maður ekki,“ sagði Ingibjörg.
Hún segir að bækur hafi verið
orðnar of dýrar. Nú sé ljóst að
bókin haldi velli sem góð jóla-
gjöf-
„Strax eftir áramót munum við
fara aftur í samninginn með út-
gefendum og endurskoðum hann
víðara og breiðara en gert var fyr-
ir næstsíðustu jól,“ sagði Ingi-
björg.
Rithöfundar sjálfir hafa lítið
látið í sér heyra um þær breyting-
ar sem hafa orðið, enda þótt ósk-
að hafi verið eftir að þeir létu í
sér heyra við Rithöfundasam-
bandið. — JBP
Skattamlr lækka
Lækkirn staðgreiðslu-
hlutfallsms um ára-
mótin kemur þanuig
út að margir fá sína
samningshundnu 4%
kauphækkun
nokkum veginn skatt-
frjálsa.
SkattleyHsmörkin hækka um
2,5% um áramótin, í um 62.360
kr. fyrir þá sem njóta skattfrels-
is lífeyrisiðgjalda. Staðgreiðslu-
hlutfallið lækkar um 1,86% milli
ára, en persónuafslátturinn
lækkar líka, um 540 krónur. Hjá
miðlungslaunafólki kemur þetta
þannig úr að skattalækkunin
samsvarar nokkurn veginn stað-
greiðslunni af 4% launahækkun-
inni sem flestir Iaunþegar fá um
áramótin, svo segja má að hún
verði skattfrjáls - að vísu tæplega
hjá Iáglaunafólki en meira en
það hjá hálaunamönnum.
Hækkun janúartekna eftir skatt
verður þannig 3,7% hjá fólki á
Iágmarkslaunum, um 4,7% hjá
fólki sem nú hefur 120.000 kr.
á mánuði og 5,8% hjá 250.000
kr. manninum.
Þeir tekjuhæstu hagnast
mest
Miðað við óbreyttar tekjur
Iækka skattarnir um 700 kr. af
70.000 kr. tekjum. - um 1.600
kr. af 120.000 kr. tekjum - um
6.700 kr. af 170.000 kr. tekjum -
og um 3.900 kr. skattalækkun
verður af 250.000 kr. mánaðar-
tekjum. Sem fyrr segir dugar
þessi skattalækkun nokkum
veginn á móti sköttunum sem
fólk hefði ella þurft að borga af
4% kauphækkuninni sem flestir
fá um áramótin, að vísu tæplega
hjá þeim lægst launuðu, en
heldur meira en það hjá þeim
betur settu. Þarna er lækkun
persónuafsláttarins um að kenna
- eða fyrir að þakka, eftir því
hvaða augum menn lítað það
mál.
Sveitarfélögin fá drjúgan
meirihluta
Skattalækkunin kemur öll - og
raunar eilítið meira - fram á
tekjuskattinum til ríkissjóðs. Út-
svar sveitarfélaganna hækkar
hins vegar lítillega. Fjármála-
ráðuneytið áætlar að ríkissjóður
verði af 2,5 milljarða tekjum
vegna skattalækkunarinnar.
Heildartekjur af staðgreiðslu-
sköttum áætlar ráðuneytið um
58 milljarða á árinu. Drjúgur
meirihlutinn, eða 33 milljarðar,
renna til sveitarfélaganna. Hlut-
ur ríkisins er aðeins 25 milljarð-
ar og þar af svífur þriðjungurinn
beint út aftur í barnabætur og
vaxtabætur. Einungis liðlega
fjórðungur staðgreiðsluskatt-
anna (29%), eða innan við 17
milljarðar, verða því eftir fyrir
ríkiskassann til almennra út-
gjalda.
Staðgreiðsluprósenta nýja árs-
ins verður 39,02%. Þar af fara
27,41% í tekjuskattinn en með-
alútsvarið verður 11,61%. Rúm-
lega helmingur sveitarfélaga
notar hámarksútsvarið, sem
verður 12,04%. Aðeins 9 sveit-
arfélög eru með lágmarksútsvar,
sem verður 11,24% á nýja árinu.
Sex nýsköpimartUnefnmgar
Nýsköpunarsjóður námsmanna
er að ljúka sjötta starfsárinu og
verða nýsköpunarverðlaun For-
seta Islands afhent á Bessastöð-
um 8. janúar nk. Sex verkefni
hafa verið tilnefnd til verðlauna,
þ.e. samþætting heimspeki og
eðlisfræði í elstu bekkjum
grunnskóla, Brynhildur Sigurð-
ardóttir; Hvemig eru biðlistar í
heilbrigðisþjónustunni upp-
byggðir?, Aðalheiður Sigur-
sveinsdóttir; Menningararfurinn
í nútímanum, Andri Snær
Magnason og Sverrir Jakobsson;
Fáfnir - hugbúnaður fyrir flokk-
un hráefnis í fiskvinnslu, Gísli
Reynisson og Hálfdán Guðni
Gunnarsson; Prófun á efnum úr
íslenskum fléttum með tilliti til
verkunar á krabbameinsfrumur
og bólguviðbrögð, Gunnar Már
Zoéga; Rannsóknir á líffræðilega
virkum efnum í sjávargróðri og
öðru sjávarfangi, Hans T.
Björnsson.