Dagur - 30.12.1997, Qupperneq 8

Dagur - 30.12.1997, Qupperneq 8
VJS / GISnH VIJAH 8- ÞRIBJVDAGVR 30. DESEMBER 1997 X Glebilegt ár Um leið og við óskum landsmönnum gleðilegs árs viljum við minna á nokkur atriði sem máli skipta á árinu 1998. Skatthlutfall og skattafsláttur 1998 Skatthlutfall staðgreiðslu breytist 1. janúar 1998 og verður 39,02%. Persónuafsláttur breytist frá því sem hann var á síðasta ári og verður 23.360 kr. á mánuði. Sjómannaafslátturinn verður 656 kr. á dag. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1983 eða síðar, er 6% í staðgreiðslu. Fjárhæð launatekna barna sem halda má utan staðgreiðslu er óbreytt frá síðasta ári eða 77.940 kr. Lífeyrissj óðsiðgjald Lífeyrissjóðsiðgjaldi má halda utan staðgreiðslu þó ekki hærri fjárhæð en 4% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Tryggingagj ald Frá 1. janúar 1998 verður tryggingagjald 5,87%, sérstakur flokkur verður 4,27% og vegna sjómanna reiknast til viðbótar 0,65% iðgjald. Verðbreytingarstuðull Ríkisskattstjóri hefur reiknað verðbreytingarstuðul skv. 26. gr. laga nr. 75/1981 fyrir árið 1997 og er hann 1,0202 miðað við 1,0000 árið 1996. Skilafrestur ýmissa gagna Huga þarf í tíma að ýmsum gögnum sem skila þarf nú í upphafi árs og fyrr en varir er komið að endanlegum skilafresti. Hér má sjá skilafrest ýmissa gagna vegna greiðslna o.fl. á árinu 1997: I. H1 og með 21. janúar 1998: 1. Launamiðar ásamt almennu launaframtali. Á launamiðum komi m.a. fram greiðslurtil verktaka fyrir efni og vinnu. 2. Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði. 3. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði. 4. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt samtalningsblaði. 5. Greiðslumiðar vegna lífeyrisgreiðslna, tryggingabóta o.þ.h. II. Til og með 20. febrúar 1998:_____________ 1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt samtalningsblaði. 2. Sjávarafurðamiðar ásamt samtalningsblaði. III. Til og með 15. maí 1998: Gögn frá lífeyrissjóðum þar sem sundurliðuð er greiðsla iðgjalda sjóðsfélaga. IV. Hl og með síðasta skiladegi skattframtala 1998: 1. Greiðslumiðarfyrir hvers konar greiðslurfyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar 7. gr. laganna. 2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar sem fram koma upplýsingar varðandi samninga sem eignarleigufyrirtæki, sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert og í gildi voru á árinu 1997 vegna fjármögnunarleigu eða kaupleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 manns. M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka og kennitala, skráningarnúmer bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir bifreiðina. Æskilegt er, en þó í samráði við skattstjóra, að upplýsingum á launamiðum sé skilað á tölvutæku formi. RSK RÍKISSKATTSTJ ÓRI Geymið auglýsinguna

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.